Skessuhorn - 26.02.2020, Síða 23
MIÐVIKUDAGUR 26. FEBRúAR 2020 23
Pstiill - Geir Konráð Theódórsson
Pstiill - Axel Freyr Eiríksson
Sjónarsviðið þrengist með auknum
hraða, þar sem eitt sinn var löng röð
af fólki bíðandi eftir skíðalyftunni,
er nú horfið sjónum, rauða örygg-
isnetið meðfram brekkunni er orð-
ið að rauðleitu leiftri og það eina
sem ég sé skýrt í gegnum Smith
polarized skíðagleraugun er hvítt
algleymi. Hvítt algleymi af hraða
og hæfni, ég er Stenmark, Ingemar
Stenmark í præminu. Líkt og Sten-
mark, vill ég fara hratt en örugg-
lega. Stenmark setti reyndar max-
ið sitt við 120 km niður brekku, ég
sjálfur aðeins minna. Ég stíg öld-
una og svíf í stórsvigi niður brekk-
una, hraðar og hraðar þangað til ég
nem staðar. Reyndar þurfti ég ekki
að bremsa sjálfur því brekkan sá
um að hægja á mér, yfirráðasvæði
mitt þessa ferð var nefnilega Paddi
Broddgöltur og Töfrateppið, vina-
legar 3% halla brekkur fyrir fólk
sem hefur ekki farið á skíði síðan
í 9. bekk og þarf að rifja upp takt-
ana. Pizza til að bremsa, fransk-
ar til að fara hratt og spaghettí til
að stórslasa sig, munið þið ekki?
Ég passaði mig á því að gera ekki
spaghettí, það gæti nefnilega orðið
spaghettí bolognese. Ástæðan fyr-
ir því að ég var búinn að strappa á
mig skíði er að langþráð skíðaferð
með skólanum sem sonur minn
gengur í var orðin að veruleika. Ég
ætlaði reyndar ekki að skíða neitt,
bara vera á hliðarlínunni og hvetja
drenginn til dáða, nema þegar á
staðinn var komið hljóp einhver
skíðapúki í mig. Einu kortastroki
og mátun síðar var ég runninn af
stað við hliðina á 8 ára syni mín-
um.
Þegar ég stóð í röðinni að skrá
mig sjálfur inn í kerfið eftir að hafa
komið stráknum mínum af stað var
ég byrjaður að fá ranghugmynd-
ir um eigin hæfni; „ætti ég á eft-
ir að prófa Kónginn?“, af þremur
hæfnistigum setti ég mig í miðjuna
(ágætlega vanan skíðamann sem vill
krefjandi brekkur við og við). Eitr-
uð karlmennska? Allavega, þeg-
ar ég byrja að renna af stað þá ber
mig ágætlega í hallanum og finn að
þarna er um að ræða vöðva sem ég
hef ekki notað í 20 ár (mental note;
muna grindarbotnsæfingar og hné-
beygjur fyrir næstu ferð). Ég sker
engar brekkur í þessari ferð.
Eftir að ég og sonur minn vor-
um orðnir alveg þokkalegir í því
að kljást við Patta Broddgölt og
að læra ganga með þessar plast-
spýtur fastar á löppunum (sama
hversu töff og góður þú heldur að
þú sért að ganga á skíðum í átt að
diskalyftunni þá er það ekki rétt,
þú munt líta út eins og fáviti. Börn
eru reyndar mjög krúttleg þegar
þau gera það, svona eins og kálfar á
svelli, sem er fyndið) þá fórum við
í mat. Heit samloka, kex og djús er
hátíðarmatur upp á fjalli, sérstak-
lega í skólaferðalagi inn í skíða-
skála. Eftir að hafa nærst vel og
rætt næstu skref vorum við feðg-
ar staðráðnir í því að nú væri nóg
komið af barnabrekkum og svo-
leiðis leikaraskap, við vildum hraða
og fjör. Amma Mús og Hérastubb-
ur urðu fyrir valinu (Í alvöru? ég
átti ekki breik). Hjá syni mínum og
skólafélögum hans kom í ljós þessi
frægi hæfileiki ungra skólabarna að
læra hluti á ljóshraða og eftir 2-3
ferðir var hæfnistig þeirra komið
nokkrum hæðum fyrir ofan mig.
Ég hætti samt ekki að reyna og
nokkrum ferðum síðar var ég orð-
inn þokkalega öruggur með mig
og gat farið að stíga ölduna, enginn
Stenmark, en alveg þokkalegur þó
ég segi sjálfur frá.
