Læknablaðið - jan. 2021, Side 3
L ÆK N A BL AÐIÐ 2021/107 3
▼
PP
-X
A
R-
IS
-0
02
6-
1
M
aí
2
02
0
X
A
R
I0
0
0
2
–
B
ilb
o*án lokusjúkdóms. **ROCKET AF. NOAC = Segavarnarlyf til inntöku sem ekki eru K-vítamínhemlar.
Heimildir: 1. Samantekt á eiginleikum lyfs fyrir Xarelto, október 2019. 2. Samantekt á eiginleikum
lyfs Pradaxa, Eliquis, Lixiana.
Verkun og öryggi Xarelto, saman-
borið við önnur NOAC lyf, hafa
verið rannsökuð í sjúklingaþýði:1, 2**
• með meiri hættu á heilaslagi
• þar sem 40 % voru með sykursýki
Verndaðu það sem er
dýrmætt sjúklingum með
gáttatif* og sykursýki
DÝRMÆTAR STUNDIR
Sagan er ekki endilega ný.
En þetta er sagan hans afa.
XARI0002_Xarelto_SPAF_A4_IS.indd 1 2020-05-19 12:30
Hlíðasmára 8
201 Kópavogi
sími 564 4104
Útgefandi
Læknafélag Íslands
Ritstjórn
Helga Ágústa Sigurjónsdóttir,
ritstjóri og ábyrgðarmaður
Berglind Jónsdóttir
Hulda María Einarsdóttir
Ingibjörg Jóna Guðmundsdóttir
Magnús Haraldsson
Margrét Ólafía Tómasdóttir
Ólafur Árni Sveinsson
Theódór Skúli Sigurðsson
Tölfræðilegur ráðgjafi
Sigrún Helga Lund
Ritstjórnarfulltrúi
Védís Skarphéðinsdóttir
vedis@lis.is
Blaðamaður
Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
gag@lis.is
Auglýsingar
Sólveig Jóhannsdóttir
solveig@lis.is
Umbrot
Margrét E. Laxness
melax@lis.is
Prófarkalestur
Aðalsteinn Eyþórsson
Upplag
1900
Prentun og bókband
Prenttækni ehf.
Vesturvör 11
200 Kópavogi
Áskrift
21.900,- m. vsk.
Lausasala
2190,- m. vsk.
© Læknablaðið
Læknablaðið áskilur sér rétt til að birta og
geyma efni blaðsins á rafrænu formi, svo sem
á netinu. Blað þetta má eigi afrita með neinum
hætti, hvorki að hluta né í heild, án leyfis.
Fræðigreinar Læknablaðsins eru skráðar
(höfundar, greinarheiti og útdrættir) í eftirtalda
gagnagrunna: Medline (National Library of
Medicine), Science Citation Index (SciSearch),
Journal Citation Reports/Science Edition, Scop-
us og Hirsluna, gagnagrunn Landspítala.
The scientific contents of the Icelandic Medical
Journal are indexed and abstracted in Medline
(National Library of Medicine), Science Citation
Index (SciSearch), Journal Citation Reports/
Science Edition and Scopus.
ISSN: 0023-7213
Læknablaðið
THE ICELANDIC MEDICAL JOURNAL
„Við töldum ekki rétt að læknar myndu draga
vagninn í þetta sinn þar sem aðrar stéttir, eins og
hjúkrunarfræðingar, börðust fyrir grundvallar-
breytingum. Það var því mikilvægt að þær fengju
að klára sitt áður en röðin kom að okkur,“ segir
Sigurveig Pétursdóttir, formaður samninganefnd-
ar Læknafélagsins, sem ritaði undir samning við
fjármála- og efnahagsráðherra þann 7. desember.
Samningurinn var samþykktur í atkvæða-
greiðslu sem lauk 17. desember. 758 læknar af
1103 greiddu honum atkvæði sitt og gildir hann
frá 1. mars 2019 til 31. mars 2023.
Um tvö ár eru frá því að kjarasamningurinn
rann sitt skeið á enda og segir hún mikla vinnu
hafa mætt þeim í haust að ná samningnum
saman. „Áherslan er í anda lífskjarasamningsins.
Hún er í anda þess að lyfta aðeins meira þeim
yngri,“ segir hún. „Höfuðósk félagsmanna var að
hækkunin færi á grunnlaunin og það gerir hún
að mestu leyti.“
Sigurveig er ánægð með samninginn. „En auð-
vitað vill maður alltaf meira. Við hefðum viljað
ýmislegt fyrir ýmsa sérhópa innan læknafélags-
ins.“ Hún nefnir til að mynda bætt vaktafyrir-
komulag hjá ákveðnum hópum og ákvæði fyrir
dreifbýlislækna. Hún segir þó mikinn sigur í að
læknar fái afturvirkar launagreiðslur sem greidd-
ar verði út mánaðamótin janúar og febrúar.
„Aldrei hefur slík afturvirkni verið eins og í
þetta skipti. Það er stórt réttlætismál,“ segir hún.
En hvað fékk samninganefnd ríkisins til að sam-
þykkja hana? „Sanngirni,“ telur Sigurveig. „Ég vil
meina að þetta hafi verið skynsöm samninganefnd
sem sá að þetta var rétt og sanngjarnt.“
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Sigurveig
semur um kjör lækna. „Þetta er þriðja lotan og
sú síðasta,“ segir hún þar sem hún situr með
blaðamanni Læknablaðsins á einni kaffistofu Foss-
vogsspítala daginn sem samningurinn var sam-
þykktur. „Ég tel gott að önnur sjónarmið komist
að,“ segir hún.
Sigurveig segir þessa þriðju lotu eins en samt
öðruvísi en hinar tvær. Hún nefnir þá fyrstu sem
hafi endað í verkfalli. Álagið hafi verið mikið
en samstaðan mjög góð. „Fjölmiðlar eltu okkur
á röndum og hringdu dag og nótt. Ýmsir aðrir
hringdu og vildu ráðleggja okkur og hvöttu okk-
ur til að semja. Það var allt öðruvísi en samt sama
prinsippið.“
Auk Sigurveigar sátu Björn Gunnarsson, Björn
Gunnlaugsson, Dóra Lúðvíksdóttir, Guðrún Ása
Björnsdóttir, Oddur Ingimarsson og Ragnheiður
Baldursdóttir í samninganefndinni. Einnig
Geir Karlsson sem kom inn fyrir Hrönn Garðars-
dóttur, Már Kristjánsson og Stefán Þórisson.
Sigurveig segir að hún hafi ekki búist við öðru
en að samningurinn yrði samþykktur. „Annars
blasti ekkert annað við en harðar aðgerðir. Mér
fannst samninganefndirnar ná það vel saman
í þetta skipti að ég sá ekki að það væri góður
kostur að fara í hörku,“ segir hún. „Ég tel að við
höfum komist þangað sem hægt var að komast.“
Læknar ráku lestina
sem skilaði sér
■ ■ ■ Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
„Ég er ánægð með samninginn,“ segir Sigurveig Pétursdóttir,
formaður samninganefndar lækna. 93% þeirra nærri 70% lækna sem kusu um nýjan
kjarasamning sinn samþykktu. Læknar höfðu verið samningslausir í tvö ár
Sigurveig Pétursdóttir er
formaður samninganefndar
Læknafélagsins. Þetta voru
þriðju samningarnir sem hún
kemur að og þeir síðustu, segir
hún. Mynd/gag