Víkurfréttir


Víkurfréttir - 18.06.2020, Síða 12

Víkurfréttir - 18.06.2020, Síða 12
Miðvikudaginn 22. júlí verður Skötumessan 2020 enn og aftur haldinn í Gerðaskóla í Garðinum. Borð- hald hefst klukkan 19:00 og að venju er boðið upp á glæsilegt hlaðborð af skötu, saltfiski, plokkfiski og meðlæti og rómuð skemmtidagskrá að venju flutt af fólki sem leggur Skötumessunni lið. Þar sem aðsóknin fór langt fram úr áætlun í fyrra verður magn seldra miða í forsölu takmarkað við 450 manns. Seljist þeir miðar upp verður engin sala við dyrnar eins og áður. Forsalan er því trygg- ing fyrir sæti á Skötumess- unni. Vegna COVID-19 hefur verið haft samband við sóttvarnaryfir- völd og þau verða með í ráðum við endanlega framkvæmd fram- kvæmd kvöldsins en nú er leyfilegt að vera með samkomu fyrir allt að 500 manns. Boðið verður upp á borð fyrir þá sem vilja meira pláss. Það verður þó takmarkaður fjöldi. Skólamatur sér um matinn eins og áður og skemmtidagskráin saman- stendur af hefðbundnum atriðum. Dói og Baldvin sjá um harmonikku- leik á meðan fólk er að koma sér fyrir og síðan rekur hver dagskrár- liðurinn sig af öðrum og verður það auglýst nánar þegar nær dregur. Þá verða styrkir afhentir og að lokum verða stuttir tónleikar eins og áður. Skötumessan haldin í Gerðaskóla í júlí Skötumessan hefur árlega veitt styrki til ýmissra málefna. Hér eru styrkþegar á síðasta ári. Öll blöðin frá 1980 og til dagsins í dag á timarit.is Vantar þig eitthvað gamalt og gott að lesa í sumarfríinu? VILT ÞÚ VERÐA EINN AF ÞEIM? Árlega mæta rúmlega 450 manns á Skötumessuna og borða til blessunar eins og dómkirkjupresturinn orðaði það svo skemmtilega á Skötumessunni. Við leggjum öll saman í þetta verkefni og erum líka öll viðstödd þegar styrkjunum verður útdeilt. Styrkir kvöldsins fara til þeirra sem eiga um sárt að binda í þeirri aðstöðu sem uppi er í þjóðfélaginu. Ég spyr því þig lesandi góður. Vilt þú ekki verða einn af þeim sem leggja fötluðum og þeim sem eru hjálpar þurfi lið. Vinnufélagar og kaffifélagar víða á Suðurnesjum, nú er tækifæri til þess og við erum öll í sama liðinu og finnum hvað þetta kvöld getur skiptir miklu máli fyrir þá sem við styðjum. Verð aðgöngumiða er 5.000 krónur. Það hjálpar til að greiða aðganginn inn á reikning Skötumessunnar fyrir- fram eins og vant er en reikningsnúmerið er: 0142-05-70506, kt. 580711-0650 Skötumessan er í annað skipti haldinn í sameiginlegu sveitarfélagi og því sérstakt tækifæri fyrir íbúa Suður- nesjabæjar að gera Skötumessuna að sinni árlegu bæjar- skemmtun, mæta vel og styðja við verkefni í heima- byggð. Hlökkum til að sjá ykkur sem flest í Gerðaskóla mið- vikudaginn 22. júlí, mæta tímanlega og finna sér sæti og hlusta á harmonikkutóna frá Dóa og Baldvin fyrir kvöldverðinn. Skötumessan er áhugafélag um velferð fatlaðra. Helstu stuðningsaðilar Skötumessunnar eru Fisk- markaður Suðurnesja, Skólamatur ehf, Icelandair Cargo, Suðurnesjabær o. fl. 12 // VíKuRFRÉttiR á SuÐuRnESjum í 40 áR Fimmtudagur 18. júní 2020 // 25. tbl. // 41. árg.

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.