Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - jan 2021, Page 33

Læknablaðið - jan 2021, Page 33
L ÆK N A BL AÐIÐ 2021/107 33 stutt hálftíma flug og ef hér væru minni takmarkanir myndi smit dreifast hraðar um. Þannig að lausari taumur á alls ekki við um Vestfirði.“ Lærði í Danmörku Súsanna segir að fjölskyldan hafi ekki ætlað að vera eins lengi fyrir vestan og raunin er. „En við komumst fljótt að því að hér er æðislegt að búa.“ Læknisstarfið er fjölbreytt. „Ég er á heilsugæslu, lyf- læknir, bráðalæknir – allt í einu – og um- dæmislæknir sóttvarna líka,“ segir hún og hlær. Maður hennar starfar í bænum sem lögfræðingur. Súsanna lærði til læknis í Óðinsvéum í Danmörku og tók kandídatsárið hér heima. „Ég er alin upp á slysa- og bráða- deildinni og hafði alltaf í huga að starfa þar. Ég fæ að gera mikið af því hér og er því svo sátt.“ Hún lýsir því hvernig þau hafi nú veika manneskju inniliggjandi á sjúkrahúsinu sem hefði þurft að flytja suður en komist ekki vegna veðurs. „Við verðum að vera í stakk búin til að veita bráðameðferð í nokkra daga þar til við komum fólki suður.“ Þrír læknar eru fastráðnir hjá stofnuninni. Hún er yfir- læknir á heilsugæslunni, einn er bæklun- arskurðlæknir á heilsugæslunni og annar er skurðlæknir á sjúkrahúsinu. Lítið um verktöku „Síðan höfum við fengið kandídata, sér- námslækna og verktaka í bland hingað vestur. En við höfum verið heppin undan- farin ár því það er vinsælt að koma hing- að. Við höfum því að mestu sloppið við verktökuna.“ Hún segir að stutt stopp lækna komi í veg fyrir samfellda þjónustu við sjúk- linga. „Fólk vill hitta sinn lækni og fá eftirfylgd sem verður brothættari með verktöku. Í rauninni er það bagalegt fyrir okkur sem störfum hér og þurfum þá að fylgja þungu málunum eftir, sem og fyrir Mál togarans Júlíusar Geirmundssonar var á allra vör- um. Súsanna fór með samstarfsfélögum um borð þegar hann lagðist að bryggju með smituðum skipverjum. Hún segir að hún hafi alltaf hvatt forsvarsmenn skips- instil þess að koma í land í sýnatöku. Myndirnar tók Hafþór Gunnarsson í Bolungarvík. Súsanna Björg vinnur sem yfirlæknir heilsugæslunnar og segir að sig dreymi um að Heilbrigðisstofnun Vestfjarða geti verið öflugri kennslustofnun. Þau byggi upp hægt og rólega í þá átt. V I Ð T A L

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.