Víkurfréttir - 18.06.2020, Blaðsíða 49
- Er einhver tónlist sem þú
skammast þín fyrir að fíla,
svona guilty pleasure?
Ég myndi náttúrlega aldrei segja frá
því ef ég skammaðist mín fyrir það –
en ég fíla fullt af þjóðsöngvum.
– Horfirðu mikið á sjónvarp og
hvernig?
Horfi mjög lítið á sjónvarp, horfi
helst á fótbolta. Sem sagt lítið sem
ekkert sjónvarp síðustu mánuði en
annars hef ég gaman að heimilda- og
fréttatengdu efni.
– Hverju missirðu helst ekki af í
sjónvarpinu?
Man. Utd.-leikjum
– Besta kvikmyndin?
Það var alltaf Pulp Fiction en þegar
Boheimans Rapsody kom út held
ég að ég hafi horft á hana u.þ.b. tólf
sinnum áður en ég hvíldi hana.
– Hver er uppáhaldsbókin þín
og/eða rithöfundur?
Er lítill bókamaður en ævisagan:
„Mér leggst eitthvað til“ er mögnuð
saga!
– Hvað gerir þú betur en allir
aðrir á þínu heimili?
Raða í uppþvottavélina! Rýmis-
greindin kemur sér vel þar.
– Hvert er snilldarverkið þitt í
eldhúsinu?
Lasagne sem hefur fengið nafnið
pabba lasagne.
– Hvernig er eggið best?
Með beikoni ...
– Hvað fer mest í taugarnar á
þér í fari annarra?
Níska.
– Uppáhaldsmálsháttur eða til-
vitnun:
„Dýr mundi Hafliði allur.“
– Hver er elsta minningin sem
þú átt?
Ég er með ótrúlegt minni og margar
minningar svo það er ómögulegt að
átta sig á hver er elsta.
– Orð eða frasi sem þú notar of
mikið:
Nota of oft „sama og þegiðu“ þegar
ég afþakka eitthvað.
– Ef þú gætir farið til baka í
tíma, hvert færirðu?
Væri til í að prófa 70‘s en að fara til
baka í eigin lífi væri ég til í að upplifa
26. maí 1999 aftur.
– Hver væri titillinn á ævisögu
þinni?
Rétt að byrja.
– Þú vaknar einn morgun í
líkama frægrar manneskju og
þarft að dúsa þar einn dag.
Ætli ég yrði ekki nokkuð vinsæll ef
ég myndi vakna í líkama Trump og
segði af mér.
– Hvaða þremur persónum
myndir þú bjóða í drauma-
kvöldverð?
Eric Cantona, Anthony Hopkins og
að sjáfsögðu mömmu.
– Hvernig hefur þú verið að
upplifa árið 2020 hingað til?
Skrítið, fluttist búferlum með fjöl-
skyldunni til þess að sjá um ferða-
þjónustu en fengum COVID í
fangið stuttu eftir flutning. Vorum
nánast einangruð frá samfélaginu í
tvo mánuði en hins vegar hefur allt
verið að snúast og landið að lifna við.
Gríðarlega spennandi tímar fram-
undan.
– Er bjartsýni fyrir sumrinu?
Mjög mikil, á Sólheimum ríkir bjart-
sýnin yfir og allt um kring og það
smitar út frá sér í alla íbúa og
gesti. Staðurinn fagnar líka 90
ára afmæli í sumar með til-
heyrandi dagskrá og það fær
mann til þess að hlakka til og
allir eru velkomnir.
– Hvað á að gera í sumar?
Vera í náttúrunni, sveitasælunni á
Sólheimum og taka á móti Suður-
nesjafólki og landsmönnum öllum
sem ætla að sækja staðinn heim. Ég
ætla líka á tólf tónleika í sumar sem
allir fara fram á Sólheimum.
– Ef þú fengir gesti utan af landi
sem hafa aldrei skoðað sig um
á Suðurnesjum. Hvert myndir
þú fara með þá fyrst og hvað
myndir þú helst vilja sýna þeim?
Ætli ég myndi ekki rúnta með þau
um Reykjanesskagan, grípa Villa á
Pulsuvagninum áður en það kæmi
að rúsínunni í pulsuendanum sem
væri að fylgjast með sólsetrinu á
Garðskaga.
– Ef þú gætir hoppað upp í
flugvél og réðir hvert hún færi,
þá færirðu ...
Í augnablikinu væri bara frábært
að komast í flugvél, færi þá kannski
bara í innanlandsflug en miðað við
eðlilegt árferði á ég alveg Asíu eftir
og væri til í að byrja á Japan.
„Framundan eru kkert nema skemmtileg
verkefni sem öll snúast um að gleðja aðra.
Mögulega er hægt að setja sig í þessi spor
með því að kíkja inná instagram síðuna:
#solheimareco sem Helga unnusta mín
heldur utan um og deilir með þjóðinni
okkar daglega lífi í þessu blómstrandi
samfélagi sem við búum í.“
Netspj@ll
VíKuRFRÉttiR á SuÐuRnESjum í 40 áR // 49