Sjómannadagsblaðið - 07.06.2020, Page 22
22 s j ó m a n n a d a g s b l a ð i ð j ú n í 2 0 2 0
líklega einn elsti gufuknúni
hvalveiðibátur heims
- Vonir bundnar við að Hvalur 6 og 7 verði hluti hvalveiðisafns
hvalveiðiskipin fjögur í eigu hvals hf. eru svo sannarlega engir unglingar lengur. tvö skip-
anna, hin norsksmíðuðu hvalur 8 og hvalur 9, eru þó í fullkomnu lagi og tilbúin til veiða
með þeim undirbúningi sem ævinlega þarf að klára áður en nýtt úthald hefst. hin skipin tvö,
hvalur 6 og hvalur 7, bresk að uppruna, hafa ekki verið gerð út frá því nokkrum árum áður en
útsendarar sea shepherd sökktu þeim við bryggju árið 1986. Þau munu aldrei fara á sjó framar
þótt fullyrt sé að í sjálfu sér sé því ekkert til fyrirstöðu enda voru gufukatlarnir, mikilvægustu
hlutir skipanna, í lagi og gufuvélarnar gangsettar á ný eftir að þau voru hífð af hafsbotni.
Þ að þykir þó ekki svara kostnaði að gera þau haffær því markaðsaðstæður eru ekki
fyrir hendi auk þess sem Hvalur 8 og
9 nægja vel til að sækja úthlutaðan
kvóta. Meira er horft til þess að
skipin verði hluti hvalveiðisafns sem
hugur margra stendur til að verði að
veruleika.
Engin stórhveli voru veidd hér við
land í fyrra og svo verður heldur ekki
í sumar, eins og fram kom í Morgun-
blaðinu í apríl í viðtali við Kristján
Loftsson, forstjóra félagsins. Sagði
hann mikinn opinberan stuðning við
greinina í Japan og flóknar innflutn-
ingsreglur þar koma í veg fyrir að
veitt yrði í ár. Að sögn Kristjáns koma
gildandi nálægðartakmarkanir vegna
COVID-19 auk þess í veg fyrir að
hægt verði að stunda afurðavinnslu
í sumar.
Langskemmtilegasti vinnustaðurinn
Halldór Randver Lárusson, grafískur
hönnuður hjá Íslandshótelum,
starfaði á tuttugu vertíðum hjá Hval
hf. í verksmiðjunni í Hvalfirði. Hann
mætti fyrst síðsumars 1979 og segir
engan vinnustað á ferlinum hafa
komist með hælana þar sem Hvalur
hefur tærnar hvað skemmtilegheitin
varði.
„Hvalaverkun er mikil erfiðisvinna
og þau eru nokkur verkin sem þú
vildir næstum deyja til að komast
hjá, en samt er allt andrúmsloftið,
stemningin í látunum, vinskapurinn
og fjörið það sem stendur upp úr í
kringum þetta allt. Ég hefði ekki verið
í hvalstöðinni í tuttugu sumur og
haust ef mér hefði leiðst þessi vinna,
það get ég sko alveg sagt þér,“ segir
Halldór.
Á þessum árum þegar vertíðirnar
gengu sinn vanagang var fremur
langt upp í Hvalfjörð, enda vegurinn
þangað bæði mjór og ómalbikaður.
Starfsfólk bjó því á staðnum í
bröggunum sem herinn skildi eftir
eða öðrum húsakosti sem fyrirtækið
reisti.
Bátsverjar voru guðir sem
ekki mátti horfa á
„Þegar maður kom upp í Hvalfjörð
til að vinna hafði maður ekkert til
Reykjavíkur að gera fyrr en að vertíð
og frágangi loknum. Maður fór miklu
frekar til Akraness ef maður ætlaði
að skemmta sér aðeins áður en næsta
vakt hæfist,“ segir Halldór, sem getur
þess að rúmlega eitt hundrað manns
hafi starfað í hvalstöðinni við verkun,
viðhald, viðgerðir, matseld og fleira
auk áhafna hvalveiðibátanna, þar
sem eru tólf á bát.
„Þeir á bátunum voru guðir sem
maður mátti helst ekki horfa á. Þeir
yrtu ekki á okkur landkrabbana
þegar við komum með víra, skutla
eða annað um borð. Maður gekk
bara niðurlútur, starði á dekkið svo
maður ræki ekki í þá augun. Síðan
var svo svakalega mikil samkeppni
milli skipstjóranna sem eru jafnframt
skyttur bátanna. Það skýtur enginn
hval nema skipstjórinn. Það myndi
ekki breytast þótt hann hitti ekki
neitt,“ segir Halldór og hlær.
Fyrsta íslenska
atvinnufyrirtækið í sinni grein
Hvalveiðar og nýting hvala hefur fylgt
mannskepnunni um aldir og einnig
Langreyður skorin í Hvalfirði 17. júlí 1986. Það ár
bannaði alþjóðahvalveiðiráðið allar hvalveiðar í at-
vinnuskyni og hafa deilur staðið um bannið frá þeim
tíma. íslendingar gengu úr ráðinu um tíma og svo
í það aftur 2002 með fyrirvara umum bannið. Hér
hófust vísindaveiðar á ný árið 2006.
Mynd/jean bazard (WikiMedia CoMMons)
Hvalur 8 gerður klár til veiða vorið 2009. Mynd/bV
hvalaverkun er mikil
erfiðisvinna og þau eru
nokkur verkin sem þú
vildir næstum deyja til að
komast hjá, en samt er allt
andrúmsloftið, stemningin
í látunum, vinskapurinn og
fjörið það sem stendur upp
úr í kringum þetta allt.