Rit Búvísindadeildar - 15.10.1996, Síða 14
1. mynd. Tengsl þurrkstigs og forþurrkunartíma heysins.
Tengslum þurrkstigs (y) og forþurrkunartíma (x) má lýsa þannig:
y = 29,7 + 0,645 x * = 0,49 p < 0,001
Fylgst var með þeim breytingum sem urðu á orkugildi heysins frá slætti og þar til
kom að bindingu. Orkugildi heysins (FE/kg þe.) er reiknað eftir meltanleika þurrefnis
þess. Meðaltölur orkugildis fyrir allar spildur bæði tilraunaárin voru þessar:
viðslátt 0,816 ±0,071
a - við bindingu 0,764 ± 0,059
b - við bindingu 0,762 ± 0,048
Marktækur mismunur var á orkugildi heysins við slátt og bindingu (p<0,05). Liðamunur
(a:b) er hins vegar ekki marktækur. Niðurstaðan styður það, sem áður hefur verið bent á
(Bjami Guðmundsson 1991), að við forþurrkun á velli verður rýmun fóðurefnanna
einkum á fyrstu stundunum eftir sláttinn.
Þá var athuguð fylgni orkugildis heysins við slátt (x) og orkugildis þess við
bindingu (y). Fylgninni má lýsa þannig:
a - liður: y = 0,49 + 0,34x r2 = 0,19 p > 0,05 em
b - liður: y = 0,36 + 0,53x r2 = 0,62 p < 0,01
í a-lið reyndist fylgnin ckki marktæk, gagnstætt b-lið þar sem hún reyndist fremur sterk.
Hallatölurnar benda til þess að mismunur orkugildis við slátt og bindingu hafi farið
vaxandi með orkugildi heysins við sláttinn. Fallið varð m.ö.o. meira í orkuríku heyi
(>0,75 FE/kg þe.við slátt) en orkusnauðu. Skýringin kann að liggja í öflugri
efnaumsetningu (t.d. öndun) orkuríka (snemmslegna) heysins en hins orkusnauðara - og
að í hinu fyrmefnda hafi verið meira af auðleysanlegum efnum. Svipuð áhrif komu fram f
rannsókn Þóroddar Sveinssonar (1994).
3.2 Þéttleiki bagga
Fyrir verkun heysins og geymslukostnað skiptir máli að heyið falli sem þéttast í baggana.
Rúmþyngd heysins f böggunum var mæld strax að bindingu lokinni. Reiknað var aðhvarf
rúmþyngdar að þurrkstigi heysins. Notuð voru meðalgildi bagga af hverri spildu hvors
8