Skessuhorn


Skessuhorn - 15.04.2020, Blaðsíða 10

Skessuhorn - 15.04.2020, Blaðsíða 10
MIÐVIKUDAGUR 15. ApRÍL 202010 Kristján Þór Júlíusson, sjávarút- vegs- og landbúnaðarráðherra, hef- ur undirritað breytingu á reglugerð um vigtun og skráningu sjávarafla. Með breytingunni verður heim- ilt að draga 0,6% frá óunnum of- urkældum (íslausum) afla sem veg- inn er á hafnarvog. Ofurkæling á fiski er tækninýjung sem Skaginn 3X þróaði fyrir nokkrum árum til vinnslu og kælingar á afla. Þessi nýjung færði afköst og gæði fisks og annarra matvæla upp á annað stig en áður hafði þekkst og hlaut fyrir- tækið fjölmörg verðlaun fyrir nýj- ungina. „Fiskur sem kældur er ofurkæl- ingu fer íslaus í kar en hins veg- ar safnast saman vökvi úr fiskin- um í karið. Fyrir liggur ítarleg út- tekt Fiskistofu á svokölluðu dripi í ofurkældum afla, en drip mætti skilgreina sem þann aukaþunga sem fiskurinn tekur til sín í formi vökva við þessa kæliaðferð. Niður- staða úttektarinnar er að þetta drip sé á bilinu 0,4-1,1%. Með vísan til þessa er með þessari breytingu á reglugerð verið að heimila 0,6% frádrátt á hafnarvog frá bróttóvigt- un á oflurkældum afla vegna þessa drips þannig að aflskráning sé rétt,“ segir í tilkynningu frá sjávarútvegs- ráðuneytinu. Kristján Þór Júlíusson sjávarút- vegsráðherra segir að skipum sem búa yfir búnaði til að ofurkæla afla hafi fjölgað hratt undanfarið. „Það hefur verið sérstaklega áhugavert að fylgjast með þeirri þróun enda um að ræða íslenskt hugvit og því enn ein staðfesting þess að íslensk þjónustu- og hátæknifyrirtæki eru í fararbroddi við að hámarka gæði aflans með nýjustu tækni. Það er mikilvægt að stjórnvöld fylgist með þessari þróun og liðki fyrir henni, m.a. með því að sjá til þess að reglu- verkið hvetji til slíkrar framþróun- ar. Það er meginmarkmið þeirra breytinga sem við erum hér að gera,“ sagði Kristján Þór. mm Nú er gert ráð fyrir að fjöldatak- markanir verði áfram á samkomur, jafnvel út þetta sumar, vegna Co- vid-19 faraldursins. Áfram mun fólk þurfa að halda tveggja metra fjar- lægð og gæta ítrustu varkárni og tillitssemi í samskiptum, jafnvel út þetta ár. Talið er að faraldurinn sé í rénun hér á landi og hefur sóttvarna- læknir lagt á það áherslu að slakað verði á samkomubanni hægt og ró- lega til að koma í veg fyrir að far- aldurinn blossi upp að nýju. Þá hef- ur hann lagt til að tilslakanir verði endurskoðaðar með þriggja til fjög- urra vikna millibili. Þetta var meðal skilaboða sem sóttvarnalæknir boð- aði nú um helgina. Hann lagði fram tillögur um afléttingu samkomub- anns í skrefum í hendur heilbrigð- isráðherra sem kynnti næstu skref á fundi með öðrum fulltrúum úr ríkis- stjórn í gær. Forsætisráðherra, heilbrigðisráð- herra og dómsmálaráðherra kynntu á blaðamannafundi í gær næstu skref stjórnvalda vegna Covid-19. Heilbrigðisráðherra gerði þar grein fyrir ákvörðun sinni um tilslakanir á takmörkunum á samkomum og skólahaldi. Breytingarnar taka gildi 4. maí. Í þeim felst m.a. að opnað verður fyrir hefðbundið skólahald í leik- og grunnskólum, unnt verð- ur að opna framhalds- og háskóla á ný með takmörkunun, fjöldamörk samkomubanns verða hækkuð úr 20 í 50 manns, heimilt verður að hefja á ný ýmsa þjónustu, svo sem á hár- greiðslu,-, nudd- og snyrtistofum, tannlæknar geta tekið til starfa og söfn geta opnað á ný fyrir viðskipta- vinum