Sjómannadagsblaðið - 07.06.2020, Blaðsíða 32
32 S j ó M a N N a d a G S B l a ð i ð J Ú N Í 2 0 2 0
vinnslu. „Ég er svoddan stelpustrákur
í mér, ef það má orða það þannig. Ég
fer á rúntinn og niður á bryggju að gá
hvernig bátarnir eru að fiska. Það er
bara mitt eðli og mitt áhugasvið. Ég
er ekki í saumaklúbbi þó að ég væri
reyndar alveg til í að vera það.
Mér hefur bara ekki verið boðið.“
Leiðin á staðinn þar sem Alda
Agnes er í dag, við stjórnvölinn á
fiskvinnslu- og útgerðarfyrirtæki í
Grindavík lá samt um nokkra króka-
stigu. Þrjátíu og þriggja ára söðlaði
hún um og hóf nám við Háskólann á
Bifröst.
Valdi Grindavík
„Ég lærði þar viðskiptalögfræði en
ég var búin að vera nokkur ár áður
starfandi við Sparisjóð Þingeyrar-
hrepps eftir að ég hætti á sjó þegar
ég fór að eignast börnin mín og gat
eðli málsins samkvæmt ekki verið
lengur á sjó. Þá fór ég í vinnu sem
átti svona skratti vel við mig og
fannst hún mjög skemmtileg. Ákvað
að fara í þetta nám á Bifröst og svo
eftir námið aftur inn í sparisjóðinn,
sem hét þá Sparisjóður Vestfirðinga,
og var á fyrirtækjasviði þar.“
Síðan urðu sameiningar þegar
sá sparisjóður gekk inn í SpKef,
Sparisjóðinn í Keflavík, sem síðan
varð hluti af Landsbankanum eftir
hrun.
„Ég var fyrir vestan til 2010. Mað-
urinn minn fylgdi með Sléttanesinu
þegar það var selt suður og varð að
Hrafni GK, einu af frystiskipum Þor-
bjarnar, og hafði unnið fyrir sunnan í
einhver 11 ár. En þegar sparisjóðurinn
sameinaðist þeim í Keflavík opnaðist
möguleikinn á því að fá sig fluttan á
milli útibúa og þess vegna flutti ég
mig hingað suður til að við værum öll
á sama atvinnusvæðinu.“ Valið segir
hún að hafi staðið á milli Keflavíkur
og Grindavíkur. „Mín vinna var í
Keflavík og hans hér í Grindavík, sem
við vorum svo lánsöm að velja og
erum búin að vera hér síðan 2010.“
Ári síðar hætti hún í bankanum en
segist samt ekki hafa stefnt aftur að
atvinnu tengdri sjávarútvegi. „En svo
var hér gamall félagi minn sem var að
opna fyrirtæki á Bíldudal og spurði
hvort ég væri til í að hjálpa við að reka
það fyrir vestan. Ég var ekki tilbúin
að flytja vestur, enda nýflutt hingað,
en sagði honum að ég skyldi koma
og vinna annan hvern mánuð. Þá
kom maðurinn minn í land og sá um
heimilið og ég fór vestur á meðan.“
Bauðst starf hjá Einhamri
Þetta segir hún að hafi staðið í
um fimm mánaða tímabil þar sem
hún var þrjá mánuði fyrir vestan
og þannig hafi hún aftur komist á
radarinn í sjávarútveginum. „Þá
komst nafnið mitt aftur á kortið. Eftir
það og á sama tíma fór ég að vinna
fyrir Voot beitu hér í Grindavík.“
Síðan hafi komið símtalið frá Stefáni
Kristjánssyni, eiganda Einhamars
Seafood, þar sem hann bað hana að
koma á fund með sér.
„Ég hélt að við værum að fara að
tala um allt annað. Ég hélt að við
værum að fara að ræða fjáröflun
fyrir körfuboltann hjá drengjunum
okkar. En þá bauð hann mér starf
hér sem viðskiptastjóri og það var ég
í eitt ár, en tók svo við sem fram-
kvæmdastjóri og hef nú verið það
síðastliðin sjö ár eða svo.“ Starfið
segir hún svo að sameini fullkom-
lega það nám sem hún hafi lagt á
sig um ævina, fiskvinnsluna annars
vegar og svo viðskiptalögfræðina.
Alda Agnes segir að taka megi
undir að saga hennar hljómi eins og
hún hafi endað á alveg hárréttum
stað. „Á tímabili var ég ekkert
endilega ánægð með söguþráðinn, frá
því ég fór að vestan hingað suður og
sameininguna við Landsbankann og
eitthvað svoleiðis. Ég var ekki alltaf
sátt við ferðalagið en ég gat ekki
endað á betri stað. Og ef einhver hefði
einhvern tímann sagt mér að ég gæti
á einum stað samnýtt þessa menntun
hefði mér í besta falli fundist það
hlægilegt. En þetta er náttúrlega
alveg frábært og að mér finnst,
algjörlega nauðsynlegt að vera með
þekkingu á því sem er að gerast hérna
niðri til að sjá um daglegan rekstur
á fyrirtæki á borð við Einhamar
Seafood.“
Réttu skrefin stigin
Starfið segir hún gefandi og
ofboðslega skemmtilegt. „Þetta
á mjög vel við mig. Við flytjum
mikið út með flugi og þessu fylgir
hraði og örar breytingar, þannig
að maður þarf að vera sveigjan-
legur.“
Heimsfaraldur COVID-19 segir
Alda dæmi um hluti sem bregðast
þurfi hratt við. Áhrifin á starf-
semina hafi ekki verið mikil til að
byrja með, enda hafi áfram verið
flogið með vörur, en í apríl hafi
verið farið að hægja á pöntunum
að utan. „Í þannig ástandi þarf
bara að vinna hlutina einn dag í
einu.“
Alda segir að gangurinn hjá
Einhamri Seafood í gegnum
tíðina hafi verið góður og vöxtur
fyrirtækisins hægur og bítandi.
„Og þannig viljum við hafa það og
þurfum ekkert að verða neitt stærri.
Við viljum bara vera viss um að
við séum að taka réttu skrefin og
stígum varlega til jarðar.“ - óká
Ég var ekki alltaf sátt við
ferðalagið en ég gat ekki
endað á betri stað. og ef
einhver hefði einhvern
tímann sagt mér að ég gæti
á einum stað samnýtt þessa
menntun hefði mér í besta
falli fundist það hlægilegt.
Þegar Öldu agnesi var boðið starf hjá Einhamri Seafood hélt hún að fundarboðið snerist um allt annað, fjáröflun fyrir drengja-
flokk í körfuboltanum í grindavík. Mynd/Hreinn Magnússon