Skessuhorn - 26.02.2020, Side 27
MIÐVIKUDAGUR 26. FEBRúAR 2020 27
Þriðjudagskvöldið 3. mars næst-
komandi kl. 20 flytur Erla Hulda
Halldórsdóttir sagnfræðingur fyrir-
lesturinn, „Bréf til bróður míns,“ í
Bókhlöðu Snorrastofu og fjallar þar
um ævi og bréf Sigríðar Pálsdótt-
ur (1809–1871). Eftir Sigríði liggja
um 250 bréf, sem hún ritaði bróð-
ur sínum Páli Pálssyni. Hún bjó í
Reykholti 1833-1840, gift sr. Þor-
steini Helgasyni, sem drukknaði
í Reykjadalsá 1839. Eftir það bjó
hún í Síðumúla 1840-1845. Fyrstu
bréfin voru skrifuð í hennar nafni
árið 1817 en síðasta bréfið skrif-
aði hún fáeinum vikum fyrir andlát
sitt. Hún er langstærsti bréfritarinn
af þeim rúmlega 160 sem finna má í
safni Páls. Erla Hulda hefur fengist
við rannsóknir á ævi og bréfum Sig-
ríðar um árabil og skrifar nú ævi-
sögu hennar.
Í fyrirlestrinum verður nokkr-
um þráðum rannsóknarinnar flétt-
að saman. Í fyrsta lagi er fjallað um
ævi Sigríðar, allt frá því hún fæðist
á Hallfreðarstöðum í Hróarstungu
til þess hún deyr rúmlega sextug á
Breiðabólsstað í Fljótshlíð. Sérstök
áhersla verður lögð á þau ár sem
hún bjó í Borgarfirði, fyrst í Reyk-
holti 1833-1840 og síðan Síðumúla
í Hvítársíðu 1840-1845. Í öðru
lagi verður rætt um fræðilegt sam-
hengi rannsóknarinnar. Með því er
annars vegar átt við álitamál varð-
andi notkun og túlkun sendibréfa
í sagnfræðirannsóknum en hins
vegar ævisögu sem aðferð til þess
að rannsaka fortíðina og miðla um
hana þekkingu. Sigríður Pálsdóttir
fellur ekki að ríkjandi hugmyndum
um verðugt viðfangsefni ævisögu-
ritunar því bæði er hún kona og svo
gerði hún í sjálfu sér ekkert „merki-
legt“ um ævina. Í því felst einmitt
skemmtileg áskorun því eins og sjá
má í bréfum Sigríðar og fjölskyldu
hennar dreif ýmislegt frásagnarvert
á daga hennar.
Erla Hulda Halldórsdóttir er
Snæfellingur, alin upp á Minni-
Borg í Miklaholtshreppi og er
dósent í kvenna- og kynjasögu við
sagnfræði- og heimspekideild Há-
skóla Íslands. Hún lauk doktors-
prófi við Háskóla Íslands árið 2011.
Rannsóknir Erlu Huldu eru einkum
á sviði kvennasögu og kyngervis,
sendibréfa og fræðilegra ævisagna.
Hefur hún birt fjölda greina um
rannsóknarefni sín, bæði hér á landi
og erlendis jafnframt því sem hún
hefur ritstýrt bókum. Árið 2011
kom út eftir hana bókin Nútímans
konur. Menntun kvenna og mótun
kyngervis á Íslandi 1850–1903.
Snorrastofa fagnar rannsókn Erlu
Huldu og komu hennar á slóðir
Sigríðar Pálsdóttur til að miðla af
þekkingarbrunni um liðna tíð. At-
hugið að fyrirlesturinn hefst kl. 20.
Boðið verður til kaffiveitinga og
umræðna að venju og aðgangseyrir
er 1000 kr. -fréttatilkynning
Júlíöna, hátíð sögu og bóka, hefst
á morgun fimmtudaginn 27. febrú-
ar í Stykkishólmi og stendur fram á
laugardag. Er þetta í áttunda sinn
sem hátíðin er haldin en að henni
standa þær Dagbjört Höskulds-
dóttir, Gréta Sigurðardóttir, Nanna
Guðmundsdóttir, Sólrún Sigurðar-
dóttir og Þórunn Sigfúsdóttir. „Það
er gleði í okkar herbúðum að Júlí-
ana hátíð hafi verið valin ásamt öðr-
um á lista Eyrarrósarinnar í ár sem
menningarhátíð á landsbyggðinni
sem hefur sannað sig. Það er mik-
il viðurkenning og hvetur okkur til
frekari dáða,“ segir í tilkynningu frá
aðstandendum hátíðarinnar.
