Víkurfréttir - 18.06.2020, Page 13
AUGLÝSING VEGNA FORSETAKOSNINGA 27 . JÚNÍ 2020
KJÖRSKRÁ OG KJÖRSTAÐIR
Í SUÐURNESJABÆ
Kjörskrá í Suðurnesjabæ vegna forsetakosninga sem fram fara þann
27. júní 2020, liggur frammi almenningi til sýnis í ráðhúsunum í Garði
og Sandgerði frá 16. júní og fram að kjördegi.
Kjósendur eru kvattir til að kynna sér hvort nöfn þeirra séu á kjörskrá.
Athugasemdum við kjörskrá skal beint til bæjarstjórnar.
Kjörfundur fyrir kjósendur skráða í póstnúmerum 250 og 251 Garður
er í Gerðaskóla.
Kjörfundur fyrir kjósendur skráða í póstnúmerum 245 og 246 Sandgerði
er í Sandgerðisskóla.
Sérstök athygli er vakin á að kjósandi sem ekki hefur meðferðis persónu-
skilríki getur átt von á að fá ekki að greiða atkvæði.
KJÖRSTAÐIR OPNA KL. 09 :00 OG LOKA KL. 22 :00 .
Yfirkjörstjórn Suðurnesjabæjar
Kiwanisklúbburinn Keilir afhenti í
síðustu viku nýjar birgðir af Ævari
bangsa til Brunavarna Suðurnesja.
Þessi styrkur er fastur liður í starfi
Kiwanisklúbbsins og Ævar bangsi
hefur reynst dýrmætur aðstoðar-
maður sjúkraflutningamanna við
að hugga lítil hjörtu.
Á myndinni hér að ofan er Ævar
bangsi aldeilis í flottum félags-
skap. Á myndinni má sjá Einar Má
Jóhannesson og Ingólf Ingibergs-
son frá Kiwanisklúbbnum Keili að
afhenda bangsana. Þeir Jón Guð-
laugsson, slökkviliðsstjóri, Sigurður
Skarphéðinsson, varaslökkviliðs-
stjóri, Herbert Eyjólfsson, varðsstóri,
og Guðmundur Jónsson, slökkviliðs-
og sjúkraflutningarmaður, taka við
böngsunum.
Ókeypis
aðgangur
á Rokksafn
Íslands og
í Duus
Safnahús
Frítt er fyrir alla inn á Rokk-
safn Íslands og Duus Safnahús
í Reykjanesbæ til 31. ágúst nk.
Á Rokksafninu er að finna
tímalínu um sögu íslenskrar tón-
listar á Íslandi allt frá árinu 1835
til dagsins í dag. Til viðbótar við
tímalínuna eru tvær sérsýningar:
„Einkasafn Poppstjörnu“ og „Þó
líði ár og öld“.
Gestum Rokksafnsins býðst
líka að tilla sér í kvikmyndasal
þar sem sýndar eru ýmsar heim-
ildarmyndir um íslenska tónlist.
Á safninu má líka finna hljóðbúr
og geta gestir reynt á listræna
hæfileika sína og prófað raf-
magnstrommusett, gítar, bassa
og sungið í sérhönnuðum söng-
klefa.
Fjórar nýjar sýningar opnuðu
í Duus Safnahúsum á dögunum.
Listasafn Reykjanesbæjar opnaði
tvær sýningar og Byggðasafn
Reykjanesbæjar opnaði jafn-
framt tvær sýningar.
Nýjar birgðir af Ævari bangsa
Fimmtudagur 18. júní 2020 // 25. tbl. // 41. árg.
VíKuRFRÉttiR á SuÐuRnESjum í 40 áR // 13