Fréttablaðið - 25.11.2020, Blaðsíða 26

Fréttablaðið - 25.11.2020, Blaðsíða 26
Jakobsson Capital verðmetur TM á 40,1 krónu á hlut, en markaðs-virðið er 46,2. Vakin er athygli á því í verðmatinu að TM geti ekki fært sér í nyt yfirfæranlegt skatta- tap Lykils, sem sameinað var trygg- ingafélaginu. Greinandi Jakobsson Capital hafði reiknað með nær engri skattgreiðslu á þriðja árs- fjórðungi. Við mat greinanda á sameiningu fyrirtækjanna var meðal annars horft til umtalsverðs skattalegs taps Lykils sem „haldið var á lofti og að fjárfestum sem einn af sölu- punktunum fyrir ávinningi sam- einingar.“ Jakobsson Capit al t aldi að skattalega tapið myndi nýtast allri samstæðunni. „Það er takmark- aður ávinningur af takmarkaðri nýtingu á yfirfæranlegu skatta- legu tapi,“ segir hann. Fram kemur í skýringum ársreiknings að félögin séu ekki samsköttuð. Jakobsson Capital hafði metið virði yfirfæranlegs skattalegs taps á um þrjá milljarða króna ef það nýttist fyrir alla samstæðuna. Í verðmatinu segir að erfitt sé að meta ávinning skattalegs taps nema í kjölfar útgáfu ársreiknings. „Gróft mat nú gefur að verðmæti yfirfæranlegs skattalegs taps sé vel rúmlega einn milljarður og lækkar um tæpa tvö milljarða króna,“ segir greinandi Jakobsson Capital. Fulltrúar Kviku banka og TM ræða sameiningu fyrirtækjanna. „Mikil samlegð er með Kviku og Lykli en efnahagsreikningur Lykils hentar Kviku fullkomlega og öfugt. Vandi Kviku er ofgnótt fjármagns á breytilegum vöxtum sem félagið á í vandræðum með að koma í næga ávöxtun. Lykil skortir fjármögnun á breytilegum vöxtum en skortir ekki útlán. Ljóst er að verðmæti TM eru mun meiri fyrir Kviku en hinn almenna fjárfesti. Bæði vegna sam- legðar og hugsanlega vegna yfir- færanlegs skattalegs taps,“ segir í verðmatinu. – hvj Nýtir ekki skattatap Lykils Sigurður Viðarsson, forstjóri TM. Orkuveita Reykjavíkur stefnir að því að að greiða upp eig-endalán sem upphaf lega var um 12 milljarðar, sem veitt var til fyrirtækisins í kjölfar fjármála- hrunsins 2008. Á árinu voru tæpir sex milljarðar greiddir upp. Að sögn Ingvars Stefánssonar, framkvæmdastjóra fjármála, eru eftirstöðvar eigendalánsins nú lið- lega 3,6 milljarðar króna, en Ingvar segir að áætlað sé að eigendalánið verði greitt upp að fullu á fyrsta ársfjórðungi næsta árs. „OR hefur nú góð tækifæri til að endurfjár- magna skuldir. Vextir eru lágir og efnahagsreikningur hefur styrkst mjög á síðustu árum og er eigin- fjárhlutfall ríf lega 47 prósent í lok septembermánaðar.“ Að sögn Ingvars skiptir meira máli hlutfall handbærs fjár frá rekstri og nettóupphæð skulda. „Við viljum koma því niður fyrir 5. En það má segja að OR sé komin á lygnan sjó núna. Lánveitendur telja rekstur fyrirtækisins góðan, sem sést á lækkandi álagi á lánum.