Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.2021, Qupperneq 2

Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.2021, Qupperneq 2
Dýrindis leki Það titraði hver taug í Svarthöfða þegar hann læsti hanskaklæddum krumlum sínum í gögn sem láku frá lögreglunni á höfuð- borgarsvæðinu. Það er eigin- lega engin tilfinning sem jafnast á við það að lesa eitt- hvað sem maður má ekki lesa. Eitthvað tabú, bannað, synd- samlegt. Svarthöfði veit að svona gagnalekar eru ekki á hverju strái og ákvað því að njóta hverrar sekúndu af lestrin- um. Svo hann lét renna í bað, kveikti á nægilega mörgum kertum svo hægt væri að sjá orð á blaðsíðu, fórnaði tveim- ur lavenderbaðbombum og dýrindis magnesíumsalti. Svo hellti hann bjór í rauðvíns- glas, því hann er svo fágaður en ekki með smekk fyrir rús- ínudjús. Svo lét hann sig síga ofan í heitt vatnið og smjattaði nautnalega á hverju orði. Því- lík veisla. Rúmlega klukkustund síðar var ekki útlimur á Svarthöfða sem ekki minnti á rúsínu og baðvatnið löngu orðið kalt. Reyndar ekki pungurinn, eða hvað? Maður sér víst engan mun á rúsínupung og hefð- bundnum krumpupung – en þetta er útúrsnúningur, aftur að gögnunum. Þó gögnin séu komin til ára sinna og rannsókninni sem þau varða löngu lokið með sýknu og síðar bótagreiðslum til þess lögreglumanns sem grunaður var um misferli þá má samt finna þarna áhuga- verða innsýn í starfsemi og starfanda lögreglunnar sem ítrekað hefur komið til um- ræðu opinberlega, og þá ekki fyrir hversu mikið öll dýrin í þeim frumskógi eru vin- veitt hvert öðru. Tortryggni, afbrýði, meinfýsi og klíku- skapur – þetta skein í gegn úr gögnunum. Athyglisverðast var þó að lesa um upplýsingagjafa lög- reglunnar. Ef marka má gögn- in var það vel þekkt meðal lög- reglumanna að viðkomandi var stórtækur í undirheimum landsins. Hann kom ítrekað við sögu við rannsókn saka- mála, hafði nokkra dóma á bakinu og var grunaður um fleiri brot. Engu að síður var það lending lögreglunnar að nota hann sem upplýsinga- gjafa. Svarthöfði hefði haldið að lögreglan ætti að setja púður í að rannsaka svona menn og stoppa þá af, en ekki koma á upplýsingasambandi sem virðist þar að auki hafa verið þvert á reglur. Upplýsingagjafinn virðist hafa verið í fínni stöðu. Enda hlýtur það að vera þeim í hag sem eru stórtækir í undirheim- um að geta notað lögregluna til að minnka samkeppnina, já, eða handvelja upplýsingar til að fæða hana með til að halda henni upptekinni svo að hún sé ekki að skipta sér af hans eigin ólöglegu starfsemi. Í gögnum kemur þetta bein- línis fram. Hann hafði sam- band við lögreglu og fékk hana til að handtaka leigjanda sem hann losnaði ekki við. Á meðan lögreglumenn tor- tryggja hver annan, þá sat baróninn í mestu makindum í glæsihöll sinni. Áhyggjulaus, enda lögreglan of upptekin við að elta skottið á sjálfri sér til að takast á við meinta myrkra- höfðingjann. n SVART HÖFÐI Aðalnúmer: 550 5060 Auglýsingar: 550 5070 Ritstjórn: 550 5070 FRÉTTA SKOT 550 5070 abending@dv.is Hugrekkið í að vera erfið Ó fáar konur hafa verið kallaðar erfiðar í gegnum tíðina. Það er ekkert sérstak- lega skemmtilegur hali að draga en kannski þarf að hugsa þessa hugmynd upp á nýtt. Það sem er erfitt leiðir yfir- leitt af sér ávinning. Hvort sem það er breytt heimssýn, dýpri skilningur, aukið úthald, eða jafnvel efnahagslegur eða líkamlegur vöxtur. Það þarf hugrekki til að halda kröfum sínum til streitu og gefa ekki of mikið eftir af þeirri sýn sem lagt er upp með. Það skiptir máli að láta til sín taka. Að gera sig gildandi og láta um sig muna – heyra sína eigin rödd og vera óhrædd við að synda gegn straumnum. Já-fólkið gleymir því oft að það að vera alltaf sammála öllum gerir það óþarft. Það bætir engu við. Það er í góðu lagi að vera erfið og láta til sín taka. Það er meira en í lagi. Það er stórkostlegt! Íslenskt þjóðfélag er byggt á dugnaði. Bú- skapurinn á þessu kalda og lifandi landi var og er ekkert grín. Landið ól upp í okkur digra