Rit Búvísindadeildar - 15.10.1996, Page 17
3.3.3 Þurrefnistap við geymslu
Þurrefnistap við verkun heysins og geymslu í rúlluböggunum var metið sem létting
bagganna frá bindingu fram að gjöfum. Er þá gert ráð fyrir að plasthjúpuxinn hafi að ö!lu
leyti hindrað vökvaflæði til og frá heyinu en að gasflæði kunni hins vegar að hafa orðið.
Við bindingu var heyið f öllum tilvikum það þurrt að ekki gat verið um afrennsli frá því að
ræða. Útlit heysins bar það með sér að geijun hafði orðið umfangsiítil. Þungarýmunin ætti
því að geta gefrð rökstudda hugmynd um þurrefnistapið við geymslu sem a.m.k. dugir til
samanburðar á milli tilraunaliða.
Deplaritið á 3. mynd sýnir tengsl reiknaðs þurrefnistaps og þurrkstigs heysins við
bindingu. Háarbaggamir eru ekki með í þessu uppgjöri þvf vigtun á nokkram þeirra
misfórst svo eftir stóðu of fáar mælingar. Tapið er sáralítið. Dreifing gildanna er nokkur
og telst munur á meðaltapi á milli liðanna ekki marktækur; í a-lið reiknaðist tapið hafa
verið Q£±0,1% en QJ+0,8% í b-lið:
Cu
3
09
O)
Im
u
Þurrefni heysins við bindingu, %
3. mynd. Áhrif þurrkstigs á þurrefnistap við geymslu rúliuheysins.
Þar sem ekki var um liðamun að ræða var gildum úr báðum liðum slegið saman til
athugunar á aðhvarfi. Reyndist marktæk fylgni vera á milli hins reiknaða taps og
þunkstigs heysins. Tengslum breytistærðanna má lýsa þannig:
y = 2,14 - 0,035 x r*= 0,48 p < 0,01
Líkingin fellur vel að hinni almennu reglu um aðhvarf geymslutaps heys að þurrkstigi þess
(sjá t.d. Bjartnes et al. 1981). Eftir líkingunni verður tapið ekkert (y = 0) við 61%
þurrefni, sem tæpast er raunveralegt þótt heyið hafi sýnilega verkast vel. Hér gæti því
hugsanlega verið um að ræða línuleg skekkjuáhrif, t.d. tengd vigtun heysins.
3.3.4 Breytingar á fóðurgildi heysins
Með því að bera saman efnamælingar á sýnum teknum úr böggunuin við bindingu og
sýnum, sem tekin vora úr sömu böggum við gjafir, má fá hugmynd um það hvernig
varðveisla fóðurefnanna hefur tekist. í 4. töflu eru meðalniðurstöður tilraunaáranna
tveggja hvað varðar meltanleika þurrefnis og hrápróteinmagn þess:
11