Víkurfréttir


Víkurfréttir - 18.06.2020, Page 22

Víkurfréttir - 18.06.2020, Page 22
Stjórn Reykjaneshafnar hefur falið hafnarstjóra að yfirfara þær tilögur sem fram koma í skýrslu rannsóknar samgönguslysa vegna strands flutninga- skipsins Fjordvik í Helguvík í nóvember 2018. Í skýrslunni kemur fram að mannleg mistök hafi verið ástæða þess að skipið strandaði er það var leið til hafnar í Helguvík en endaði vitlausu megin við hafnargarðinn með þeim af- leiðingum að það strandaði. Í skýrslu rannsóknarnefndarinnar kemur fram að rekja megi mistökin til ófullnægjandi undirbúnings og samráðs hafn- sögumanns og skipstjóra varðandi siglingu inn til hafnar. „Orsök strandsins eru mistök við stjórn skipsins sem rekja má til ófull- nægjandi undirbúnings og samráðs milli hafnsögumanns og skipstjóra varðandi siglingu þess. Þrátt fyrir að hafnsögumaður og skipstjóri hafi farið yfir væntanlega siglingu virðist sem þeir hafi ekki haft sömu sýn á hvernig siglt skyldi inn til hafnarinn- ar né hvernig bregðast skyldi við ef frá þyrfti að hverfa.“ Rannsóknarnefndin leggur fram tillögur til aukins öryggis til skip- stjóra og útgerðar og að yfirstjórn sé alveg skýr svo ekki verði mis- skilingur. Í skýrslunni eru tillögur til hafnar- yfirvalda þar sem nefndin leggur ríka ástæðu til að hafnsögumaður skuli ekki taka yfir siglingu skips nema viðeigandi upplýsingar liggi fyrir frá skipstjóra eða öðrum vakthafandi yfirmanni, t.d. um stöðu skips, gang og hraða. Hann skuli líka m.a. afla sér upplýsinga um viðkomandi skip, ástand þess, færni og takmarkanir og skipuleggja siglingu og þátt hans í henni í samráði við skipstjóra og yfirmenn í brúnni með tilliti til veð- uraðstæðna. Þá skuli hafnsögumaður sjá til þess að yfirstjórn sé alveg skýr og á ótvíræðan hátt svo komið sé í veg fyrir misskiling. Skipið var að koma frá Færeyjum og var með mikið af sementi um borð. Fjórtán manna áhöfn var í skipinu og bjargaði áhöfn þyrlu Landhelgisgæslunnar þeim öllum við mjög erfiðar aðstæður eins og kom fram í viðtali Víkurfrétta við Guð- mund Ragnar Magnússon, sigmann hjá Landhelgisgæslunni, en hann þótti hafa unnið mikið þrekvirki að koma öllum mönnunum um borð í samvinnu við félaga sína í þyrlunni. „Stjórn Reykja nes hafn ar þakk ar fram komna skýrslu og þau vönduðu vinnu brögð sem þar koma fram. Sam kvæmt skýrsl unni er ekki hægt að rekja strandið til eins ákveðins at- viks held ur sam spil margra smærri þátta og mis skiln ings í sam skipt- um hafn sögu manns og skip stjóra skips ins. Í skýrsl unni eru til lög ur til úr bóta í sam skipt um við slík ar aðstæður, jafnt til skip stjóra, út- gerðar og hafn ar. Stjórn Reykja nes- hafn ar fel ur hafn ar stjóra að yf ir fari þær til lög ur og nýta til að skerpa á verklagi hafn ar inn ar í framtíð- inni. Samþykkt sam hljóða,“ segir í afgreiðslu stjórnar hafnarinnar. Hafnarstjóra falið að yfirfara tillögur rann- sóknarnefndarvegna strands Fjordvik Fjordvik á strandstað í Helguvíkurhöfn, nokkrum dögum síðar var skipið dregið til Keflavíkurhafnar. Hilmar Bragi, ljósmyndari og fréttamaður VF, var með fyrstu mönnum á vettvang þegar Fjordvik strandaði í Helguvík. Þessi mynd er frá björgun skipverja í þyrlu Landshelgisgæslunnar. Skýrsla rannsóknar­ nefndar 22 // VíKuRFRÉttiR á SuÐuRnESjum í 40 áR Fimmtudagur 18. júní 2020 // 25. tbl. // 41. árg.

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.