Fréttablaðið - 25.11.2020, Blaðsíða 13
Í Netapóteki Lyavers á lyaver.is
getur þú fundið þína lyfseðla, valið
samheitalyf og séð lyaverðið þitt.
Mikið úrval af vítamínum og bætiefnum.
Lágt vöruverð og heimsending um land allt.
Gerðu verðsamanburð!
Netapótek Lyavers
–Apótekið heim til þín
lyaver.is
Suðurlandsbraut 22
Það hefur aldrei verið mikil-vægara en nú á tímum kóvíd-19 að vekja athygli á þeirri
staðreynd að of beldi gegn konum
hefur aukist í heiminum. Dagana
25. nóvember til 10. desember
munu Alþjóðasamtök Soroptimista,
ásamt fjölda annarra félagasam-
taka, standa fyrir sextán daga átaki
á heimsvísu sem nefnist „Orange
the world“. Markmiðið er að vekja
athygli á of beldi gegn konum undir
heitinu „Roðagyllum heiminn“.
Þessi litur táknar bjartari framtíð
án of beldis.
Í ár beinist sextán daga átakið
að áhrifum kóvíd-19 á kynbundið
of beldi. Í kjölfar faraldursins hefur
of beldi gegn konum og stúlkum
aukist mikið. Það er einkum heim-
ilisof beldi sem hefur aukist hér á
landi og annars staðar í heiminum.
Efnahags- og félagslegar afleiðingar
kóvíd-19 fela meðal annars í sér
félagslega einangrun hjá fólki og
auka áhyggjur þess af heilsu, öryggi
og fjárhagslegri afkomu.
Þær aðstæður sem hafa skapast
vegna kóvíd-19 eiga þátt í að auka
kynjamisrétti sem kemur meðal
annars fram í minna fjárhagslegu
sjálfstæði kvenna. Rannsóknir
hafa leitt í ljós að konur axla nú mun
meiri ábyrgð í sambandi við heim-
ilisstörf og umönnun barna, sem
getur leitt til þess að þær þurfa að
hætta að vinna eða minnka vinnu-
hlutfall sitt. Það leiðir til að valda-
ójafnvægi eykst í samböndum, sem
bitnar á konum, þær einangrast á
heimilinu með gerandanum og hafa
því oft ekki aðgang að þeim úrræð-
um sem eru í boði fyrir konur. Þetta
eru kjöraðstæður fyrir drottnun og
of beldi fyrir luktum dyrum.
Sameinuðu þjóðirnar hafa hvatt
ríkisstjórnir heims til að gera
aðgerðir gegn kynbundnu of beldi
að lykilatriði í viðbragðsáætlunum
sínum gegn kóvíd-19. Þar er lögð
áhersla á að stjórnvöld setji fjár-
mögnun verkefna í forgang sem
feli í sér nauðsynlega þjónustu við
þolendur heimilisof beldis. Þá er
mikilvægt að þau komi fram með
yfirlýsingu þess efnis að heimil-
isof beldi verði ekki liðið og einn-
ig aðgerðir til að breyta viðhorfi
fólks. Það er einnig lögð áhersla á að
stjórnvöld bregðist við kynbundnu
ofbeldi með því að tryggja þjónustu
við þolendur, sæki gerendur til saka
og standi að söfnun upplýsinga um
kynbundið of beldi sem hægt er að
nota til að bæta þjónustu og úrræði
við þolendur.
A nt ó n i o G u t e r r e s , a ð a l -
framkvæmdastjóri Sameinuðu
þjóðanna, hefur sagt að of beldi
gegn konum sé hindrun í vegi jafn-
réttis, friðar og þróunar. Of beldi
gegn konum er „heimsfaraldur“ að
hans mati. „Þetta er siðferðileg árás
á allar konur og stúlkur, smánar-
blettur á öllum samfélögum heims
og umtalsverður þrándur í götu
réttlátrar og sjálf bærrar þróunar
í þágu allra. Í eðli sínu er of beldi
gegn konum djúpstætt virðingar-
leysi og dæmi um að karlar viður-
kenni ekki grundvallarjafnrétti og
virðingu kvenna. Þetta er mál sem
snýst um grundvallarmannrétt-
indi,“ segir hann. Konur verða oftar
fórnarlömb kynferðisof beldis en
karlar og því er sérstaklega farið
fram á vernd fyrir konur og stúlkur
og aðstoð við þær á átakasvæðum
og jafnframt eftir að átökum lýkur, í
ályktun Öryggisráðs SÞ nr. 1325 um
konur, frið og öryggi.
