Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.2020, Page 21
FÓKUS 21DV 6. NÓVEMBER 2020
Krakkaklassík
Börnum finnst yfirleitt það einfalda best og því eru
spagettí og kjötbollur skothelt ofan í flesta smjattpatta.
Ég nota oftast glútenlaust pasta til að koma til móts við
óþols- og ketófólkið og finnst það reyndar alveg jafn-
gott og venjulegt hveitipasta. Basilíkubollurnar eru upp-
lagðar í einfalda hversdagsmáltíð fyrir 3-4.
Basilíkubollur, einn pakki
ferskar basilsprettur eða fersk fullvaxin basilíka
hakkaðir tómatar í dós
2 hvítlauksrif
1/2 gulur laukur, smátt skorinn
1 tsk. gróft salt
svartur, mulinn pipar að vild
Brúnið bollurnar á pönnu í góðri ólífuolíu. Skóflið þeim á
disk og látið bíða. Bætið ofurlitlu af ólífuolíu á pönnuna
og látið smátt skorinn lauk og hvítlauk svitna á pönnunni
og hellið tómötum úr dós yfir. Skellið fersku basilíkunni
yfir og látið malla stutta stund. Sleppið bollunum til
sunds í sósunni og saltið og piprið. Bollurnar fá svo að
eldast í gegn í sósunni á vægum hita á meðan pastað
sýður. Berið fram með rifnum parmesanosti og dreypið
góðri ólífuolíu yfir herlegheitin áður en þið rífið þetta í
ykkur.
Trukkasamloka
steiktar Basilíkubollur
langlokubrauð
trufflu-majónes eða sósa að eigin vali
salatblöð
rauðlaukur
Góðar samlokur eru stundum bara það eina sem manni
dettur í hug að fá sér. Besta nestið og endalaust hægt
að búa til nýjar útgáfur.
Hér átti ég gott snittubrauð og smurði það að innan með
trufflu-mæói og lagði svo salatblöð og niðurskorinn
rauðlauk innan í.
Setti svo þrjár bollur á milli og þetta var alveg frábær-
lega gott.
Ég veit… sumir myndu segja að tvær bollur væru nóg en
þetta heitir nú einu sinni nú einu sinni trukkasamloka og
ég yrði örugglega mjög góður trukkabílstjóri.
Spítt chili con bollur
Þetta er brjálæðislega fljótlegt
og ekta helgarmatur fyrir alla fjöl-
skylduna eða partýmatur fyrir
góða vini. Best að græja allt á stórri
pönnu með stálskafti sem þolir að
fara inn í ofn. Það er engin leið að
borða þetta eins og siðuð mannvera
og best að leyfa öllum bara að vera
með sprittaða fingur og næla sér
bita í með góðum nachos-flögum.
1 pakki Basilíkubollur
1 matskeið CUMIN ekki KÚMEN
1 tsk. chiliduft
1 gulur laukur
4 hvítlauksrif
1 dós nýrnabaunir
1 dós saxaðir tómatar
salt og pipar
rifinn ostur
sýrður rjómi
ferskt chili rautt og grænt, smátt
saxað
Brúnið bollurnar á pönnunni, takið
af og geymið á disk. Þurrkið pönn-
una að innan með eldhúsbréfi og
setjið hana aftur á heita hellu.
Setjið cumin- og chiliduftið á þurra,
heita pönnu og leyfið kryddinu að
hitna um stund. Setjið þá smá ólífu-
olíu á pönnuna og smátt skorinn
lauk og hvítlauk saman við. Látið
dansa á pönnunni stutta stund þar
til laukurinn byrjar að verða glær en
passið að brenna ekki.
Hellið mestu af vökvanum úr
baunadósinni og skellið baun-
unum á pönnuna líka og blandið
öllu vel saman. Þá næst er að setja
tómatana saman við, salta og pipra
og blanda saman. Basilíkubollurnar
eru þá settar út í sósuna og svo er
pönnunni skellt inn í ofn á 180°C í
svona 10 mínútur.
Vinsamlegast setjið á ykkur hanska
áður en þið takið pönnuna út úr
ofninum, annars er voðinn vís!
Skellið dálitlu af rifnum osti á víð og
dreif um pönnuna og stillið ofninn
á grill. Pannan fer aftur inn þar til
osturinn er bráðnaður.
Hanskann á og pönnuna beint á
matarborðið á hitahlíf. Skreytið með
sýrðum rjóma, nachos og niður-
skornu, fersku chili.
lega samræmanleg þeirra
eigin framleiðslu. En Norð-
lenska hefur sannarlega sýnt
okkur að hugur fylgir máli og
bollurnar eru alveg eins og
við vildum gera þær. Hreint
gæðahakk, fullt af sprettum
og salti og pipar og ekkert
ofnæmisvaldakjaftæði. Bara
holl prótein- og vítamínrík
súperfæða. Við erum svo að
þróa fleiri vörur með Norð-
lenska og alls ekki bara kjöt-
vörur, því við erum auðvitað
að hlusta eftir því að fólk vill
stærra úrval af vegan-vörum
og þar eru svo ótrúlega mikil
tækifæri til að bæta vöruval á
innlendum markaði.“
Tengdamömmubollur
Steina segir Stefán sjálf-
an hafa verið mikið fyrir
kjötboll ur, en hún hafi þó
ekki hætt sér í samanburð
við tengdamömmubollurnar.
„Stefán var alæta á mat, en
honum þóttu bollurnar henn ar
Huldu tengdamömmu bestar.
Maður keppir ekki við heima-
gerðar tengdamömmu bollur,
þar á maður ekki séns í hel-
víti. Það er mitt húsráð til
ungs fólks í eldhúsinu. En
kjötbollurnar sem við hjá
Sprettu erum að framleiða
með Norðlenska eru geggj að-
ar engu að síður og ég er mjög
stolt af þeim. Þær eru líka
ferskvara svo að ég treysti
þeim til að sparka fryst um
systrum þeirra yfir á vara-
mannabekkinn,“ segir Steina
að lokum og ítrekar að á erfið-
um tímum megi ekki vanmeta
þær ljúfu samverustundir
sem eldhúsborðið veitir. Hún
deilir hér nokkrum afbragðs-
uppskriftum sem eru fljót-
legar en gleðja mikið. n