Víkurfréttir - 18.06.2020, Page 36
Við athöfnina voru brautskráðir
109 nemendur af Háskólabrú,
78 atvinnuflugnemar og 22 ÍAK
styrktarþjáflarar. Sökum raskanna
á skólahaldi í vor frestast braut-
skráning nemenda úr ÍAK einka-
þjálfaranámi en útskrift þeirra fer
fram með nemendum úr verk- og
raunvísindadeild Háskólabrúar
Keilis í ágúst.
Jóhann Friðrik Friðriksson,
framkvæmdastjóri Keilis, flutti
ávarp og stýrði athöfninni, auk
þess sem Þorgrímur Þráinsson
flutti hátíðarræðu. Vegna aðgangs-
takmarkanna var athöfnin send út
í beinu streymi á samfélagsmiðlum
Keilis.
Tvöþúsundasti nemandinn
frá Háskólabrú Keilis
og hæsta meðaleinkunn
frá upphafi
Háskólabrú Keilis brautskráði
samtals 109 nemendur úr öllum
deildum. Berglind Kristjánsdóttir,
forstöðumaður Háskólabrúar,
stýrði útskrift og afhenti viður-
kenningarskjöl ásamt Margréti
Hanna, verkefnastjóra. Dúx
Háskólabrúar var Valdís Steinars-
dóttir með 9,73 í meðaleinkunn.
Er þetta hæsta meðaleinkunn af
Háskólabrú frá upphafi. Hún fékk
peningagjafir frá Arion banka
og Keili. Þá fékk Alexandra Rós
Jankovic menntaverðlaun Háskóla
Íslands fyrir góðan námsárangur
á Háskólabrú og eftirtektarverða
þrautseigju.
Harpa Ægisdóttir flutti ræðu
útskriftarnema.
Þau tímamót voru við þetta tæki-
færi að tvöþúsundasti nemandinn
útskrifaðist af Háskólabrú og féll sá
heiður Sjöfn Sigurbjörnsdóttur.
Eftir athöfnina hafa samtals
2.020 nemendur brautskrást af
Háskólabrú frá fyrstu útskrift skól-
ans árið 2008 og hafa langflestir
Keilir útskrifaði samtals 209 nemendur við hátíðlega athöfn í Hljómahöllinni í Reykjanesbæ, föstudaginn
12. júní 2020 og er þetta fjölmennasta brautskráning nemenda skólans frá upphafi. Samtals hafa nú
3.858 nemendur lokið námi við deildir skólans sem var stofnaður á Ásbrú í Reykjanesbæ í maí 2007.
36 // VíKuRFRÉttiR á SuÐuRnESjum í 40 áR
Fimmtudagur 18. júní 2020 // 25. tbl. // 41. árg.
Fjölmennasta útskrift í sögu Keilis
Dúx Háskólabrúar var Valdís Steinarsdóttir með 9,73 í meðaleinkunn. Er þetta hæsta meðaleinkunn af Háskólabrú frá upphafi.