Fréttablaðið - 25.11.2020, Blaðsíða 20
Eftir gríðarlegan vöxt í óverðtr yggðum hús-næðislánum banka til heimila að undanförnu, sem nemur liðlega 280 milljörðum á fyrstu tíu
mánuðum ársins, er nú svo komið
að vægi slíkra óverðtryggðra lána
er í fyrsta sinn í sögunni orðið
meira en verðtryggðra lána hjá
bönkunum.
Samkvæmt nýjum hagtölum
Seðlabankans um bankakerf ið
jukust ný óverðtryggð húsnæðis-
lán, að frádregnum uppgreiðslum,
um samtals 56 milljarða í síðasta
mánuði á sama tíma og heimilin
greiddu hins vegar niður verð-
tryggð lán sín um rúmlega 10
milljarða.
Í kjölfarið er hlutdeild óverð-
tryggðra lána hjá íslensku bönkun-
um yfir 52 prósent á móti tæplega
48 prósenta hlutdeild verðtryggðra
lána en húsnæðislán bankanna til
heimila námu samtals um 1.206
milljörðum króna í lok október.
Til samanburðar nam hlutdeild
óverðtryggðra lána 38 prósentum
í byrjun þessa árs og 32 prósentum
í ársbyrjun 2019.
Valdimar Ármann, sérfræðingur
í markaðsviðskiptum hjá Arctica
Finance, segir þetta vera „stór tíð-
indi fyrir íslenskan lánamarkað og
mjög jákvæð“ fyrir peningastefnu
Seðlabankans.
„Með vaxtalækkunum núna
eru ráðstöfunartekjur heimila að
aukast þegar skórinn kreppir að,
og þegar kemur að því að fram-
leiðsluslakinn fer úr hagkerfinu og
Seðlabankinn þarf að fara að beita
vaxtahækkunum aftur munu þær
bíta fastar á heimilin en áður. Að
öllu öðru óbreyttu ætti bankinn
að þurfa að beita vaxtatækinu af
meiri nærgætni í framtíðinni þar
sem áhrifin verða mun meiri,“ segir
Valdimar.
Jón Bjarki Bentsson, aðalhag-
fræðingur Íslandsbanka, bendir á
að bankarnir hafi undanfarin ár
verið með allsterka stöðu í óverð-
tryggðum íbúðalánum meðan
lífeyrissjóðir hafi almennt verið
umsvifameiri í verðtr yggðum
lánum. Það sem sé hins vegar
nýlunda er hraður vöxtur óverð-
tryggðra lána á breytilegum vöxt-
um hjá bönkunum en slík lán hafa
aukist um 270 milljarða frá árs-
byrjun á meðan lán með nokkurra
ára vaxtabindingu hafa vaxið um
12 milljarða.
„ St ý r i v a x t a l æ k k u n S e ðl a -
bankans,“ útskýrir Jón Bjarki, „er
lykiláhrifaþáttur í þessari þróun.
Vaxtakjör lána á breytilegum vöxt-
um eru hagstæðari en nokkru sinni
fyrr á sama tíma og aukin sam-
keppni og breyttur reglurammi
hefur auðveldað almenningi að
endurfjármagna lán sín. Að sama
skapi hefur munur á verðtryggð-
um og óverðtryggðum vöxtum
minnkað og er talsvert minni þessa
dagana en sem nemur væntri verð-
bólgu á komandi misserum á nán-
ast alla mælikvarða.“
Hann telur aðspurður ek k i
ósennilegt að vægi verðtryggðra
lána muni halda áfram að minnka
jafnt og þétt. „Við gætum þó séð
tímabundinn vöxt í þeim á nýjan
leik ef aftur skapast aðstæður þar
sem verðbólga er lítil á sama tíma
og nafnvextir hækka á nýjan leik,
ekki ósvipað og var þegar seinasta
þensluskeið stóð sem hæst. Ég tel
hins vegar að verðbólga eigi eftir
að verða stöðugri og nafnvaxtastig
í landinu lægra á komandi árum að
jafnaði en verið hefur í nútíma hag-
sögu landsins,“ segir Jón Bjarki.
Valdimar tekur í sama streng.
Aukin útgáfa íbúðalána hjá bönk-
unum í kjölfar mikilla vaxta-
lækkana Seðlabankans – þeir hafa
lækkað úr 3 prósentum í 0,75 pró-
sent á árinu – sé mjög eðlileg enda
eru bankarnir langsamlega sam-
keppnishæfastir í veitingu lána
með f ljótandi nafnvöxtum.
