Víkurfréttir - 18.06.2020, Side 4
Bláa lónið gefur sumargjöf
Bláa Lónið opnar aftur og býður gesti velkomna frá og með 19. júní
næstkomandi og gefur í tilefni þess öllum einstaklingum, fjórtán
ára og eldri, 5.000 kr. inneign upp í Premium-aðgang Bláa lónsins.
Hægt er að nálgast inneignina og allar upplýsingar á vefsíðu Bláa
lónsins en nýta má inneignina til og með 31. ágúst 2020.
Með Premium-aðgangi njóta gestir Bláa lónsins alls þess besta
sem lónið hefur upp á að bjóða og fá meðal annars:
• Aðgang í Bláa lónið.
• Kísil- og þörungamaska
ásamt hraunskrúbbi á
Maskabarnum.
• Afnot af handklæði,
baðsloppi og inniskóm.
• Drykk að eigin vali á
Lónsbarnum.
• Drykk með matseðli á Lava,
veitingastað Bláa lónsins.
Frítt er fyrir börn þrettán ára og yngri. Gestir fimmtán ára og yngri
þurfa að mæta í fylgd með fullorðnum.
Bláa lónið verður opið alla virka
daga í sumar frá klukkan 12 til
22 og um helgar frá 10 til 22.
Vetrarkorthafar Bláa lónsins fá
kort sín framlengd út ágúst 2020.
Á vefsíðu Bláa lónsins er nú
einnig að finna sérkjör fyrir
sumarið á Silica og Retreat
hótelunum. Með þeim er verið
að höfða til innlenda markhópsins
sérstaklega með það að markmiði
að kynna einstakt vöruframboð
félagsins.
„Við hlökkum til að bjóða
gesti velkomna á ný. Bláa lónið
hefur verið lokað síðastliðna
þrjá mánuði og hefur tíminn
verið nýttur til að sinna viðhaldi
og öðrum innviðaverkefnum.
Við erum því vel í stakk búin að
taka á móti þeim gestum sem til
okkar koma í sumar og vonum
auðvitað að sem flestir Íslendingar
heimsæki Bláa lónið og geri sér
glaðan dag. Bláa lónið er eitt af
25 undrum veraldar og einstakt
upplifunar- og þjónustufyrirtæki
hér á landi. Með þessum
sérkjörum og sumargjöfinni
erum við að stíga okkar fyrstu
skref af mörgum í viðspyrnu
ferðaþjónustunnar á Íslandi,“ segir
Grímur Sæmundsen, forstjóri Bláa
lónsins, í tilkynningu.
Nýlega skrifuðu Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri Reykjanesbæjar,
og Skúli J. Björnsson, framkvæmdastjóri Sportís ehf., undir samning
um hönnun og kaup á tveimur nýjum vatnsrennibrautum og stigahúsi
við Sundmiðstöð Reykjanesbæjar. Rennibrautir frá Sportís urðu fyrir
valinu að undangengnu útboði.
Rennibrautirnar verða með lýsingu,
hærri brautin 74 metri að lengd í um
níu metra hæð. Styttri rennibrautin
er 28 metrar og í um 4,5 metra hæð.
Turninn verður lokaður og tíu metra
hár. Hægt verður að stýra lýsingu og
hljóði í brautunum til að auka upp-
lifun gesta. Áætlað að nýjar renni-
brautir verði teknar í notkun í lok
september á þessu ári.
Í sumar verður farið í framkvæmdir
við útisvæði Sundmiðstöðvar við
Sunnubraut en þær fela í sér að
svæðið vestan við útilaug verður
brotið upp og nýtt pottasvæði verður
komið fyrir þar. Nýja rennibrautin
verður sett upp sunnan við sama
svæði. Rennibrautin verður tvöföld
og töluvert stærri en núverandi
rennibraut og var horft til útlits
og upplifunar þegar hún var valin.
Uppgönguturn að rennibrautum
verður lokaður og upphitaður.
Framkvæmdinni verður skipt
upp í tvo áfanga. Í fyrri áfanga
verður rennibraut fjarlægð, steypt
áhorfendasvæði brotin í burtu,
byggðir upp tveir heitir pottar
og einn kaldur pottur. Í áfanga
tvö verður sett upp saunaklefi og
vatnsgufa. Einnig nýir útiklefar fyrir
karla og konur.
Framkvæmdir munu hefjast
núna í júní og verktími er áætlaður
fjórir mánuðir. Ekki er fyrirhuguð
lokun á sundlauginni meðan á
framkvæmdum stendur heldur
er áætlað að loka af vinnusvæðið
t i l að röskun á starfssemi
Sundmiðstöðvarinnar verði eins
lítil og mögulegt er, segir á vef
Reykjanesbæjar.
Nýjar vatnsrennibrautir
og framkvæmdir við
Sundmiðstöð Reykjanesbæjar
4 // VíKuRFRÉttiR á SuÐuRnESjum í 40 áR
Fimmtudagur 18. júní 2020 // 25. tbl. // 41. árg.