Skessuhorn - 15.01.2020, Qupperneq 2
MIÐVIKUDAGUR 15. JAnúAR 20202
Föstudagurinn DIMMI verður í
Borgarnesi um næstu helgi. Þá eru
allir hvattir til að slökkva á raftækj-
unum og eiga frekar bein sam-
skipti heldur en í gegnum símana.
Það er alltaf gott að kíkja upp úr
símanum og hitta fólk og spjalla
svo við hvetjum alla til að gera
meira af því.
Á morgun er spáð suðlægri átt
5-13 m/s, dálítil él eða slydduél
verða, einkum á Suður- og Vestur-
landi. Hiti í kringum frostmark. Á
föstudag verður vestlæg átt 8-15
m/s og él. Hæagari vindur og yfir-
leitt þurrt austantil á landinu. Frost
0 til 6 stig. Á laugardag er útlit fyrir
hæga vestlæga átt og bjartviðri en
stöku él vestanlands. Frost 1 til 9
stig og kaldast inn til landsins. Vax-
andi suðlæg átt og þykknar upp
og hlýnar vestanlands með deg-
inum. Á sunnudag er spáð hvassri
sunnan- og suðvestanátt með
rigningu, talsverð rigning verð-
ur sunnanlands en úrkomuminna
norðaustan- og austanlands. Hiti
3 til 8 stig. Á mánudag er útlit fyrir
allhvassa vestlæga átt með éljum
á vesturhelmingi landsins, annars
þurrt og kólnar í veðri.
Í síðustu viku var spurt á vef
Skessuhorns hvot lesendur hafi
sett sér ákveðin markmið fyrir árið.
Flestir, eða 75% svarenda, settu sér
engin markmið fyrir árið. 12% settu
sér fleiri en eitt markmið, 9% sögð-
ust hafa sett eitt markmið og 3%
eru ekki búnir að setja sér markmið
en eiga það eftir.
Í næstu viku er spurt:
Hvort segir þú pylsa eða pulsa?
180 manns komu saman í Grunda-
skóla á Akranesi í síðustu viku og
perluðu af krafti til styrktar Krafti,
stuðningsfélags fyrir ungt fólk sem
greinst hefur með krabbamein og
aðstandendur þeirra. Allir þeir sem
perluðu af krafti og styrkja málefn-
ið eru Vestlendingar vikunnar.
Spurning
vikunnar
Til minnis
Vestlendingur
vikunnar
Veðurhorfur
Ú
T
S
A
L
A
40%
afsláttur
af öllum
útsöluvörum
Fyrirtækið Veitur, dótturfélag
Orkuveitu Reykjavíkur, hætti
fyrir nokkrum árum reglulegum
álestri heitavatns- og rafmagns-
mæla á veitusvæði sínu. Um leið
var álestri komið í hendur hús-
eigenda eða leigjenda fasteigna.
Á milli álestra skrifar svo fyrir-
tækið reikninga sem byggja á
notkunarsögu viðkomandi fast-
eignar. Ef húseigendur og um-
ráðamenn fasteigna láta lang-
an tíma líða milli álestra, skap-
ast hætta á að ef leynd bilun er
komin upp í heitavatnskerfi, sem
orsakar meiri vatnsnotkun en
ella, kemur það ekki fram fyrr
en löngu síðar, með tilheyrandi
kostnaði, jafnvel svo hundruð-
um þúsunda króna nemur.
