Skessuhorn - 15.01.2020, Page 8
MIÐVIKUDAGUR 15. JAnúAR 20208
Vilja fjölga lóð
um á Kleppjárns
reykjum
BORGARFJ: Á fundi skipu-
lags- og bygginarnefndar Borg-
arbyggðar í síðustu viku var
ályktað að nefndin telji far-
sælt að leita leiða til að auka
framboð á lóðum fyrir íbúð-
arhúsnæði á Kleppjárnsreykj-
um. „Mikil uppbygging hef-
ur átt sér stað m.a. í ferðaþjón-
ustu á svæðinu og eftirspurn
eftir íbúðarhúsnæði hefur auk-
ist. nefndin leggur til að um-
hverfis- og skipulagssvið hefji
vinnu við að skoða möguleika
á frekari uppbyggingu á Klepp-
járnsreykjum,“ segir í bókun frá
fundinum. -mm
Alvarlegt um
ferðarslys
KOLLAFJ: Skömmu fyrir há-
degi síðastliðinn föstudag varð
alvarlegt umferðarslys á Vest-
urlandsvegi um Kollafjörð.
Gámur losnaði af bílpalli með
þeim afleiðingum að hann skall
á tveimur bílum sem komu
úr gagnstæðri átt. Ökumenn
beggja bílanna voru fluttur á
gjörgæsludeild Landspítalans
með áverka. Lögregla lokaði
veginum í um þrjá tíma vegna
slyssins. Hvasst var á Kjalarnesi
þegar slysið varð. -mm
Reglugerð vegna
þjónustu sjúkra
þjálfara
LANDIÐ: Heilbrigðisráðherra
hefur sett reglugerð sem tryggir
endurgreiðslur sjúkratrygginga
vegna þjónustu sjálfstætt starf-
andi sjúkraþjálfara sem starfa án
samnings við Sjúkratryggingar
Íslands. Reglugerðin tók gildi
12. janúar síðastliðinn. Endur-
greiðslur skulu miðast við gjald-
skrá sem Sjúkratryggingar Ís-
lands setja. Meðan sjúkraþjálf-
arar hækka ekki verðskrá sína
umfram gjaldskrá stofnunarinn-
ar verður hlutfall endurgreiðslu
til sjúklinga það sama og verið
hefur. -mm
Förgun dýraleifa
BORGARBYGGÐ: Sveit-
arstjórn Borgarbyggðar sam-
þykkti á fundi síðastliðinn
föstudag með 8 atkvæðum til-
lögu umhverfis- og landbún-
aðarnefndar um að byrjað verði
að hirða dýraleifar af lögbýlum
1. febrúar næstkomandi. Lit-
ið er á verkefnið sem tilrauna-
verkefni til eins árs. Gjald verði
innheimt af eigendum búfjár
og gjaldskrá samþykkt í þrem-
ur flokkum; lítil bú, meðalstór
bú og stór bú. Óskað verði eftir
búfjártölum frá Matvælastofn-
un til álagningar gjaldsins. Þá
lagði umhverfis- og landbún-
aðarnefnd til við sveitarstjórn
að samið verði við HSS Verktak
um hirðingu dýraleifa og var
það sömuleiðis samþykkt. -mm
Endurgreiðsla
tannlækna
kostnaðar
LANDIÐ: „Öllum börnum
sem fæðast með skarð í efri
tannboga eða með klofinn góm
er tryggður réttur til endur-
greiðslu vegna tannlækninga og
tannréttinga sem nemur 95% af
gjaldskrá tannlæknis, að undan-
gengnu mati á þörf,“ segir í til-
kynningu frá heilbrigðisráðu-
neytinu um reglugerð sem tók
gildi um áramótin. -mm
Fastir í fangelsinu
GRUNDARFJ: Starfsfólk
Fangelsisins Kvíabryggju varð
veðurteppt á vaktaskiptum
þriðjudaginn 7. janúar síðast-
liðinn. Vegna veðurs komst
dagvaktin ekki heim og næt-
urvaktin ekki á staðinn til að
leysa hana af. Björgunarsveitin
Klakkur var kölluð út til að að-
stoða starfsfólk að komast til og
frá vinnu, að sögn lögreglu.
