Sjómannadagsblaðið - 07.06.2020, Page 41
Sendum íslenskum sjómönnum árnaðaróskir á sjómannadaginn
að sér að halda utan um að þau verk
væru unnin sem þurfti að vinna og
leggja verk í hendur öðrum í stað þess
að vinna þau sjálfur. „En mér finnst
mér hafa gengið mjög vel að fá fólk
til að vinna með mér og virkja það til
góðra verka og það er maður ánægður
með.“
Fann leiðir til að vera
með fjölskyldunni
Ef skynja má eftirsjá í einhverju hjá
Þorbergi er það kannski helst vegna
þess tíma sem hann hefur verið
að heiman, fjarri konu og börnum,
sérstaklega þegar þau voru ung. „Ég
hef náttúrlega verið líklega þrjá fjórðu
af tímanum að heiman frá mér síðan
ég stofnaði heimili. Það er ekki fyrr en
núna seinni árin sem fríin hafa verið
meiri, allt upp í fimm mánuðir á ári,
en framan af var útivistin meiri. Þá
voru þetta sáralítil frí sem maður fékk
og manni þótti mjög gott bara að fá
einn mánuð í frí á ári fyrstu árin.“
Á þeim tíma voru inniverur líka
stuttar og útsjónarsemi þurfti til að
finna stundir með fjölskyldunni. „Á
fyrstu árunum þegar ég var að byrja
á togurunum þurfti ég að útrétta fyrir
skipið í inniverunum. Þá höfðum við
það þannig að þau voru með mér í
bílnum konan og krakkarnir þegar
ég þeyttist um bæinn til að útrétta og
það var stór hluti samverunnar.“ Oft
var það þannig að skipið kom í höfn
að morgni og svo var lagt út aftur að
kvöldi næsta dags.
Reynir að rækta gamlan vinskap
Þorbergur var líka virkur í félagsstarfi
um tíma og var viðloðandi stjórn
stéttarfélags vélstjóra í rúman áratug
Þá höfðum við það
þannig að þau voru með
mér í bílnum konan
og krakkarnir þegar ég
þeyttist um bæinn til að
útrétta og það var stór hluti
samverunnar.
41 S j ó M a N N a d a G S B l a ð i ð J Ú N Í 2 0 2 0