Víkurfréttir


Víkurfréttir - 18.06.2020, Síða 49

Víkurfréttir - 18.06.2020, Síða 49
- Er einhver tónlist sem þú skammast þín fyrir að fíla, svona guilty pleasure? Ég myndi náttúrlega aldrei segja frá því ef ég skammaðist mín fyrir það – en ég fíla fullt af þjóðsöngvum. – Horfirðu mikið á sjónvarp og hvernig? Horfi mjög lítið á sjónvarp, horfi helst á fótbolta. Sem sagt lítið sem ekkert sjónvarp síðustu mánuði en annars hef ég gaman að heimilda- og fréttatengdu efni. – Hverju missirðu helst ekki af í sjónvarpinu? Man. Utd.-leikjum – Besta kvikmyndin? Það var alltaf Pulp Fiction en þegar Boheimans Rapsody kom út held ég að ég hafi horft á hana u.þ.b. tólf sinnum áður en ég hvíldi hana. – Hver er uppáhaldsbókin þín og/eða rithöfundur? Er lítill bókamaður en ævisagan: „Mér leggst eitthvað til“ er mögnuð saga! – Hvað gerir þú betur en allir aðrir á þínu heimili? Raða í uppþvottavélina! Rýmis- greindin kemur sér vel þar. – Hvert er snilldarverkið þitt í eldhúsinu? Lasagne sem hefur fengið nafnið pabba lasagne. – Hvernig er eggið best? Með beikoni ... – Hvað fer mest í taugarnar á þér í fari annarra? Níska. – Uppáhaldsmálsháttur eða til- vitnun: „Dýr mundi Hafliði allur.“ – Hver er elsta minningin sem þú átt? Ég er með ótrúlegt minni og margar minningar svo það er ómögulegt að átta sig á hver er elsta. – Orð eða frasi sem þú notar of mikið: Nota of oft „sama og þegiðu“ þegar ég afþakka eitthvað. – Ef þú gætir farið til baka í tíma, hvert færirðu? Væri til í að prófa 70‘s en að fara til baka í eigin lífi væri ég til í að upplifa 26. maí 1999 aftur. – Hver væri titillinn á ævisögu þinni? Rétt að byrja. – Þú vaknar einn morgun í líkama frægrar manneskju og þarft að dúsa þar einn dag. Ætli ég yrði ekki nokkuð vinsæll ef ég myndi vakna í líkama Trump og segði af mér. – Hvaða þremur persónum myndir þú bjóða í drauma- kvöldverð? Eric Cantona, Anthony Hopkins og að sjáfsögðu mömmu. – Hvernig hefur þú verið að upplifa árið 2020 hingað til? Skrítið, fluttist búferlum með fjöl- skyldunni til þess að sjá um ferða- þjónustu en fengum COVID í fangið stuttu eftir flutning. Vorum nánast einangruð frá samfélaginu í tvo mánuði en hins vegar hefur allt verið að snúast og landið að lifna við. Gríðarlega spennandi tímar fram- undan. – Er bjartsýni fyrir sumrinu? Mjög mikil, á Sólheimum ríkir bjart- sýnin yfir og allt um kring og það smitar út frá sér í alla íbúa og gesti. Staðurinn fagnar líka 90 ára afmæli í sumar með til- heyrandi dagskrá og það fær mann til þess að hlakka til og allir eru velkomnir. – Hvað á að gera í sumar? Vera í náttúrunni, sveitasælunni á Sólheimum og taka á móti Suður- nesjafólki og landsmönnum öllum sem ætla að sækja staðinn heim. Ég ætla líka á tólf tónleika í sumar sem allir fara fram á Sólheimum. – Ef þú fengir gesti utan af landi sem hafa aldrei skoðað sig um á Suðurnesjum. Hvert myndir þú fara með þá fyrst og hvað myndir þú helst vilja sýna þeim? Ætli ég myndi ekki rúnta með þau um Reykjanesskagan, grípa Villa á Pulsuvagninum áður en það kæmi að rúsínunni í pulsuendanum sem væri að fylgjast með sólsetrinu á Garðskaga. – Ef þú gætir hoppað upp í flugvél og réðir hvert hún færi, þá færirðu ... Í augnablikinu væri bara frábært að komast í flugvél, færi þá kannski bara í innanlandsflug en miðað við eðlilegt árferði á ég alveg Asíu eftir og væri til í að byrja á Japan. „Framundan eru kkert nema skemmtileg verkefni sem öll snúast um að gleðja aðra. Mögulega er hægt að setja sig í þessi spor með því að kíkja inná instagram síðuna: #solheimareco sem Helga unnusta mín heldur utan um og deilir með þjóðinni okkar daglega lífi í þessu blómstrandi samfélagi sem við búum í.“ Netspj@ll VíKuRFRÉttiR á SuÐuRnESjum í 40 áR // 49

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.