Skessuhorn


Skessuhorn - 15.01.2020, Page 3

Skessuhorn - 15.01.2020, Page 3
Skil á upplýsingum 2020vegna skattframtals Skila skal eftirtöldum upplýsingum vegna ársins 2019 á rafrænu formi á þjónustusíðunni skattur.is Skilafrestur er til 20. janúar Launa- og verktaka upplýsingar Skilaskyldir eru allir þeir sem innt hafa af hendi launagreiðslur, hlunnindi (þ.m.t. kaup- og söluréttarsamningar), lífeyri, bætur, styrki, greiðslur til verktaka fyrir þjónustu (efni og vinnu) eða aðrar greiðslur (þ.m.t. umsýslu- eða umboðsgreiðslur, s.s. í ferðaþjónustu o.fl.). Einnig allir þeir sem í rekstri sínum eða annarri starfsemi hafa látið launamönnum eða öðrum vélknúin ökutæki í té til afnota. Hlutafjárupplýsingar Skilaskyld eru öll hlutafélög, einkahlutafélög, samlagshlutafélög og sparisjóðir. Stofnsjóðsupplýsingar Skilaskyld eru öll samlagsfélög, sameignarfélög og samvinnufélög, þ.m.t. kaupfélög. Viðskipti með hlutabréf/afleiður og önnur verðbréf Skilaskyldir eru bankar, verðbréfafyrirtæki og aðrir þeir aðilar sem annast kaup og sölu, umboðsviðskipti og aðra umsýslu með hlutabréf/afleiður og öll önnur verðbréf. Innstæður Skilaskyldar eru allar fjármálastofnanir og aðrir aðilar sem taka við fjármunum til ávöxtunar, eða hafa milligöngu um ávöxtun, vörslu eða aðra ráðstöfun fjármuna. Hlutabréfakaup skv. kaupréttarsamningi Skilaskyld eru öll hlutafélög sem gert hafa kaupréttarsamninga við starfsmenn sína samkvæmt staðfestri kaupréttaráætlun. Sama á við um söluréttar samninga. Takmörkuð skattskylda - greiðsluyfirlit Skilaskyldir eru þeir sem innt hafa af hendi hvers konar greiðslur til erlendra aðila og annarra, sem bera takmarkaða skattskyldu hér á landi. Lánaupp lýsingar Bankalán, fasteignaveðlán, bílalán og önnur lán. Skilaskyldar eru allar fjármálastofnanir (bankar, sparisjóðir, lífeyrissjóðir, tryggingafélög, fjármögnunarleigur o.s.frv.) sem hafa lánað fé til einstakl inga og lögaðila. Greiðslur fyrir leigu eða afnot Skilaskyldir eru þeir sem innt hafa af hendi hvers konar greiðslur fyrir leigu eða afnot af lausafé, fasteignum og fasteignaréttindum eða öðrum réttindum. Einnig þeir sem hafa í atvinnuskyni milligöngu um útleigu. Fjármagnstekjur Þeir aðilar sem innheimt hafa vexti skulu skila upplýsingum um slíkar fjármagnstekjur og tilgreina sundurliðun á móttakendur og þá staðgreiðslu fjármagnstekjuskatts sem haldið hefur verið eftir. Hér er einkum um að ræða innheimtu aðila, t.d. lögmannsstofur. Staðfesting á tilteknum hlutabréfakaupum (listi yfir þátttakendur) Skilaskyld eru öll hlutafélög og einkahlutafélög sem fengið hafa staðfestingu ríkisskattstjóra á að þau uppfylli skilyrði fyrir því að kaup einstaklinga á hlutum í hlutafjáraukningu félagsins geti veitt rétt til skattfrádráttar sbr. B-lið 1. mgr. 30. gr. laga nr. 90/2003. Sjá nánar auglýsingu ríkisskattstjóra nr. 1225/2019 í B-deild Stjórnartíðinda. Sími 442-1000 • rsk@rsk.is Upplýsingaver er opið mánudaga-fimmtudaga 9:00-15:30 og föstudaga 9:00-14:00

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.