Í lokin kom í ljós að þetta var
slysalaus dagur, það voru fleiri for-
eldrar sem voru á sömu slóðum og
ég. Skíðaferill þeirra endaði með
útskriftinni úr grunnskóla og ekki
stigið ölduna síðan. Þegar í rútuna
var komið þá gerð-
um við feðgar upp
daginn og kom-
umst að því að nú
þyrfti fjölskyldan að gera eitthvað í
þessu skíðaleysi, því þetta væri svo
gaman. Á meðan rútan hlykkjað-
ist í áttina að höfuðborgarsvæðinu
lét ég mig dreyma; ég var staddur í
Grindelwald – litlu þorpi sem lúrir
undir norðurhlið Eiger, skíðasölu-
maðurinn í bjálkakofanum afhend-
ir mér tréskíðin mín og annan bún-
að því ég er svo mikill hipster að
gerviskíði henta mér ekki. Ég skíða
fimlega niður brekkuna til fjöl-
skyldunnar eins og leikari úr ein-
hverri svarthvítri mynd eftir G.W.
Pabst, frægum austurrískum leik-
stjóra á fyrri hluta 20. aldarinnar.
Ég fer frekar með fjölskyldunni
á skíðasvæðin hér á landi fyrst um
sinn.
Þangað til..
Axel Freyr Eiríksson
Það er pínu gaman að gera grín
að Evrópusambandinu, sérstaklega
þegar kemur að reglubákninu. Oft-
ar en einu sinni hef ég verið slakur í
heita pottinum í Borgarnesi, afsíð-
is og með augun lokuð en glottandi
eftir hlustun á góða ræðu um skrif-
finnskugrýluna handan við haf-
ið. Báknið neyddi einhvern til að
setja upp auka vask í eldhúsinu eða
bannaði skátum á Héraði að vera
með kökubasar, og „það bara má
ekkert lengur!“
Svo virðist vera að það séu regl-
ur og staðlar fyrir gjörsamlega allt
í dag og sumum þykir þetta hafa
gengið allt of langt. Hvað myndi
svo sem gerast ef skátarnir bökuðu
skúffuköku í óvottuðu eldhúsi með
of fáum vöskum? Gæti heilbrigður
einstaklingur bragðað bita án þess
að hafa fyrir framan sig stöðluðu
næringargildistöfluna fyrir hver
100 grömm? Almáttugur, kannski
nota skátarnir ólífræn E-efni í
bakstrinum sem myndu valda veg-
an persónu varanlegum andlegum
skaða!
Ég grínast með þetta vegna þess
að þökk sé nútíma matvælafram-
leiðslu með öllum sínum reglum og
stöðlum, þá er í dag matvælaveru-
leikinn heima á Íslandi orðinn eitt-
hvað svo óraunverulegur. Meðal-
manneskja hefur aðgang að mat-
vælum sem kóngafólk heimsvelda
fyrri tíma myndu öfundast út af
og fyrri kynslóðir Íslendinga gætu
aldrei nokkurn tímann ímyndað
sér. Um miðjan vetur getur hver
sem er skroppið út í nálæga búð,
þar má sjá ferska ávexti frá hinni
hlið hnattarins sitja við hliðina á
nýjum gómsætum smátómötum
sem komu beint úr einhverri inn-
lendir gróðurglerhöll sem knúin er
af hverakrafti. Við getum meira að
segja keypt ferskan ananas! Hvað
með það? Karl II Englandskon-
ungur elskaði ananas svo mikið að
hann lét mála málverk af sér að taka
við þessum konunglega ávexti. Eitt
stykki af ananas gat kostað á fyrri
tímum í kringum milljón krónur og
efri stéttar fólk sem hafði ekki efni
á að kaupa ávöxtinn lét sér nægja
að leigja eitt stykki fyrir sérstök til-
efni. Fátt sýndi meiri lúxus en að
hafa ananas í fanginu þegar mað-
ur labbaði um í fínum veislum, en
núna fer þessi konunglegi ávöxtur
í blandara til að hafa heilsudrykk
með morgunmatnum á Íslandi. Að
ekki sé nú talað um ananas á pizz-
ur, sem Guðni forseti getur reyndar
ekki hugsað sér.