sínum. Ítreka skal að samko- mubann verður óbreytt til 4. maí næstkomandi. Þá mun hefjast af- létting þess í fáum en ákveðnum skrefum, meðal annars færu fjölda- takmarkanir úr tuttugu í fimmtíu manns 4. maí. Börn mega mæta á íþróttaæfingar Hvað íþróttastarf barna varðar þá verður það heimilt utandyra ef ekki eru fleiri en 50 saman í hóp. Þá skal vera að minnsta kosti tveggja metra fjarlægð á milli þeirra, eftir því sem unnt er, sérstaklega hjá eldri börn- um. Annað skipulagt íþróttastarf verður heimilt utandyra með þeim takmörkunum að ekki mega fleiri en fjórir æfa eða leika saman, snerting- ar eru óheimilar og halda skal tveim- ur metrum á milli einstaklinga. Þá skal notkun á sameiginlegum bún- aði haldið í lágmarki en annars skal sótthreinsa hann á milli notkunar. Eins og fyrr segir verða sund- laugar og líkamsræktarstöðvar áfram lokaðar eftir 4. maí. Líkt og hingað til verður heimilt að taka á móti 100 viðskiptavinum í matvöruverslunum og lyfjaversl- unum hverju sinni að uppfylltum tilteknum skilyrðum. Reglur um skemmtistaði, krár, spilasali og svipaða starfsemi verða óbreyttar og slíkir staðir því áfram lokaðir. Fjölmenn hátíðarhöld í óvissu Aflétting samkomubanns mun sam- kvæmt framansögðu eiga sér stað yfir tiltölulega langt tímabil og því má eiga von á að stærri viðburðir og samkomur verði ekki leyfðar í sum- ar. Það þýðir t.d. að bæjar- og hér- aðshátíðir eru í óvissu, sem og fjöl- menn hátíðarhöld á sjómannadag, svo dæmi sé tekið. Þá er sömuleið- is óvíst um hvort leyfilegt verður að halda fjölmenn íþróttamót, svo sem pollamót í knattspyrnu. Þessi skilaboð fela auk þess í sér óvissu um ýmsar samkomur sem áður hef- ur verið frestað til haustmánaðanna vegna faraldursins, svo sem ferm- ingar. Hins vegar mun tíminn einn leiða það í ljós. Óvissa um ferðalög milli landa Á blaðamannafundi ríkisstjórnar- innar í gær þakkaði Svandís Svavars- dóttir heilbrigðisráðherra þríeyk- inu; Þórólfi, Ölmu og Víði, fyrir þeirra þátt í að halda þjóðinni upp- lýstri með jákvæðum en þó ákveðn- um hætti alla daga. Slíkt hafi reynst ráðamönnum og þjóðinni ómet- anlegt. Áslaug Arna Sigurbjörns- dóttir dómsmálaráðherra sagði all- ar takmarkanir sem nú eru í gildi og verða á næstu vikum byggist á að við erum að fást við heilbrigð- isvá. Ræddi hún einnig takmarkan- ir á ferðalögum milli landa og sagði að engar tillögur þar að lútandi væru komnar fram. Þær byggðust á sam- starfi við önnur ríki. Ferðatakmark- anir verða óbreyttar til og með 15. maí næstkomandi. „Ákvarðanir um ferðatakmarkanir verða aldrei tekn- ar einhliða varðandi okkar landa- mæri, heldur byggir á samkomu- lagi milli þjóða,“ sagði Áslaug Arna. Hún sagði þorra fólks hafa brugðist við af yfirvegun og skynsemi meðan faraldurinn hefur ríkt. „Hvernig við bregðumst við mótlæti er styrkleiki okkar þjóðar,“ sagði Áslaug Arna. mm Heimilt að draga 0,6% frá ofurkældum fiskafla Fiskur sem kældur er ofurkælingu fer íslaus í kassa eða kör. Ljósm. Skaginn 3X Samkomuhald verður áfram í lágmarki en hömlum að hluta aflétt 4. maí Svipmynd frá Lopapeysuballi á Akranesi. Fjölmennar sumarhátíðir er ólíklegt að verði leyfðar í sumar. Ljósm. úr safni. Skólahald í framhalds- og háskólum fer í gang að nýju eftir 4. maí næstkomandi. Svipmynd úr safni frá Háskólanum á Bifröst.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.