Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - Jan 2021, Page 22

Læknablaðið - Jan 2021, Page 22
22 L ÆK N A BL AÐIÐ 2021/107 R A N N S Ó K N doi 10.17992/lbl.2021.01.616 INTRODUCTION: The aim of this study is to encourage a discussion on patient safety and public responses to serious incidents in healthcare. Triggered by the first of its kind in Iceland, it addresses the question what characterizes attitudes towards criminal charges for a serious incident in healthcare. MATERIAL AND METHODS: In this comparative study we examined whether attitu- des towards culpability of healthcare professionals differed between cohorts from a random national panel and registered Icelandic nurses. Both groups were asked whether a healthcare professional should face criminal charges if causing serious harm or death due to human error, accident, neglect or intent. Answers were given on a Likert scale. RESULTS: When asked if a healthcare professional causing serious harm or death due to human error or by accident should face criminal charges, nurses were significantly more likely to somewhat or strongly disagree, while the panel was significantly more likely to somewhat or strongly agree. The difference was in- versely proportional to educational levels among the panel members. When asked whether a healthcare professional should be charged for causing serious harm or death due to neglect or intent, there was no significant difference between the groups. CONCLUSION: The results indicate that healthcare professionals, as represented by Icelandic nurses, do not seek to avoid accountability in serious patient incidents, but implicate the importance of distinguishing between the different nature of incidents. The results show that a more informed public debate on serious health- care incidents is needed in which appropriate measures protecting patient safety as well as professional safety are ensured. E N G L I S H S U M M A R Y Sigurbjörg Sigurgeirsdóttir1 Elísabet Benedikz2 Anna María Þórðardóttir2 Professional versus public attitudes towards criminal charges in healthcare – registered nurses and a random national panel compared: Dark clouds on the horizon? 1Political Science, School of Social Sciences, University of Iceland, 2Landspitali University Hospital. Correspondence: Sigurbjörg Sigurgeirsdóttir, silla@hi.is Key words: health care, human error, human factors, accountability, criminalisation, patient safety. í anda þess sem tíðkast í löndunum í kringum okkar, einkum hinum Norðurlöndunum svo sem fram kemur í skýrslu velferð- arráðuneytisins frá 2015.33 Mistök eru mannleg og alvarleg óvænt atvik sem rekja má til mannlegra mistaka geta átt sér stað í heilbrigðisþjónustu líkt og í samgöngum. Bæði í heilbrigðisþjónustu og samgöngum getur fólki verið hætta búin vegna atvika sem rekja má til samverkandi þátta þar sem reynir á þrautþjálfað fagfólk við aðstæður sem ein- kennast oft af miklum hraða, flóknum hátæknibúnaði og marg- slungnum verkefnum þar sem margir koma að á mismunandi tímum. Heilbrigðis- og samgöngukerfi eiga það sameiginlegt að vera þjónustukerfi þar sem öryggismál eru lífsnauðsyn og ástand og þróun öryggismála því lykillinn að því trausti sem notendur þurfa að geta borið til þjónustunnar. Það sem aftur á móti skilur þessi kerfi að hér á landi er að viðbrögðum við óvæntum atvikum og framþróun öryggismála hefur verið fundinn ólíkur farvegur. Rannsóknir samgönguslysa miðast eingöngu við það grundvallar- atriði í þróun öryggismála að leiða í ljós orsakir slysa og koma með tillögur til úrbóta, en ekki að skipta sök eða ábyrgð.34 Rannsókn- um á óvæntum atvikum í heilbrigðisþjónustu hefur ekki verið tryggður slíkur farvegur hér á landi. Niðurstöður þessarar rann- sóknar benda til þess að þörf sé á upplýstri umræðu um alvarleg atvik í heilbrigðisþjónustu og viðeigandi ráðstafanir og viðbrögð sem best tryggja öryggi bæði sjúklinga og starfsfólks. Styrkleikar rannsóknar og takmarkanir Styrkleikar þessarar rannsóknar eru þeir að rannsókn á viðhorf- um til ákæru fyrir atvik í heilbrigðisþjónustu hefur ekki verið gerð hér á landi áður. Þá er rannsóknin samanburðarrannsókn sem nær viðhorfum meðal almennings og heillar fagstéttar til þess hvort ákæra eigi fyrir atvik í heilbrigðisþjónustu eða ekki og var svörun tæp 70% hjá fagstéttinni. Veikleikar rannsóknarinnar eru einkum þeir að samanburðarhóparnir eru ólíkir að samsetningu. Úrtak Þjóðgáttar er ólíkur hópur fólks af báðum kynjum, 18 ára og eldri með ólíka menntun en hjúkrunarfræðingar eru 97% konur með háskólapróf. Þá má segja að rannsókn sem náð hefði viðhorfum fleiri fag- stétta, bæði innan sem utan heilbrigðiskerfisins, svo sem lækna, ljósmæðra og sjúkraliða annars vegar og lögfræðinga hins vegar, hefði verið styrkur. Höfundar líta aftur á móti svo á að það sé efni í aðra rannsókn. Hvorki þurfti leyfi Persónuverndar né vísindasiðanefndar fyrir gerð þessarar rannsóknar. Þakkir Höfundar þakka Maskínu fyrir tölfræðilega aðstoð og úrvinnslu gagna og heilbrigðisráðuneytinu fyrir styrk til að standa undir kostnaði við gerð skoðanakönnunarinnar. Þá fær Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga þakkir fyrir aðgang að félagaskrá félagsins. Greinin barst til blaðsins 29. júní 2020, samþykkt til birtingar 30. nóvember 2020.

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.