Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.2020, Blaðsíða 18
18 EYJAN
Þegar Joseph Robinette Biden yngri tekur við embætti Bandaríkjafor
seta í byrjun næsta mánaðar
verður hann langelstur allra
til að sverja embættiseiðinn,
eða 78 ára. Metið átti fráfar
andi forseti, hinn afar litríki
Donald Trump, sem var 70 ára
á innsetningardaginn fyrir
tæpum fjórum árum.
Ronald Reagan (forseti 1981–
1989) er enn sá sem setið hefur
elstur á stóli Bandaríkjafor
seta. Hann vantaði ekki marga
daga upp á 78 ára afmælið er
hann lét af embætti – var sem
sagt yngri en Biden verður í
janúar á ári komanda.
George Bush eldri (forseti
1989–1993) var 94 ára er hann
lést árið 2018 og Jimmy Carter
(forseti 1977–1981) varð 96 ára
1. október síðastliðinn en eng
inn fyrrverandi Bandaríkja
forseti hefur náð svo háum
aldri. Rosalynn kona hans er
enn á lífi og ef þeim endist
aldur munu þau fagna 75 ára
brúðkaupsafmæli á næsta ári.
Gömlu mennirnir
Meðalaldur hefur hækkað
hratt á síðustu áratugum og
margir halda óskertu starfs
þreki langt fram á efri ár.
Sagan geymir þó ótal dæmi
um afreksverk öldunga. Sóf
ókles mun hafa verið níræður
er hann ritaði Elektru, Mich
elangelo teiknaði Sankti Pét
urskirkjuna í Róm sjötugur og
Goethe lauk við Faust 82 ára.
En ef við víkjum að stjórn
málamönnunum þá þótti
William Gladstone háaldr
aður er hann lét af embætti
forsætisráðherra Breta árið
1894 orðinn 84 ára og Win
ston Church ill stóð á áttræðu
er hann yfirgaf Downing
stræti 10 í síðasta sinn. Sá
síðarnefndi var fæddur 1874,
tveimur árum eldri en Konrad
Adenauer, kanslari Vestur
Þýskalands, sem lét af því
embætti 1963 orðinn 87 ára.
Hann sat þó áfram á þinginu
í Bonn, allt fram í andlátið
fjórum árum síðar, orðinn 91
árs að aldri.
Golda Meir á
Landspítalanum
Hér hafa bara verið nefndir
karlleiðtogar en Elísabet II.
Englandsdrottning er orðin
94 ára og hefur setið „á valda
stóli“ í 68 ár og ef til vill tekst
henni að slá heimsmet Loð
víks 14. Frakkakonungs sem
hafði ríkt sem konungur í
72 ár er hann andaðist 1715.
En kannski er sanngjarnari
samanburðurinn við lýðræðis
lega kjörna leiðtoga. Golda
Meir, forsætisráðherra Ísra
els, var 76 ára þegar hún lét
af embætti 1974. Golda Meir
kom hingað til lands í opin
bera heimsókn 1961, þá utan
ríkisráðherra Ísraels. Hún
heimsótti meðal annars Pétur
Ottesen, fyrrverandi alþingis
mann, á Landspítalann þar
sem hann hafði legið í fimm
vikur vegna fótbrots. Pétur
hafði þá farið nokkru fyrr í
ferðalag til Ísraels og skrifað
greinar um heimsóknina í
Morgunblaðið.
Golda Meir tók innilega í
hönd Péturs þar sem hann lá
á sjúkrabeðnum og sagði: „Þér
eigið fallegt land, hérna.“ – Já,
en mig dreymir nú oft heim og
nú er aðalannatíminn að hefj
ast. Mér líður illa að komast
ekki heim til búsýslunnar.“
Golda Meir svaraði þá: „Ég
er ekkert hissa á því. Bændur
ættu helst aldrei að liggja í
rúminu. Ég hef sjálf verið
bóndi og veit hvað það er.“
Ellert elstur á þingi
Pétur Ottesen lét af þing
mennsku sjötugur að aldri
árið 1959 og hafði þá setið
samfellt á Alþingi fyrir Borg
firðinga í 43 ár. Ari Trausti
Guðmundsson er nú elstur
alþingismanna, 72 ára. Sig
Pétur Ottesen, Guðmundur Í. og Golda Meir. MYND/TIMARIT.IS
Ólafur Ragnar
Grímsson er
árinu yngri en
Joe Biden en
hér er hann
með George
Bush eldri,
fyrrv. Banda-
ríkjaforseta,
sem lést fyrir
tveimur árum,
94 ára að aldri.
MYND/STEFÁN
Á ÞINGPÖLLUM
Björn Jón
Bragason
eyjan@eyjan.is
SKOÐANAPISTILL
GAMLA FÓLKIÐ Á VALDASTÓLUM
Margir halda starfsþreki fram yfir sjötugt og því eðlilegt að fjölgi í hópi aldraðra ráða-
manna. Joe Biden verður elstur Bandaríkjaforseta. Fáir öldungar í stjórnmálum hér.
13. NÓVEMBER 2020 DV
hvatur Árnason, bóndi í Ey
vindarholti og þingmaður
Rangæinga, var 78 ára þegar
hann sat seinast á Alþingi, en
það var 1902. Pétur Pétursson
biskup var sömuleiðis 78 ára
þegar hann sat seinast á þingi,
en hann var konungkjörinn al
þingismaður til ársins 1887.
Ellert B. Schram tók sæti
sem varamaður á Alþingi
2018 þá orðinn 79 ára. Enginn
annar hefur setið svo gamall
á Alþingi, en Sighvatur í Ey
vindarholti var tæplega 79 ára
þegar þingmennsku hans lauk.
Ráðherrar og forsetar
Ef litið er til ráðherra þá var
Ólafur Thors 71 árs er hann
lét af embætti forsætisráð
herra 1963 en Gunnar Thor
oddsen var 72 ára þegar hann
yfirgaf Stjórnarráðið tuttugu
árum síðar. Vilhjálmur Hjálm
arsson, menntamálaráðherra
1974–1978, er sá ráðherra
sem lengst hefur lifað, varð
99 ára, og annar framsóknar
ráðherra, Ingvar Gíslason,
menntamálaráðherra 1981–
1983, hefur náð háum aldri.
Hann er nú 94 ára.
Hvað forsetana áhrærir
var Ásgeir Ásgeirsson á for
setastóli til 74 ára aldurs og
Ólafur Ragnar Grímsson
yfirgaf Bessastaði 73 ára.
Ólafur Ragnar hefur hvergi
nærri lagt árar í bát eftir að
hann lét af embætti enda enn
með mikið starfsþrek – og svo
má minna á að hann er árinu
yngri en Joe Biden, nýkjörinn
forseti Bandaríkjanna. n
Sagan geymir
þó ótal dæmi
um afreksverk
öldunga.