Soroptimistar hér á landi hafa
sent beiðni til utanríkisráðherra
Roðagyllum heiminn og Ísland líka
Íslands, Guðlaugs Þórs Þórðarson-
ar, um að sendiráð Íslands erlendis
verði hvött til að lýsa upp byggingar
sínar meðan á átakinu stendur.
Markmið okkar er að „roðagylla
Ísland“, og hvetjum við fyrirtæki
og stofnanir til þátttöku með því
að lýsa upp byggingar sínar í appel-
sínugulum lit. Við hvetjum jafn-
framt landsmenn alla til að veita
þessum málaflokki athygli.
Soroptimistar eru alþjóðleg sam-
tök kvenna sem hafa það að mark-
miði að stuðla að jákvæðri heims-
mynd, þar sem samtakamáttur
kvenna nær fram því besta sem
völ er á. Samtökin vinna að bættri
stöðu kvenna, að mannréttindum
öllum til handa sem og jafnrétti,
framförum og friði með alþjóðlegri
vináttu og skilningi að leiðarljósi.
Soroptimistar stuðla að menntun
kvenna og stúlkna til forystu. Eitt
helsta markmið Soroptimista er að
liðsinna konum í baráttunni fyrir
jafnrétti og frelsi frá félagslegum,
efnahagslegum og menningar-
legum takmörkunum með því að
veita fræðslu og menntun. Soropt-
imistar móta, framkvæma og af la
fjármagns til verkefna á hverju
ári sem hafa að markmiði að bæta
efnahagslega stöðu kvenna og fjölga
tækifærum þeirra. Soroptimistar
berjast gegn hvers konar of beldi í
garð kvenna og stúlkna. Í næstum
heila öld hafa Soroptimistar unnið
sleitulaust að því að uppræta
of beldi gegn konum og stúlkum
og tryggja aðkomu kvenna að frið-
arumleitunum. Í Alþjóðasamtök-
unum eru yfir 80.000 félagar í 127
löndum. Soroptimistar eiga ráð-
gefandi fulltrúa hjá hinum ýmsu
stofnunum Sameinuðu þjóðanna og
eiga einnig ráðgjafaraðild að Efna-
hags- og félagsmálaráði Sameinuðu
þjóðanna (ECOSOC).
Soroptimistasamband Íslands er
hluti af Evrópusambandi Soropt-
imista. Íslenskir soroptimistar eru
um 600 talsins í nítján klúbbum
víðs vegar um land.
Á lokadegi átaksins 10. desember
er alþjóðlegur dagur Soroptimista
og mun forseti Soroptimista á
Íslandi afhenda styrk til verkefnis-
ins „Sigurhæða“ sem Soroptimistar
á Suðurlandi standa fyrir. Þetta
verkefni felur í sér þjónustu við
þolendur kynbundins of beldis á
Suðurlandi. Undirbúningur stendur
yfir og munu þær opna þjónustuna
á nýju ári.
Soroptimistar vilja skora á
íslensk stjórnvöld að senda frá sér
skýr skilaboð um að samfélagið líði
ekki kynbundið of beldi. Einnig að
komið verði í veg fyrir og brugðist
við kynbundnu of beldi samkvæmt
tillögum SÞ. Það að tryggja réttindi
og frelsi kvenna er mikilvægt skref
í þá átt að samfélagið geti unnið
úr þeim alvarlegu aðstæðum sem
kóvíd-19 hefur skapað.
Guðrún Lára
Magnúsdóttir
forseti Sor -
optimista-
sambands
Íslands
Efnahags- og félagslegar
afleiðingar kóvíd-19 fela
meðal annars í sér félagslega
einangrun hjá fólki og auka
áhyggjur þess af heilsu, ör-
yggi og fjárhagslegri afkomu.
S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 13M I Ð V I K U D A G U R 2 5 . N Ó V E M B E R 2 0 2 0