Í verklagsreglum sem Veit-
ur hafa sett sér segir að ef frá-
vik verður á heitavatnsnotk-
un, t.d. vegna bilunar í lokum,
eða vatnsleka, er ábyrgðin á
hendi húseiganda, eða notand-
ans. Veitur vinna hins vegar eft-
ir þeirri meginreglu að koma til
móts við notanda með bakfærslu
50% kostnaðar við það vatns-
magn sem bilun, staðfest og
lagfærð af fagmanni, telst hafa
valdið. Slík bakfærsla er þó ein-
ungis gerð einu sinni á hverja
fasteign. Skessuhorn hefur
heimildir pípulagningarmanns
fyrir því að nokkrir húseigend-
ur hafi verið að fá háa bakreikn-
inga vegna frávika í heitavatns-
notkun. Hætta á slíku er þó
mest hafi þeir vanrækt að senda
reglulega inn álestrartölur. Bil-
un í frárennslisloka í húseign á
Akranesi síðastliðið haust, sem
uppgötvaðist ekki strax þar sem
ríflega eitt ár leið á milli álestra
húseiganda, orsakaði bakreikn-
ing frá Veitum upp á 280.000
krónur. Veitur komu til móts
við viðkomandi húseiganda með
140.000 króna afslætti, en skýrt
var tekið fram að slíkur afsláttur
yrði ekki gefinn aftur.
Af þessu leiðir að ástæða er til
að hvetja húseigendur og leigj-
endur fasteigna til að lesa mán-
aðarlega af vatns- og rafmagns-
mælum í fasteignum sínum til
að lágmarka tjón sem bilanir að
þessu tagi geta valdið.
Ólöf Snæhólm, upplýsinga-
fulltrúi Veitna, segir í samtali við
Skessuhorn að það sé auðvelt fyr-
ir notendur að skila álestri. Það
megi gera á vef Veitna, á Mínum
síðum á vef Veitna, með tölvu-
pósti, símtali eða skilaboðum á
FB síðunni okkar. „Margir taka
einfaldlega mynd af mælinum
og senda okkur,“ segir Ólöf og
bætir við að engir aðrir notend-
ur á starfssvæði Veitna hafa stað-
ið sig jafnvel í að skila álestrum
og Akurnesingar. „Þeir hafa sett
met í skilum,“ segir hún.
mm
Björgunarsveitir Landsbjargar á
sunnan- og suðvestanverðu landinu
voru kallaðar út síðastliðið þriðju-
dagskvöld til leitar og björgunar á
stórum hópi fólks sem var í ferð á
snjósleðum við rætur Langjökuls.
39 erlendir ferðamenn auk farar-
stjóra voru þá strand í afar slæmu
veðri, þar sem skyggni var ekkert og
mikill skafrenningur. Hluti hópsins
gróf sig í fönn. Margir voru orðnir
kaldir og hraktir enda verið á ferð-
inni frá því klukkan 13 um daginn.
Fjölmennt lið björgunarsveitarfólks
á snjóbílum og jeppum fór til leit-
ar og björgunar við Skálanes. Eftir
að búið var að koma fólkinu í bíla
var ekið með það í skjól á Gullfos-
skaffi þar sem sjúkraflutningamenn,
björgunarsveitafólk og sjálfboða-
liðar frá RKÍ tóku á móti hópnum,
hlúðu að því og mátu ástand þeirra.
Síðustu ferðalangarnir komu í hús
laust fyrir klukkan 6 um morgun-
inn. Síðar um morguninn var ekið
með fólkið til Reykjavíkur. Með-
fylgjandi eru myndir Landsbjarg-
ar frá vettvangi um miðnætti þegar
björgunarstörf stóðu sem hæst og
úr bílum á leiðinni á vettvang.
Lögreglan á Suðurlandi rann-
sakar ástæðu þess að farið var með
ferðafólk í fyrrgreinda ferð. Spáð
hafði verið mjög slæmu veðri og
varað við ferðalögum, enda djúp
lægð sem vitað var að gengi norður
yfir landið þennan dag.
mm
Fólk er hvatt til reglulegs álesturs heitavatnsmæla
Háir bakreikningar geta orðið til reynist leynd bilun til staðar
Algeng gerð af rennslismæli hitaveitu frá Veitum. Ljósm. Veitur.
Giftusamleg björgun stórs
hóps ferðafólks