“ Tekjur Orkuveitu Reykjavíkur af heitavatnssölu jukust um 1,2 millj- arða á fyrstu níu mánuðum ársins. Tekjuaukninguna má að einhverju leyti rekja til gjaldskrárhækkana í samræmi við verðlagsþróun, en mikil magnaukning í sölu er megin- drif kraftur tekjuaukningarinnar, að sögn Ingvars. „Viðskiptavinum hefur fjölgað, enda verið mikil upp- bygging húsnæðis á höfuðborgar- svæðinu að undanförnu. Kalt veður á þessu ári er þó meginskýringin á aukinni eftirspurn,“ segir Ingvar. Rekstrartekjur OR á fyrstu níu mánuðum ársins námu um 35 milljörðum króna, sem er um 1,5 milljarða aukning frá sama tíma- bili í fyrra. Stærsti einstaki við- skiptavinur OR er álframleiðandinn Norðurál, en tekjur OR hafa engu að síður haldist í horfinu á árinu. „Álverð nú er á svipuðum slóðum og það var í upphafi árs áður en COVID hóf innreið sína af fullum krafti. Þó að það séu sveiflur á álverði er sala vegna  álverðstengdra samninga aðeins um 12 til 13 prósent af heild- artekjum okkar, enda með margar aðrar stoðir í okkar rekstri,“ segir Ingvar. – thg OR fyrirhugar að greiða upp eigendalán snemma á næsta ári Auknar tekjur af heitavatnssölu vega þungt. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK Va x t a r s j ó ð u r i n n Scottish Equity Part-ners (SEP), sem fjár-festi meðal annars í Skyscanner árið 2007, hefur fjárfest fyrir á annan milljarð króna í hug- búnaðarfyrirtækinu Dohop. Fyrir vikið eignaðist sjóðurinn um 30 prósenta hlut í íslenska fyrirtækinu. Davíð Gunnarsson, framkvæmda- stjóri Dohop, segir að horft sé til þess að nýta fjármagnið til að styðja við áframhaldandi vöxt og ráða 50-60 starfsmenn á næstu tveimur árum. Hugbúnaðarþróun félagsins verði áfram að stórum hluta hérlendis. Starfsmenn eru nú 45. Dohop þróar hugbúnað fyrir f lugfélög. Í grunninn hjálpar hug- búnaðurinn f lugfélögum að selja tengif lug á heimasíðum sínum. Hér á landi er fyrirtækið þekkt fyrir heimasíðu sína þar sem hægt er að leita að flugi víða um heim. Á undanförnum árum hefur áherslan flust af rekstri heimasíðunnar yfir í að þróa hugbúnað þar sem fólk leitar að tengif lugi á heimasíðu f lugfélaga. Samningur við EasyJet árið 2017 markaði ákveðin þátta- skil hvað það varðar. Þurftu að sýna biðlund Davíð segir að ferlið við að afla auk- ins hlutafjár hafi tekið töluverðan tíma. Starfsmenn Dohop hafi hitt fulltrúa SEP í október 2019, kaup- skilmálar verið undirritaðir í des- ember og ljúka átti við samninginn í lok mars. Þá hafi COVID-19 breiðst yfir heimsbyggðina og SEP ákvað að bíða með fjárfestinguna í ljósi óvissu í ferðaþjónustu. „Við reyndum að halda sambandi við þá og það tókst með herkjum. Rætt var við starfsmenn SEP á þriggja til fjögurra vikna fresti. Í september var svo komið að annað- hvort yrði að ganga til samninga eða við myndum leita til annarra fjárfesta. SEP sýndi því skilning, við skrifuðum undir annan samning um helstu kaupskilmála og málinu lauk tveimur mánuðum seinna,“ segir hann. Kaupverðið lækkaði Davíð segir að kaupverðið hafi lækkað töluvert á milli samninga. „Það er fullkomlega eðlilegt. Horfur voru á að Dohop myndi velta 1,2 til 1,5 milljörðum króna í ár. Það er rúmlega tvöföldun á milli ára. Veltan nam um 120 milljónum króna í janúarmánuði en svo kom kórónafaraldurinn og tekjurnar fóru langleiðina í núll. Fjárfest- arnir líta svo á að fólk vilji ferðast á nýjan leik þegar COVID-19 er á bak og burt. Þeir horfa til