Sjómannadagsblaðið - 07.06.2020, Page 8
8 s j ó m a n n a d a g s b l a ð i ð j ú n í 2 0 2 0
„Það er mjög mikilvægt að fylgja
þeim sem lent hafa í óhöppum vel
eftir, alveg frá því að þeir slasast
eða veikjast og þangað til þeir fara
aftur til vinnu,“ segir Guðni.
„Það þarf að vísa þeim sem hafa
af einhverjum ástæðum orðið
óvinnufærir áfram í kerfinu, finna
réttu úrræðin til að ná bata og
tryggja að þeir komist aftur í
vinnu, hvort sem það er á sjó eða
við annað. Við sjá í dag fleiri snúa
aftur til vinnu eftir slys eða óhöpp
en fyrir 10-15 árum. Tilfinningin er
að stærri örkumlandi slysum hefur
fækkað, en betur má ef duga skal og
það þarf alltaf að vera á tánum
varðandi öryggismál sjómanna. Hér
má aldrei slaka á.“
Annar mikilvægur þáttur í auknu
heilsufari er leiðbeiningar og
markmiðasetning. Með reglulegum
heilsufarsmælingum, blóð- og
þvagprufum, sjónmælingum,
heyrnarmælingum, blóðþrýstings-
mælingum og fleira skapast einnig
vettvangur til að leiðbeina áhafnar-
meðlimum um það sem betur má fara
í mataræði, hreyfingu, svefnvenjum
og öðru sem er til þess fallið að bæta
heilsu einstaklinga. Það segir sig
sjálft að sjómenn hafa ekki sama
aðgang að líkamsræktarstöðvum,
sundi eða útivist á meðan þeir dvelja
á hafi úti nema í litlum mæli en Guðni
segir að þess heldur sé mikilvægt
að setja sér skýr markmið og fá
leiðbeiningar, til dæmis um æfingar
sem hægt er að gera út á sjó og hvetja
menn til að nýta þá aðstöðu sem er
um borð í sumum skipum.
Hraustari en áður
Spurður hvort munur sé á
heilsufari sjómanna í dag og
fyrir 20 árum, þegar þau hófu að
veita þessa þjónustu, segir Guðni
að almennt séð séu sjómenn
hraustari en áður. Hann tekur þó
fram að skortur sé á almennum
rannsóknum þess efnis, en þetta
mat byggi hann á reynslu sinni og
þekkingu.
„Sjómennskan í dag er ekki sú
sama og hún var fyrir 20 árum og
hvað þá þegar horft er lengra aftur
í tímann,“ segir Guðni.
„Það virðist vera að hraustari
menn, ef þannig má taka til
orða, veljist á sjó nú. Það kann
að skýrast að miklu leyti af því
að sjómönnum hefur fækkað
samhliða betri skipum og betri
tækjabúnaði um borð auk þess
sem atvinnulífið er fjölbreyttara
nú en áður. Hér á árum áður fóru
margir á sjó án þess að eiga um
marga aðra kosti að velja en nú
eru frekar einstaklingar um borð
sem velja sér þetta starf umfram
önnur. Sjómannastéttin er líka
að eldast því nú geta menn verið
lengur á sjó en áður var vegna
breytinga á eðli vinnunnar.“
Mikið álag á stoðkerfið
Guðni segir að enn beri þó nokkuð
á álagsmeiðslum um borð í skip-
um, jafnvel þó svo að tækjabún-
aður og annar útbúnaður sé betri
en áður. Sjómennska er og verður
áfram líkamlega erfitt starf.
„Það er enn mikið álag á
stoðkerfi líkamans, svo sem vöðva
og liði,“ segir Guðni.
„Útbúnaður um borð hefur tekið
miklum framförum og líkamlegt
erfiði hefur í mörgum tilvikum
minnkað. Fólk hefur líka lært
að beita sér öðruvísi en áður við
erfiðisvinnu, til dæmis við að
lyfta þungum hlutum, auk þess að
hugsa meira um öryggi og forvarn-
ir. Þrátt fyrir þetta allt saman er
enn álag á stoðkerfið. Það kunna
að vera ýmsar skýringar á því,
sumir verkferlar fela enn í sér
erfiða líkamlega vinnu, sjómenn
standa mikið við vinnu sína, beita
sér á ákveðinn hátt, vinna við
mikinn hávaða, svefninn er ekki
reglulegur og þannig mætti áfram
telja. Þarna eigum við enn mikið
verk eftir óunnið.“
Andlegt heilbrigði mikilvægt
Guðni vekur máls á því að á
undanförnum árum hafi einnig
orðið mikil vitundarvakning um
andlegt heilbrigði sjómanna.
