Skessuhorn


Skessuhorn - 15.04.2020, Side 23

Skessuhorn - 15.04.2020, Side 23
MIÐVIKUDAGUR 15. ApRÍL 2020 23 Krossgáta Skessuhorns Hér er ný krossgáta fyrir lesendur að spreyta sig á. Athygli er vak- in á því að ný krossgáta er birt í blaðinu aðra hverja viku. Þeir sem vilja geta sent Skessuhorni lausnarorð/in á netfangið: krossgata@ skessuhorn.is fyrir klukkan 15:00 á mánudögum, 12 dögum eftir að hún birtist. Athugið að fullt nafn og heimilisfang þarf að fylgja með lausninni. Þeir sem ekki hafa aðgang að tölvupósti sendi lausnir á: „Skessuhorn - krossgáta, Kirkjubraut 56, 300 Akranesi (póstleggja þarf lausnir í síðasta lagi á fimmtudegi í vikunni eftir að hún birt- ist). Dregið er úr réttum innsendum lausnum og fær vinningshafinn bók að launum. Lausn á síðustu krossgátu var: „Vorlitir.“ Heppinn þátttakandi er Trausti Jóhannsson, Kvíaholti 1, Borgarnesi. mm Glettinn Mjög Röst Kerfi 1050 Uppá- hald Dvel Flipa Vein Minnist Norn Leiðann Getur Tvenna Næði Frá Bjálki Tuldra For- sagnir Hnykill Kúgun Snuð Beitan Tófa Tangi Mæli- eining Gestur Spil Op Magn Tók 18 Mistur Gelt Uglu Hug- fangin Nóa Strolla Loka Skjáta Menn Mat- vandur Hroki 2 4 Sans Þegar Tók 6 Elfur Seðill 50 Verk Neðan Geil Bolur 13 Ras Liður Grip Vein Annesið Magur Veisla Klisja Æsir Samtök Loka Duft Slæm Vangi Fát Grjót For Ról Glossar Snúast 19 Boð Innir Más 11 17 Minnkar Jánkar Ið Vist Aldin- ið 9 Örn Eðli Skæði 1 Fugl Mistur Heppn- ast 5 Fersk Harð- neita Rödd Ofnar Leit 551 Refsa 3 Kaðal Fuglinn Spann Laðaði Læti Stilla Flakk Anga 14 Ekki Flan Örður 20 Hár Útlimi Kvað 7 Ráf Tvíhlj. Slá 8 Friður Mynni Suddi Lúku 16 10 Faðmaði Röð Álit Spurn Korn Grip 12 15 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 P Á S K A U N G I H L U S T Æ A L E I R K A R P A I K T A N Ý T T B T J A L D T R Ú R A U S T I A Ð A N K I Á R N A R Ú Ð A R B Á K N Ð D Á I Ð J U A B M N U N I R M Ó A Ó K Ó M A N A M A R B E N D I L Ö K U R R R Ó F E I M I N E M J A R Á T N Y T N N M Á F A L L I T I S G U L L T R E K K I L M U R V I T R A K N Á Á M U A T O R I Ð A U R R Ý R Æ Ð A V O R L I T I RL A U S N Ú R S ÍÐ A S T A B L A Ð I Pistiill - Axel Freyr Eiríksson Þessi vírus var búinn til í rannsókn- arstofu til að eyða fátæku fólki. Nei, nei, þetta er sjúkdómur hvíta fólks- ins, eða Kínverja, að minnsta kosti er þetta útlendingum að kenna. Bill Gates bjó til þennan vírus til að nota Afríku sem tilraunastofu fyr- ir bóluefni og bóluefni valda ein- hverfu og gerir fólk ófrjótt! Ég heyrði að þetta sé ekki einu sinni vírus, þetta er af því að 5G-send- ar nota bylgjur sem eitra frumur í mannslíkamanum. Bíddu, Vandana Shiva sagði að vírusinn væri afleið- ing erfðrabreyttra matvæla! Hérna í Níger í Vestur-Afríku er komið útgöngubann eftir myrkur og líklega verður hér algjört sam- göngubann fljótlega. Allur heim- urinn berst nú við vírusinn og van- þróaðasta land í heimi er þar ekki undanskilið. Tölfræðilega heima á Íslandi er um það bil einn læknir fyrir hverja 276 íbúa í samfélaginu, en Alþjóðaheilbrigðismálastofn- unin reiknar út að hérna í Níger sé einn læknir fyrir hverja 20.000 íbúa. Ég hef komið á besta sjúkra- húsið hérna í höfuðborginni Nia- mey og þó að þar sé ótrúlega dug- legt fólk sem gerir sitt allra besta, þá er ástandinu þar kannski best lýst með því að segja að hvert sem ég fór á sjúkrahúsinu þá var engin sápa við neinn vask. Vanþróað heilbrigðiskerfi veld- ur mér og auðvitað mörgum hérna í landinu miklum áhyggjum, en ég hef einnig áhyggjur af afleiðingum þess hve vanþróað menntakerfið er hérna. Um 70% af fullorðnu fólki í Níger kann ekki að lesa og því erf- itt fyrir almenning að afla sér réttra upplýsinga um heilbrigðismál, sem og öll önnur mál. Upplýsingaskort- ur er eitt, og svo er það annað sem gerir