Læknablaðið - jan. 2021, Síða 37
L ÆK N A BL AÐIÐ 2020/106 37
V I Ð T A L
fjölmiðlum nemur talan 400 milljónum á
fjárlögum en á 5. milljarð sé litið til halla-
reksturs síðustu ára sem standa þurfi skil
á. „Ég spyr mig hvort þetta séu skilaboðin
sem almenningur vill senda inn í heil-
brigðiskerfið eins og staðan er? Ég er ekki
viss um að það sé þannig.“
Magnús bendir á veika stöðu íslenska
heilbrigðiskerfisins fyrir faraldurinn. „Við
megum ekki gleyma því að við erum með
minni getu til að takast á við svona áföll
en margar aðrar þjóðir því við erum með
fremur lítið heilbrigðiskerfi og einangruð
í Norður-Atlantshafi. Við getum til að
mynda ekki leitað til nágrannaríkja, sent
sjúklinga á milli landa eins og gert hefur
verið á meginlandi Evrópu.
Einnig er gjörgæslan hjá okkur lítil,
eins og margoft hefur komið fram, og erfitt
að stækka hana. Þetta er ekki eins og að
kaupa eitt sett af tækjum og málið er leyst.
Það er flókið að byggja strúktúrinn upp og
margir hlekkir í þeirri keðju.“ Hann heldur
áfram: „Eitt af því sem lengi hefur verið
vanrækt í heilbrigðiskerfinu er fjármögnun
vísindastarfs og efling háskólahlutverks
Landspítala. Við aðstæður sem þessar
skiptir öllu máli að spítalinn og heilbrigð-
iskerfið hafi burði til að rækja rannsókna-
og menntunarhlutverk vel. Viðbrögð okkar
verða að byggjast á þekkingu.“ Hann óttast
að þegar þessi faraldur sé frá verði ekki
byggt upp fyrir næsta áfall.
„Ég tel reyndar að sagan sýni að við
lærum mest af mistökum, þannig að ef
við sleppum tiltölulega vel frá þessum far-
aldri erum við ekki jafn líkleg til þess að
læra af honum,“ segir Magnús og er hugsi.
Vilji almennings hunsaður?
„80.000 manns skrifuðu til dæmis árið
2016 undir undirskriftarlista um að efla
Magnús í aðalskrifstofuhúsnæði Landspítala
við Skaftahlíð 24, áður Stöð 2, þaráður Tónabær,
þarþaráður Lídó. Mynd/gag.
Ritstjórnin samankomin á fundi í Hlíðasmára haustið
2019. Frá vinstri: Sigurbergur Kárason, Elsa B. Vals-
dóttir, Magnús Haraldsson, Ingibjörg Guðmundsdóttir,
Magnús Gottfreðsson og Gerður Gröndal. Á myndina
vantar Margréti Ólafíu Tómasdóttur. Mynd/ VS.
heilbrigðiskerfið og bæta fjármögnun
þess. Mjög margir þeirra sem sitja á þingi
í dag sitja þar út á slík loforð en núna
voru að birtast tölur frá OECD sem sýna
að þetta hlutfall hefur lítið sem ekkert
breyst.“ Það nemi 8,8% af vergri lands-
framleiðslu samkvæmt bráðabirgðatölum
OECD fyrir árið 2019, frá 8,5 prósentunum
frá árinu áður. Magnús bendir á að strax
og talan haggist ögn upp á við sé farið
fram á niðurskurð.
„Tölurnar sýna að stjórnmálamenn
eiga mjög erfitt með að standa við loforð
um að efla kerfið, jafnvel þó að þeir lýsi
því hátíðlega yfir að setja málið á oddinn.
Á sama tíma upplifum við hér á spítal-
anum, sem hefur verið meira og minna í
krónískri krísu frá því að spítalarnir voru
sameinaðir, að gengið sé fram með óraun-
hæfum kröfum um niðurskurð,“ segir
hann. „Maður er hugsi yfir yfir þessu í
ljósi þess sem á undan er gengið.“
Hefur vilji almennings þá áhrif? „Mér
sýnist ekki,“ svarar hann rólega. „Þessar
tölur tala sínu máli. Nú efast ég ekki um
góðan ásetning þegar orð um að efla
kerfið eru sögð. En ásetningur er eitt og
raunveruleg framkvæmd er annað.“ Hann
vill þó ekki gera lítið úr þeim breyting-
um sem gerðar hafi verið og bendir á að
heilsugæslan hafi verið efld.
„Staðreyndin er þó sú að kerfið í heild
sinni hefur verið vanfjármagnað lengi.
Fjármagn hefur nýlega verið fært frá spít-
alanum til heilsugæslunnar. Það er póli-
tísk ákvörðun með sínum rökum, en það
var ekki beðið um það. Almenningur var
að biðja um betri fjármögnun kerfisins í
heild og við stöndum samt nánast á sama
punktinum.“ Hann segir það dapurlegt.
„Ég er hissa á að þetta skuli ekki vera
rætt meira. Ég velti því fyrir mér hvort
það verði þannig áfram þegar fer að
nálgast kosningar,“ segir hann. „Ef menn