„Það má í einföldu máli segja
að vandamálið hafi verið tvíþætt
á árum áður, annars vegar að
menn létu ekki vita af andlegum
veikindum sínum, t.d. þunglyndi
eða kvíða, og hins vegar að
útgerðirnar voru ekki með úrræði
í boði þegar slík mál komu upp,“
segir Guðni.
„Þetta hefur breyst mikið. Menn
eru ófeimnari við að tjá sig um
þessi mál, enda upplifa sjómenn
þunglyndi og kvíða eins og aðrir.
Þeir eru mikið frá fjölskyldum
sínum, svefninn er óreglulegur og
það eru fleiri þættir sem hafa áhrif
á andlega heilsu. Að sama skapi
ríkir meiri skilningur á þessum
málum, bæði hjá útgerðunum
sjálfum og á meðal skipstjórnar-
manna, og almennt vilja þessir
aðilar leggja sig fram við að bjóða
upp á lausnir og úrræði þar sem
sjómenn geta fengið viðeigandi
aðstoð. Það er mikil framför og
ekki síður mikilvægt en að sinna
líkamlegri heilsu.“ - gfv
Uppfylla ekki alþjóðlegar kröfur
n Sem fyrr segir hafa ekki verið gerðar ítarlegar rannsóknir á heilsufari sjómanna á liðnum árum. Svanlaug gerði þó
rannsókn á þyngd íslenskra sjómanna á fiskiskipum sem eru 500 brúttótonn og stærri árið 2012. Rannsóknina gerði hún
vegna mastersritgerðar sinnar þegar hún, fyrst Íslendinga, lauk prófi í sjómannaheilsu (e. Master of Maritime Health) frá
Háskólanum í Cadiz á Spáni.
Rannsókn Svanlaugar leiddi í ljós að 6% íslenskra sjómanna uppfylltu ekki kröfur sem gerðar voru á þessum tíma
um atgervi sjómanna, þar sem þeir voru of þungir (með BMI-stuðul yfir 35). Í flestum löndum í kringum okkur, til dæmis
í Noregi og Danmörku, hafa yfirvöld innleitt staðla í lög og reglugerðir um sjómennsku. Nær fjórðungur sjómanna var í
offituhópi þegar horft var til BMI-stuðuls. Þó var tekið fram að BMI-stuðullinn endurspeglaði ekki endilega raunverulega
líkamsfitu, þar sem margir sjómenn væru vöðvamiklir. Aðeins 25% þeirra sem tóku þátt í rannsókninni voru í kjörþyngd.
Þegar tölurnar voru bornar saman við sambærilegar rannsóknir erlendra aðila kom þó í ljós að ofþyngd er vaxandi
vandamál bæði á Íslandi og í öðrum löndum. Þá var einnig vikið að mataræði um borð í skipum, sem skýrir að hluta þá
þróun sem átt hafði sér stað, auk þess sem margar áhafnir ráku sínar eigin sjoppur um borð í skipum. Rannsóknin leiddi
einnig í ljós að þeir sjómenn sem störfuðu á átta tíma vöktum (í stað sex tíma vakta) voru líklegri til að nýta líkams-
ræktartæki um borð þar sem þeim var til að dreifa.
Lausleg yfirferð Sjómannadagsblaðsins gefur til kynna að á þessu hafi orðið breyting á liðnum árum, þá sérstaklega
þegar kemur að mataræði um borð í skipum. Framþróun í mataræði á landi hefur að einhverju leyti skilað sér í eldhús
skipanna; hugað er að kolvetnisminni mat og hollara fæði almennt.
Útbúnaður um borð hefur
tekið miklum framförum
og líkamlegt erfiði hefur í
mörgum tilvikum minnkað.
Fólk hefur líka lært að
beita sér öðruvísi en áður
við erfiðisvinnu.
guðni segir að fyrir utan aukna
áherslu á líkamlegt heilbrigði hafi
á undanförnum árum einnig orðið
mikil vitundarvakning hvað varði
andlegt heilbrigði sjómanna.
Mynd/Hreinn Magnússon
Á síðustu 30 árum hefur Hampiðjan framleitt og selt yfir þúsund Gloríur til útgerða í 28 löndum.