-kgk
Bílvelta á
Útnesvegi
SNÆFELLSBÆR: Bíll valt á
útnesvegi við Laxá laust eftir
kl. 17:00 síðastliðinn miðviku-
dag. Ökumaður ók í vestur eftir
veginum, í átt að Rifi. Bifreið-
in rann til á veginum í mikilli
hálku. Annar bíll var að koma
á móti og ökumaður tók í stýr-
ið til að forða árekstri. Við það
missti hann bílinn út af veginum
þar sem hann valt. Enginn slas-
aðist og ökumaðurinn fékk að
yfirgefa vettvanginn eftir skoð-
un hjá sjúkraflutningafólki. Bif-
reiðina þurfti að fjarlægja með
krana. -kgk
Fjólublá lýsing
VESTURLAND: Lögregla
hafði afskipti af ökumanni á
Innnesvegi á Akranesi í síðustu
viku, vegna þess að hann ók bif-
reið með fjólublá stöðuljós. Slíkt
er óheimilt, stöðuljós mega að-
eins vera hvít að lit. Viðkomandi
kvaðst ekki hafa vitað til þess að
þetta mætti ekki. Lögregla gaf
honum færi á að ráða bót í máli.
Á mánudag hafði lögregla af-
skipti af ökumanni á útnesvegi
vegna ljósabúnaðar, en bíllinn
var eineygður. Lögregla ítrek-
ar mikilvægi þess að ljósabún-
aður bíla sé í lagi í skammdegi
og þegar skyggni er slæmt, eins
og var oft í síðustu viku. -kgk
Innbrot og
eignaspjöll
AKRANES: Tilkynnt var um
yfirstaðið innbrot og eignaspjöll
í íbúðarhúsi á Akranesi kl. 5:30
á fimmtudagsmorgun. Iðnað-
armenn komu að vettvangi og
höfðu samband við eiganda,
sem var erlendis. Eigandinn
gerði síðan lögreglu viðvart,
sem athugaði málið. Búið var að
spenna upp útidyrahurð og fara
inn í herbergi þar sem einnig
höfðu verið spenntar upp hurð-
ir. Engu virtist hafa verið stol-
ið en búið var að gramsa í dóti
í íbúðinni, að sögn lögreglu.
-kgk
Seint á síðasta ári keypti Fiskmark-
aður Íslands nýja og öfluga ísvél
sem komið var fyrir í útibúi fisk-
markaðarins í Rifi. Stefnt er að
gangsetningu hennar á næstu dög-
um, en hún kemur til með að fram-
leiða 20 tonn af ís á sólarhring.
Vélin var keypt af KAPP ehf.
í Garðabæ, sem einnig annað-
ist uppsetningu á dreifikerfi íss-
ins í kör, en slíkt hagræðir mikið
þjónustu við vélina sjálfa. „Það má
segja að menn séu ískaldir á Snæ-
fellsnesi,“ segir Aron Baldursson,
framkvæmdastjóri Fiskmarkaðs Ís-
lands hf., léttur í bragði og vísar
til þess að Fiskmarkaður Snæfells-
bæjar keypti nýverið ísverksmiðj-
una í Ólafsvík, eins og kom fram í
Skessuhorni í síðustu viku.
Aron segir nýju ísvél Fiskmark-
aðs Íslands í Rifi skapa mikið hag-
ræði fyrir fyrirtækið, þar sem til
þessa hafi fiskmarkaðurinn þurft að
kaupa ís fyrir útibúið í Rifi, bæði úr
Ólafsvík og Grundarfirði. „nú sem
áður held ég að það sé ráð fyrir út-
gerðir landsins að sigla flotanum
sínum í Breiðafjörð og njóta þeirr-
ar góðu þjónustu sem Snæfellsnesið
hefur upp á að bjóða,“ segir Aron
Baldursson að endingu. kgk
Truflanir urðu á afhendingu á
heitu og köldu vatni í Borgar-
nesi og köldu vatni í hluta Borg-
arfjarðar síðastliðið þriðjudags-
kvöld vegna rafmagnstruflana.