illt verra, og það eru árans flónin sem búa til, deila og breiða út falsfréttir. Á hverjum degi virðast ný skilaboð fara eins og eldur um sinu yfir Internetið og þó að net- samband sé mjög takmarkað hérna í Níger þá nær vitleysan samt að brenna hug og hjörtu fólks. Fals- fréttir ala á ótta og andúð milli ólíks fólks, þær skapa vantraust á vísindi og stofnanir, og þjóna gjörsamlega engum jákvæðum tilgangi. Af hverju trúir fólk falsfréttum? Ég veit að ég hef fallið fyrir fals- fréttum og samsæriskenningum, sérstaklega þegar ég var á mennta- skólaaldrinum. Mig grunar að það hafi verið af því að ég var svo góðu vanur og óvart ofdekraður. Ég varð einfaldlega latur og kærulaus í neyslu minni á upplýsingum, á svipaðan hátt og ég var, og er stund- um enn, latur og kærulaus í neyslu minni á matvælum. Móðir mín, og síðar fólkið í mötuneytinu á heima- vistinni á Akureyri, eldaði góðan og hollan mat sem ég tók sem sjálf- sögðum hlut. Foreldrar mínir og kennarar menntuðu mig með vel völdum upplýsingum sem ég aftur tók sem sjálfsögðum hlut. En þegar ég gat farið að stýra neyslu minni sjálfur, án ábyrgðar frá öðrum, þá kom í ljós að ég var of góðu van- ur og hreinlega bara latur og kæru- laus. Ég borðaði óhollustu án þess að hugsa um hitaeiningar og nær- ingarefni, og ég las bækur og blogg án þess að hugsa um heimildir og trúverðugleika. Útkoman varð byltingasinnaður 120 kg sveittur „kommúnisti“ sem var staðráðinn í að berjast gegn samsæri kapítalism- ans, og mögulega geimvera líka! Þegar við lesum fréttir eða at- hugasemdir af sveittum síðum Int- ernetsins, þá vitum við innst inni að við ættum ekki bara að trúa þessu án þess að skoða heimildirnar. Al- veg eins og við vitum innst inni að við ættum að hugsa um næringar- efni og hitaeiningar þegar við tök- um upp símtólið til að panta enn aðra sveitta pizzu. Það tók mig tíma að læra þessa lexíu, en við erum öll læs og það er í raun bara leti að lesa sér ekki til um það sem við troðum í okkur, hvort sem það er matur eða upplýsingar. Samt, við erum ekki öll læs, og það er þess vegna sem ég hef sér- stakar áhyggjur af falsfréttunum hérna í Níger. Við á Íslandi lærð- um í skóla að finna og nota heim- ildir í bókum og í dag er sú leit jafn- vel enn auðveldari. Það tekur enga stund að skreppa á til dæmis Sno- pes.com, eða nota leitarvélarnar til að finna og lesa upprunalegu heim- ildirnar á bakvið staðreyndir á net- inu. Maður verður bara að passa sig smá og ég mæli með potholer54 rásinni á Youtube ef þú þarft að rifja upp hvernig maður leitar að og metur trúverðugleika heimilda. Það tekur smá stund, en það er hægt að lesa sér til um allt. En hinsvegar ef þú ert ólæs manneskja í Níger og heyrir bara hljóðskilaboð í gegnum snjallsímann þinn um að bóluefni, ákveðnir hópar útlendinga eða far- símasendar séu raunverulega orsök veikindanna sem þú sérð í kringum þig, hvernig í ósköpunum áttu að komast að því hvað er rétt og hvað er rangt? Þegar loksins finnst bóluefni til að berjast gegn þessum vírus, hversu mikil óþarfa þjáning mun halda áfram í heiminum vegna fals- frétta frá bóluefnisandstæðingum? Mikið af falsfréttum hérna í Níg- er eiga uppruna sinn í Evrópu og Ameríku, og því miður sé ég vott af þeim í kommentakerfum og á Fésbókinni heima á Íslandi. Þetta er okkur til skammar. Látum ekki leti okkar leiða til þess að falsfréttir flóna fari eins og eldur um sinu int- ernetsins á Íslandi og geri illt verra um heim allan. Ef það virðast vera glæður í því sem þú lest á netinu, skoðaðu þá heimildirnar og gerðu þitt besta til að koma í veg fyrir að eldurinn breiðist út. Geir Konráð Theódórsson í Níger. Falsfréttir flóna gera illt verra Skilti fyrir utan forsetahöllina í Níger.

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.