Víkurfréttir - 18.06.2020, Blaðsíða 14
Starfsemi Fjölsmiðjunnar á Suðurnesjum er ansi merkileg
og ekki síður nauðsynleg í nútímasamfélagi en hún var
stofnuð árið 2010. Stofnendur voru Rauði kross Íslands og
Suðurnesjadeild hans, Reykjanesbær, Vinnumálastofnun,
Verkalýðs- og sjómannafélag Keflavíkur og nágrennis og
Félag iðn og tæknigreina. Helstu markmið eru að hjálpa
ungu fólki á aldrinum 16 til 24 ára að finna sitt áhugavið,
öðlast starfsreynslu og auka þar með möguleika á þáttöku
í atvinnulífi eða komast í nám. Fleiri mannbætandi þætti
mætti nefna meðal markmiða en um tvöhundruð ungmenni
hafa verið undir handleiðslu Fjölsmiðjunnar frá opnun og
nú nýlega voru tvö ungmenni að ljúka stúdentsprófi frá
Fjölbrautaskóla eftir að hafa hafið þann veg í Fjölsmiðjunni.
Í Fjölsmiðjunni er Kompan sem er nytjaverslun og nýjasta
afurðin er reiðhjólaverkstæði.
Þorvarður Guðmundsson stýrir
málum á staðnum og við hittum
hann í Fjölsmiðjunni og ræddum
við hann um starfsemina.
„Það er rosalega margt í gangi
hérna. Þetta er vinnuþróunarsetur
fyrir krakka sem hafa lent í óvirkni
eða dottið út af vinnumarkaði. Þeim
er vísað til okkar frá félagsþjónust-
unni og Vinnumálastofnun. Frá
upphafi hafa farið um 200 krakkar
hér í gegn. Þau eru tuttugu og tvö
hérna núna á aldrinum 16 til 24 ára.
Hér eru þau í þjálfun við að komast í
virkni og æfa sig á atvinnumarkaði.“
– Hver eru helstu verkefnin? Þið
rekið hérna verslun og eitthvað
fleira.
„Kompan er sýnilegi hlutinn af
okkar starfsemi. Þessi nytjamarkaður
hefur bara stækkað og stækkað. Það
eru mörg störf sem eru starfsþjálf-
unarstörf sem tengjast þessu, s.s. í
afgreiðslu og undirbúningi. Kompan
er það sem hefur haldið okkur á floti
og við njótum þess að fólk á Suður-
nesjum er mjög velviljað í okkar
garð. Við fáum mikið af góðum
munum sem við svo seljum. Þetta
eru munir sem eru að koma frá
fólki og fyrirtækjum. Fólk er farið að
hugsa út í það að það vilji ekki henda
hlutum og vill frekar gefa þeim fram-
haldslíf hjá einhverjum öðrum.“
– Hvaða munir eru þetta?
„Í rauninni allt sem tengist heimili
nema fatnaður. Fatnaður og skór
fer til Rauða krossins en við erum
með húsmuni og húsgögn. Hér eru
skrautmunir, geisladiskar, plötur
og bækur en við seljum helling af
bókum. Við fáum ofboðslega mikið
af góðum vörum. Barnakerrur, reið-
hjól og margt fleira. Við erum með
sendibíl í gangi allan daginn alla
daga að ná í vörur og keyra heim
fyrir fólk.“
Reiðhjólaverkstæði fer vel
af stað hjá Fjölsmiðjunni
Smelltu á myndskeiðið til að horfa og hlusta
Páll Ketilsson
pket@vf.is
14 // VíKuRFRÉttiR á SuÐuRnESjum í 40 áR
Fimmtudagur 18. júní 2020 // 25. tbl. // 41. árg.