Um var að ræða rafmagnsbilanir
í norðurárdal annars vegar og frá
Vatnshömrum að Hafnarmelum
hins vegar. „Það sem gerðist var
að það urðu truflanir á afhend-
ingu rafmagns. Dælurnar okk-
ar á Seleyri duttu út, þar sem þær
eru knúnar rafmagni. Þær voru
úti í um 40 mínútur, þar til Ra-
rik tókst að koma aftur rafmagni á
dælurnar, en þeir voru afskaplega
samvinnuþýðir við okkur,“ seg-
ir Ólöf Snæhólm Baldursdóttir,
upplýsingafulltrúi Veitna, í sam-
tali við Skessuhorn á miðviku-
dag. „Einnig lækkaði þrýstingur á
köldu vatni frá Grábrók í um það
bil 30 mínútur í gærkvöldi,“ segir
hún, en það má rekja til rafmagns-
truflana í norðurárdal.
Færanlegt varaafl
Ekki eru varaaflsstöðvar við dæl-
urnar á Seleyri og í Grábrókar-
hrauni. Ólöf segir stefnu fyrirtæk-
isins að vera með færanlegt varaafl.
„Við erum með varaafl víða en ekki
á þessum stöðum. Stefnan fyrirtæk-
isins er að vera ekki með slíkar fast-
ar varaaflsstöðvar, heldur að vera
með færanlegt varaafl til að bregð-
ast við þegar verða lengri afhend-
ingarbrestir,“ segir Ólöf að end-
ingu.
kgk/ Ljósm. úr safni/ Óli Haukur.
Á vef Skipulagsstofnunar er nú til
kynningar tillaga Quadran Iceland
Development ehf. um áætlun vegna
mats á umhverfisáhrifum vindorku-
garðs í landi Sólheima í Laxárdal í
Dölum. Í matsferlinu er spáð fyr-
ir um og mat lagt á möguleg áhrif
verkefnisins á helstu landfræðilega,
líffræðilega og félagslega þætti í
umhverfinu. Framkvæmdasvæð-
ið er á 3.200 hektara jörð á eystri
mörkum sveitarfélagsins Dala-
byggðar. Laxárdalsvegur liggur á
um átta km kafla í gegnum fram-
kvæmdasvæðið og tengir saman
Búðardal og Borðeyri. Stefnt er að
verkhönnun vindmylla á Sólheim-
um í tveimur áföngum. Fyrri áfang-
inn mun samanstanda af 20 vind-
myllum, með hámarksafköst upp á
85 MW. Í síðari áfanganum verða
reistar sjö vindmyllur til viðbótar,
með hámarksafköst upp á 30 MW.
Síðari áfanginn verður þó í bið-
stöðu þar til næg afkastageta verður
í raforkukerfinu.
Í matsáætlun segir að æskileg-
ast væri að tengjast flutningskerfi
raforku í gegnum háspennulín-
ur sem þegar eru til staðar (Gler-
árskógalína, 132 kV háspennulína)
sem tengir aðveitustöðvar að Gler-
árskógum og Hrútatungu í Hrúta-
firði. Háspennulínan liggur í gegn-
um framkvæmdasvæðið, samhliða
vegi 59.
Tillagan er nú aðgengileg á vef
Skipulagsstofnunar en frestur til að
skila inn athugasemdum er til 24.
janúar næstkomandi. Quadran er
væntanlegur framkvæmdaaðili, en
stjórnarformaður fyrirtækisins sem
hefur aðsetur við Ármúla í Reykja-
vík, er Tryggvi Þór Herbertsson.
mm
Nýja ísvél Fiskmarkaðar Íslands í Rifi mun framleiða um 20 tonn af ís á sólarhring.
Ljósm. Aron Baldursson.
Ný ísvél keypt í Rif
Vatnstruflanir vegna rafmagnsleysis
Vindorkugarður á
Sólheimum í matsferli