lengri tíma,“ segir hann. Flestir starfsmenn fyrirtækisins fóru á hlutabótaleiðina í vor, enda félagið nánast tekjulaust, en komu að fullu til baka 1. september. „Við tókum slaginn: Það er nóg af tæki- færum og til að vinna að þeim þurf- um við á öllu okkar fólki að halda. Jafnvel þótt tekjurnar hafi þurrkast út er tækifærið sem við stöndum frammi fyrir stærra en áður. Eftir- spurnin eftir hugbúnaðinum hefur aukist. Við hjálpum f lugfélögum að selja tengiflug og þau vilja nýta COVID til að endurskipuleggja inn- viði og auka hagkvæmni þeirra. Við vorum að ljúka við fjórða samning- inn við nýjan viðskiptavin frá því að COVID-19 hófst. En tekjumód- elið okkar er með þeim hætti að við fáum einkum greitt þegar ferða- menn bóka flug,“ segir Davíð. Fengu fjármögnun í sumar Dohop af laði 200 milljóna króna fjármögnunar í sumar með breyt- anlegu skuldabréf i. Núverandi hluthafar og nýir stóðu að fjár- mögnuninni. Skuldabréfinu var breytt í hlutafé samhliða því að SEP lagði hugbúnaðarfyrirtækinu til hlutafé. Fyrir hlutafjáraukninguna var enginn einn hluthafi áberandi stór. Stærsti hluthafinn, Vivaldi Ísland, sem er í eigu Jóns S. von Tetzchner, átti 15 prósenta hlut og Frosti Sigur- jónsson, fyrrverandi þingmaður, átti rúmlega níu prósenta hlut. „Okkur vantaði einmitt öflugan kjölfestufjárfesti sem er áhugasam- ur um reksturinn og hefur skoðanir á því sem er gert,“ segir Davíð. Nú verða þau tímamót í sögu Dohop að meirihluti stjórnar- manna verður erlendur. Við kaup SEP sest Stuart Paterson í stjórn félagsins. Í vor kom Maxwell Jon Reilly, sem starfað hefur sem ráð- gjafi í f lugiðnaði í 30 ár, í stjórn en árið 2018 tók Andrew Middleton, Commercial Director hjá easyJet, sæti í stjórn. Vinna með EasyJet Fram kom í Markaðnum sumarið 2018 að breska lággjaldaflugfélagið hefði lánað Dohop 2,25 milljónir evra. Hægt væri að breyta láninu í hlut í Dohop við lok lánstímans. Flugfélagið aðstoðar viðskiptavini við að finna tengif lug í gegnum önnur f lugfélög. Tæknin er knúin af Dohop. Breska ráðgjafarfyrirtækið Strata Partners í London aðstoðaði Dohop við að fjármagna reksturinn. „Þeir bentu okkur á lista af 70 mögu- legum sjóðum og kynntu okkur meðal annars fyrir SEP. Það er afar verðmætt,“ segir hann. Skoskur sjóður fjárfestir í Dohop fyrir á annan milljarð Scottish Equity Partners eignast um 30 prósenta hlut. Hugbúnaðarfyrirtækið horfir til þess að ráða 50 til 60 starfsmenn á næstu tveimur árum. Sóttu 200 milljóna króna fjármögnun í sumar. Fyrstu drög að samningi lágu fyrir COVID-19 en heimsfaraldurinn gerði það að verkum að slá þurfti viðræðum á frest. Davíð Gunnarsson, framkvæmdastjóri Dohop. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI Jafnvel þótt tekj- urnar hafi þurrkast út er tækifærið sem við stöndum frammi fyrir stærra en áður. Davíð Gunnarsson, framkvæmdastjóri Dohop 47% er núverandi eiginfjárhlut- fall Orkuveitu Reykjavíkur. Helgi Vífill Júlíusson helgivifill@frettabladid.is 2 5 . N Ó V E M B E R 2 0 2 0 M I Ð V I K U D A G U R8 MARKAÐURINN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.