„Að öllum líkindum mun þessi
þróun einungis halda áfram,“
útskýrir hann, og segir það vera
jákvætt fyrir íslenska hagstjórn.
„En næstu skref þurfa svo að þró-
ast í framhaldinu sem er að fastir
óverðtryggðir vextir geti verið
raunhæfur valmöguleiki og tryggja
að möguleikar til endurfjármögn-
unar séu sveigjanlegir og ódýrir,“
að sögn Valdimars.
Aðalhagfræðingur Íslandsbanka
er á sama máli og segir aukið vægi
óverðtryggðra lána, einkum og sér
í lagi á breytilegum vöxtum, hafa
gert peningastefnuna mun virkari
hvað varðar áhrif á heimili lands-
ins. Þróunin frá áramótum sé skýrt
merki um það.
„Líklegt er að íbúðamarkaður
hefði gefið meira eftir og einka-
neysla ekki tekið eins við sér í
sumar ef þorri heimila væri enn á
fastvaxta verðtryggðum lánum,
svo dæmi sé tekið,“ að sögn Jóns
Bjarka, en að því leyti sé þessi
þróun býsna jákvæð þótt hún hafi
vissulega á hinn bóginn gert heim-
ilin næmari fyrir hækkun skamm-
tímavaxta.
„Séu slík lán hins vegar orðin
útbreidd í hagkerfinu dregur það
á endanum úr líkunum á því að
Seðlabankinn þurf i stórtækar
breytingar á stýrivöxtum til að
ná fram tilætluðum áhrifum á
innlenda eftirspurn og sparnað,“
segir hann. hordur@frettabladid.is
282
milljarða hafa bankarnir
lánað í ný óverðtryggð hús-
næðislán á árinu.
MARKAÐURINN
ÚTGÁFUFÉLAG Torg., Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík, sími 550 5000
Netfang rit stjorn@markadurinn.is | Sími 550 5051
Ritstjóri Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is
Netfang auglýsingadeildar auglys ing ar@frettabladid.is Veffang frettabladid.is
800
700
600
500
400
300
200
100
✿ Óverðtryggð íbúðalán fara fram úr verðtryggðum
í milljörðum króna
n Verðtryggð lán n Óverðtryggð lán
ja
n.
17
fe
b.
17
m
ar
.1
7
ap
r.1
7
m
aí
.1
7
jú
n.
17
jú
l.1
7
ág
ú.
17
se
p.
17
ok
t.1
7
nó
v.
17
de
s.
17
ja
n.
18
fe
b.
18
m
ar
.1
8
ap
r.1
8
m
aí
.1
8
jú
n.
18
jú
l.1
8
ág
ú.
18
se
p.
18
ok
t.1
8
nó
v.
18
de
s.
18
ja
n.
19
fe
b.
19
m
ar
.1
9
ap
r.1
9
m
aí
.1
9
jú
n.
19
jú
l.1
9
ág
ú.
19
se
p.
19
ok
t.1
9
nó
v.
19
de
s.
19
ja
n.
20
fe
b.
20
m
ar
.2
0
ap
r.2
0
m
aí
.2
0
jú
n.
20
jú
l.2
0
ág
ú.
20
se
p.
20
ok
t.2
0
50.000
40.000
30.000
20.000
10.000
Í ma. kr.
-10.000
✿ Ný íbúðalán á árinu 2020
jan. feb. mar. apr. maí. jún. júl. ágú. sep. okt.
Þarna eru menn að nálgast verkefnið á rangan hátt. Það er mikill þrýstingur á bæjaryfir-
völd að fá ljósleiðara enda er hraði
nettenginga eitt af þeim málum
sem brenna hvað mest á lands-
byggðinni,“ segir Kristinn Jónasson,
bæjarstjóri Snæfellsbæjar, í samtali
við Markaðinn. Þar, eins og víðar á
landsbyggðinni, hefur lagning ljós-
leiðara verið bundin við dreif býlið
á meðan þéttbýlið situr uppi með
kopartengingar.
„Það að búa ekki við þessa
þjónustu er ólíðandi og hamlandi.
Nútímatækni skiptir jafnmiklu
máli í þéttbýli á landsbyggðinni og
á höfuðborgarsvæðinu,“ bætir hann
við.