Svona er Ísland í dag. Ég gæti
mætt í íslenskt matarboð það kæmi
mér ekkert á óvart að sjá bakka
með evrópskum ostum, mið-aust-
urlenskum ólífum og amerísk-
um kryddpylsum, við hliðina á því
gætu verið tælenskar risarækjur,
sushi eða jafnvel einhver indversk-
ur smáréttur skreyttur með saffran
frá Ísrael. Líklegast mæti ég með
vínflösku frá kannski Suður-Afríku
og hellt væri í glös, skálað og fólk
myndi njóta þess að smakka hitt og
þetta og spjalla um daginn og veg-
inn. Mögulega kannski kvarta að-
eins undan veðrinu. Þetta gæti ver-
ið bara venjulegt kvöld með góðum
vinum einhversstaðar í Reykjavík.
En það er ekkert venjulegt við
þetta! Í samanburði við næstum alla
mannkynssöguna er þessi raunveru-
leiki í Reykjavík árið 2020 einhvers
konar himnaríki, einhver draum-
kennd paradís. Heimsins bestu vín
og matur enda á borðum almenn-
ings á einhverri eyju í Norður-Atl-
antshafi og fyrir okkur er þetta bara
sjálfsagður hlutur. Við borðum og
drekkum áhyggjulaus, það er nóg
til af öllu. Það er ekkert myglað,
ekkert úldið og nær engin hætta á
matareitrun eða sýkingum. Höf-
um í huga að svokölluð hungurfell-
isár voru tölfræðilega að meðaltali
fimmta hvert ár á Íslandi á 17. öld
og fjórða hvert á 18. öld, og á þeirri
19. fór Askja og Hekla að gjósa og
20% þjóðarinnar flýr burt úr landi
og fer vestur um höf. Á Íslandi hef-
ur aldrei verið auðvelt að lifa fyrr
en núna. Ég legg til að matarboðs-
gestir ættu alltaf að fallast á kné fyr-
ir framan svona hlaðborð og þakka
fyrir að fá að upplifa svona góða og
gjöfula stund á þessum síðustu og
bestu tímum.
Í Reykjavík, þar sem núna er
mögulegt að halda himnesk mat-
arboð, geisaði til dæmis skelfileg-
ur taugaveikisfaraldur í byrjun síð-
ustu aldar. Þetta er
bakteríusmitsjúk-
dómur sem berst
í fólk með saur-
menguðu vatni eða
matvælum. Ástandið var alvarlegt,
fólk var að deyja og margir veik-
ir. Kemur þá til sögunnar Matth-
ías Einarsson læknir við Franska
spítalann í Skuggahverfinu sem fer
að greina ástandið. Hann taldi lík-
legt að íbúarnir væru að smitast af
því að fólk var að sækja neysluvatn
í svokallaða Móakotslind. Hann
sá að það var salernisstaður í hall-
anum ofan við lindina og sprung-
ur voru í brunnhleðslunni. Matth-
ías kom með margar ábendingar en
það voru ekki allir sammála honum
- og líklegast var fólk alls ekkert
ánægt með einhver boð og bönn.
En þökk sé Matthíasi þá var Móa-
kotslind lokað þann 16. desember
árið 1906 og Vatnsveita Reykja-
víkur tók til starfa árið 1909. Bólu-
efni, betri tækni og strangar reglur
og staðlar um gott hreinlæti, gerðu
það að verkum að taugaveiki heyrir
nú sögunni til, á Íslandi.
Sömu sögu er ekki að segja víða
í heiminum í dag. Þessa stundina
er ég staddur langt frá heita pott-
inum í Borgarnesi og skriffinnsku-
grýlunni í Evrópu. Ég bý í Níger í
Vestur-Afríku og það er svo margt
hérna sem er dásamlegt og já-
kvætt, en það er margt hér í landi
sem betur má fara. Ég hvet ykkur
sem kvartið yfir reglum og stöðlum
að heimsækja mig hingað, ég mun
taka vel á móti ykkur. Það er hægt
að kaupa ananas á götumarkaðnum
og við getum haft einn í fanginu
þegar við löbbum um borgina. Þið
munuð sjá að hér má næstum allt
og að enginn mun banna neinum
að vera með kökubasar, hér hefur
enginn áhyggjur af fjölda eldhús-
vaska hvað þá stöðluðum næringar-
gildistöflum. Hér er ekkert bölvað
ESB reglubákn, en hér í Níger er
taugaveikin landlæg og við munum
sjá hvernig sjúkdómurinn fer með
manneskjur. Verum þakklát fyrir
fólk eins og Matthías Einarsson og
lærum að meta gagnsemi þess að
hafa reglur og staðla og menntað
fólk til að framfylgja þeim.
Geir Konráð Theódórsson.
Pizza og franskar
Með ananans í fanginu og ekkert reglubákn
Karl II Englandskonungur elskaði ananas svo mikið að hann lét gera málverk af sér að taka við þessum konunglega ávexti.