Fjölbreytt dagskrá
Hátíðin í ár verður fjölbreytt og
verða allir viðburðir án gjalds.
Formleg hátíðarsetning verð-
ur annað kvöld í Vatnasafninu þar
sem m.a. verður tónlistarflutningur
á vegum Tónlistarskólans í Stykk-
ishólmi, Hólmari ársins verður
heiðraður fyrir framlag til menn-
ingarmála auk þess sem verðlaun
verða veitt í smásagnasamkeppni
sem alltaf er haldin í aðdraganda
hátíðarinnar. Í ár bárust 47 smá-
sögur í keppnina og verða nokkrar
sögur lesnar upp við setningu há-
tíðarinnar. Á föstudeginum verður
dagsrká víðsvegar um bæinn. Eins
og áður er hátíðin í samstarfi við
Grunnskólann í Stykkishólmi og
kom Hildur Knútsdóttir rithöf-
undur í Stykkishólm fyrir hátíð-
ina og vann með nemendum eldri
deilda að skapandi skrifum. Nem-
endur munu flytja afraksturinn á
bókasafninu á föstudagsmorgun.
Þá ætla nemendur að lesa upp fyrir
eldri borgara á dvalarheimilinu eft-
ir hádegið. Sýning á verkum yngri
deilda í Grunnskólanum í Stykkis-
hólmi verður í versluninni Skipavík
og um kvöldið verður boðið upp á
sögustundir og tónlist um kvöldið
í tveimur betri stofum. Í tengslum
við hátíðina hefur hópur fólks lesið
bókina Mánastein eftir rithöfund-
inn Sjón (Sigurjón Birgir Sigurðs-
son) og mun Sjón koma og hitta
leshópinn í hádeginu á laugardeg-
inum. Hann mun í framhaldinu
halda erindi í gömlu kirkjunni eftir
hádegið og þar mun Lilja Sigurð-
ardóttir rithöfundur einnig fjalla
um bækur sínar og ritverk. Eftir
kaffihlé verður Soffía Auður Birg-
isdóttir bókmenntafræðingur með
umfjöllun um maddömu Guðrúnu
Sveinbjarnardóttur í Vatnasafn-
inu og á laugardagskvöldið verða
svo tónleikar í Vatnasafninu með
hljómsveitinni Ylju, sem mun setja
endapunkt á hátíðina. Nánari upp-
lýsingar um dagskrá má finna á Fa-
cebook síðunni Júlíana – hátíð sögu
og bóka.
arg
Í tilefni konudagsins bauð Kven-
félag Stafholtstungna konum úr
nærsveitum til veislu í félagsheim-
ilinu í Þverárrétt. Mæting var góð
og konur nutu samverustundar-
innar í leik og söng. Þorvaldur
Jónsson í Brekkukoti lék við hvern
sinn fingur, einnig á nikkuna og
konur gáfu ekkert eftir í undir-
tekt. Kvenfélagskonur núverandi
og tilvonandi kvöddu Þverárhlíð-
ina með brosi á vör er áliðið var
kvölds.
Meðfylgjandi myndir tók Anna
Hallgrímsdóttir við þetta tilefni.
mm/ah
Tónlistarskólinn á Akra-
nesi er með þemaviku í
þessari viku. Nemendur
eru að æfa og semja lög
sem tengjast þjóðsögum
og ævintýrum og verða
tvennir tónleikar næst-
komandi fimmtudag 27.
febrúar. Tónleikar með
ævintýraþema verða kl.
16.30 og kl. 18.00 verða
tónleikar með þjóð-
söguþema. Ævintýrin
eru allt frá Söngvaseið
til Frozen og þjóðsög-
urnar m.a. Móðir mín
í kví kví og Djákn-
inn á Myrká. Á ösku-
dag milli kl. 14.00 og
15.30 er svo opið svið
í anddyri skólans þar
sem öllum er boðið að
stíga á stokk og taka
lagið eða spila, bæði
við lifandi meðleik en
einnig verður hægt að
syngja lög sem hægt
er að finna á t.d. You-
tube.
-fréttatilkynning
Komu saman á Konudegi
Júlíana hátíð sögu og bóka hefst á morgun. Hér má sjá mynd af tónlistaratriði
heima í stofu á hátíðinni í fyrra. Ljósm. úr safni/sá
Júlíana framundan í Stykkishólmi
Bréfaskrif hvunndagshetju
til umfjöllunar í Snorrastofu
Erla Hulda Halldórsdóttir sagn-
fræðingur.
Þemavika í Tónlistarskólanum á Akranesi