Drög að markaðsgreiningu Póst-
og fjarskiptastofnunar (PFS) eru
nú til umsagnar, en í þeim tekur
stofnunin þá afstöðu að enn þá sé
til staðar staðganga milli kopar- og
ljósleiðaraneta. Staðganga þýðir
að verð þjónustunnar sé sá þáttur
sem ræður mestu um val neytenda
á internetþjónustuveitanda. Næst á
eftir komi gæði þjónustu þjónustu-
veitandans og í þriðja sæti sé hraði.
Þetta bendir til þess að mismunandi
möguleikar á hraða í kopar- og ljós-
leiðaratengingum sé ekki mjög
afgerandi þáttur þegar kemur að
vali neytenda.
Með því að skilgreina ljósleið-
ara- og kopartengingar þannig að
staðganga sé þeirra á milli, verður
markaðsstaða Mílu, sem á og rekur
helstu fjarskiptainnviði landsins,
sterkari í augum PFS. Haft var eftir
Jóni Ríkharði Kristjánssyni, fram-
kvæmdastjóra Mílu, í Markaðinum
í síðustu viku að PFS gæti þannig
réttlætt frekari kvaðir Mílu sem
bitna á lagningu ljósleiðara á lands-
byggðinni.
„Afstaða stofnunarinnar vekur
óhjákvæmilega upp tvær spurn-
ingar. Annars vegar hvort ljósleið-
aravæðing sé óþörf þar sem kopar-
tengingar eru fyrir. Og hins vegar
hvort hægt sé að leysa internetmál
þéttbýlisstaða úti á landi með lægra
verði til endanotenda á tengingum
yfir kopar. Að mati Mílu er þetta
ekki í neinu samræmi við áherslur
sveitarstjórna, stefnu stjórnvalda,
markaðssetningu fjarskiptafélaga
og vilja neytenda,“ sagði Jón Rík-
harður.
Þegar skipt var um vatnslagnir í
einni götu í Ólafsvík í fyrra, nýtti
Míla tækifærið og lagði ljósleiðara í
götuna. Kristinn bæjarstjóri bendir
á að allir íbúar í götunni hafi valið
ljósleiðara fram yfir koparteng-
ingu/ljósnet.
„Hvers vegna velur fólk ljósleiðar-
ann? Vegna þess að hraðinn skiptir
mestu máli og þau tækifæri sem
honum fylgja, en fáir spá í hvort þeir
þurfi að borga nokkrum hundrað-
köllum meira til fjarskiptafyrir-
tækja. Þess vegna eru íbúar eins og
í Snæfellsbæ að kalla eftir því að fá
ljósleiðara inn til sín,“ segir Krist-
inn. – þfh
Fáir vilja fórna hröðu neti
fyrir nokkra hundraðkalla
Það að búa ekki við
þessa þjónustu er
ólíðandi og hamlandi.
Nútímatækni skiptir jafn-
miklu máli í þéttbýli á
landsbyggðinni og á höfuð-
borgarsvæðinu.
Kristinn Jónasson,
bæjarstjóri Snæ-
fellsbæjar
Sími: 561 1433
mánudaga-föstudaga 7.30 -17.30
laugardaga 8.00 -16.00
sunnudaga 9.00 -16.00
P
R
E
N
T
U
N
.IS
Austurströnd 14 • Hringbraut 35
Jólakökur,Smákökur,Stórar piparkökurtil að skreyta,PipakökuhúsO.m.fl.
JÓLIN ERU
HJÁ OKKUR...
.........................................
www.bjornsbakari.is
Óverðtryggð lán taka
fram úr í fyrsta sinn
Ný óverðtryggð íbúðalán bankanna 56 milljarðar í október og er vægi þeirra nú
meira en verðtryggðra lána. Sérfræðingar telja að hlutur verðtryggingar muni
minnka frekar og Seðlabankinn verði að beita vaxtatækinu af meiri nærgætni.
Aukið vægi óverð-
tryggðra lána,
einkum á breytilegum
vöxtum, hefur gert peninga-
stefnuna mun virkari hvað
varðar áhrif á heimili
landsins.
Jón Bjarki Bents-
son, aðlhagfræð-
ingur Íslandsbanka
2 5 . N Ó V E M B E R 2 0 2 0 M I Ð V I K U D A G U R2 MARKAÐURINN