upphandleggsvöðva eftir erfiða útivinnu, þrautseigju, þjóð- sögur til að efla andann og löngun- ina til þess að eignast eitthvað í eigin nafni. Forsíðuviðtal DV er við Ástu Sig- ríði Fjeldsted sem tók nýlega við sem framkvæmdastjóri Krónunnar. Ásta hefur sannarlega gert sig gildandi og er hvergi bangin við að taka slaginn ef þurfa þykir. Í viðtalinu lýsir hún ferð sinni í átt að því að finna jafnvægi milli þess að vinna of mikið en næra samt eldmóðinn. Metn- aðurinn hefur margar hliðar. Metnaður fyrir því að ná langt í starfi, metnaður fyrir andlegri og líkamlegri heilsu, fyrir fjöl- skyldunni og öllu því sem fylgir að vera gott foreldri. Sem foreldri þekkjum við það mörg að vilja svo innilega gera vel en eiga eina barnið sem er ekki í bleikum fatnaði á „bleika deginum“ en vera með heimabakað nesti gert eftir Pinterest-myndum – eða ekki. En hvernig gerir maður minna – án þess að gefa of mikið eftir af lífsgæðum sínum? Ásta ræðir opinskátt um að það sé krefjandi að vera í toppstöðu en velja að minnka við sig. Velja að láta ekki allt lífið snúast um vinnuna. Það þýðir alls ekki að þú sért ekki framúrskarandi í starfi – ég tel að það þýði einmitt það. Að bestu starfsmennirnir séu ekki endilega þeir sem slökkva ljósin heldur þeir sem taka virkan þátt á fleiri sviðum en þeim sem snúa eingöngu að vinnunni. Efli þannig reynslu, tengsla- myndum og heilbrigt líferni. Og forðist kulnun. Það er líka svo áhugavert að rýna í afköst – sá sem er lengst gerir ekki endilega mest. Ásta útskýrir vel hvernig hún misbauð líkama sínum með allt of mikilli vinnu. Vinnu sem er ákaflega eftirsóknarverð og lífsstíl sem myndi hala inn „læk“. Glæsileg hótel úti um allan heim, krefjandi verkefni og eldmóður á hverjum fundi. Það er vissulega spennandi í einhvern tíma en svo þurfum við öll að velja hvernig líf við viljum. Að vinna minna þýðir ekki að gera það verr eða finnast minna vænt um vinnuna sína, það þýðir einmitt að maður hafi hug á að halda heilsu og neista til þess að endast í starfi. Gera færri hluti og gera þá vel – um leið er gott að hugsa til þess hvað við þurfum í raun og veru. n Það er í góðu lagi að vera erfið og láta til sín taka… Það er stórkostlegt! UPPÁHALDS ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Helgi Magnússon FORSTJÓRI OG ÚTGEFANDI: Björn Víglundsson RITSTJÓRI: Þorbjörg Marinósdóttir, tobba@dv.is AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Erla Hlynsdóttir, erlahlyns@dv.is FRÉTTASTJÓRI: Ágúst Borgþór Sverrisson, agustb@dv.is AUGLÝSINGAUMSJÓN: Hrafn Norðdahl, hrafn@dv.is PRENTUN: Torg prentfélag DREIFING: Póstdreifing. DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis. DV, Kalkofnsvegi 2, 101 Reykjavík Sími: 550 7000. Jóhannes Ásbjörnsson, einn eigenda Gleðipinna sem meðal annars reka Hamborg- arafabrikkuna, Eldsmiðjuna og Aktu taktu, er mikill ham- borgaramaður. 1 Five Guys Frábærir borgarar. Ofurein- faldir en samt svo hrikalega góðir. 80/20 blanda af chuck og hágæða nautahakki. Svo gera þeir frönskurnar sínar sjálfir. 2 Steikarborgarinn á Búllunni Steikarborgarinn á Búllunni er hamborgari sem ég verð að fá mér öðru hvoru. Búllan er dásamlegur hamborgara- staður og endalaus ást og virðing til Tomma, the man, the myth, the legend. 3 The Bird Berlin Magnaður hamborgarastað- ur í Prenzlauerberg í Berlín. Skammtarnir eru risavaxnir og hamborgararnir 250 g. Fílingurinn, bragðið og kon- septið algjörlega upp á 10. 4 Yuzu Chilli Krakkarnir á Yuzu á Hverf- isgötu eru töframenn. Fundu alveg nýtt teik og alveg nýtt bragð. Staður sem allir þurfa að prófa. Muna að panta Yuzu mayo með fröllunum. 5 Stefán Karl á Fabrikkunni Ég leyfi mér að nefna einn til sögunnar úr eigin vopna- búri. Stefán Karl er einn besti borgari sem við höfum sett saman. Eyþór Rúnarsson draumakokkur negldi þenn- an heiðursborgara Stefáns Karls. Ávanabindandi. HAMBORGARAR MYND/VALLI MYND/THEBIRDINBERLIN.COM 2 EYJAN 15. JANÚAR 2021 DV

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.