Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.2021, Side 6

Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.2021, Side 6
6 FRÉTTIR TEKIST Á UM ÖRYGGI Í FRAMHALDS- SKÓLUM EFTIR ÁRÁS Í BORGÓ Skólameistari Borgarholtsskóla vill taka upp rafrænt aðgangskerfi í skólanum. Skiptar skoðanir eru um hugmyndina og óljóst hver ætti að borga fyrir slíkt kerfi. Ó hætt er að segja að blóðug og hættuleg árás sem átti sér stað í Borgarholtsskóla í vikunni hafi vakið mikinn óhug. Ljós- myndir og myndbandsupp- tökur sem DV birti af árásinni vöktu mikil og hörð viðbrögð og spurt var hvernig slíkt gæti átt sér stað innan veggja skóla hér á landi. Á myndbandinu sjást árásarmennirnir sveifla kylfu af miklum krafti og auð- velt er að álykta að hending ein hafi komið í veg fyrir stór- slys, þó fjölmargir hafi vissu- lega slasast. Lögreglan handtók á fimmtudaginn þrjá menn í tengslum við árásina. Sam- kvæmt heimildum DV hafa illindi staðið á milli mannanna í einhvern tíma. Árásarmenn- irnir höfðu reynt að ginna fórnarlömb sín upp í Spöngina, verslunarkjarna í Grafarvogi, en þegar það tókst ekki lögðu þeir leið sína í Borgarholts- skóla. Sex voru fluttir á slysa- deild. Vill rafræna aðgangs­ stýringu að Borgó Ársæll Guðmundsson, skóla- meistari Borgarholtsskóla, sagði í viðtali strax sama dag og árásin átti sér stað að árásin yrði til þess að breyta ýmsu í íslensku samfélagi og á skólakerfinu. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Ársæll viðrar hugmyndir að breytingum á umhverfi ís- lenskra skóla. Í samtali við DV segir Ársæll að hann hafi reyndar rætt þetta í mörg ár. Breytt umhverfi og atburði sem hafi verið að gerast, m.a. í nágrannalöndum okkar, segir Ársæll meðal ástæðna fyrir þessum hugmyndum sínum. „Ég hef verið að tala um þetta, já, og hvað aðgengi að þessum stofnunum er í raun og veru óheft fyrir utanað- komandi aðila. Við getum ekki fylgst með öllum þessum inn- göngum í þessi hús,“ útskýrir Ársæll. „Oft á tíðum eru skrif- stofur skólanna á annarri hæð húsanna en ekki við innganga. Ég veit ekki hvers vegna, kannski vegna einhverrar tísku hjá arkitektum, en það er oft þannig.“ Því sé oft nokkur umgangur um ganga skólanna. Ársæll segir að hann og aðr- ir stjórnendur í Borgarholts- skóla hafi lagt það til að gömlu hefðbundnu læsingunum yrðu skipt út og rafrænni aðgangs- stýringu komið fyrir í staðinn. Ríkiseignir neita að borga Ríkiseignir eiga fasteignirnar sem hýsa framhaldsskóla, en Ársæll segir þær ekki vilja taka neinn þátt í kostnaðinum. „Þeir vilja að þetta komi úr rekstrarfé skólanna, en það er bara ekki hægt,“ útskýrir hann. „Nú fer þessi umræða væntanlega aftur af stað eftir þennan atburð. Ég hefði þá helst viljað taka sérstaka um- ræðu um hvernig aðgengi að skólastofnunum eigi að vera eftir þetta.“ Kostnaðurinn við uppsetn- ingu á rafrænni aðgangsstýr- ingu er á annan tug milljóna króna, segir Ársæll. „Þetta er dýrt kerfi því það þarf að leggja að þessu rafmagnslagn- ir og koma fyrir tölvustýring- um og forrita tölvukerfin. Við höfum verið að skoða þetta fyrir þennan atburð og fyrir COVID.“ Stjórnendur í Borgarholts- skóla höfðu fyrir COVID lokað inngöngum og reynt að stýra flæði nemenda um fáa inn- ganga, en það gekk auðvitað ekki á COVID-tímum. Öryggismyndavélar mynda bara glæpinn „Við erum með öryggismynda- vélar hérna í skólanum, en þær mynda bara atburðinn en koma ekki í veg fyrir þá. Þegar brjálæðið er orðið eins og það var í gær þá skipta líka öryggismyndavélar ekki neinu máli,“ segir Ársæll. Hann segist jafnframt ætla að halda umræðunni um þetta á lífi. „Ég veit að fleiri skólar eru á þessu og eru að skoða þetta með rafræna aðgengið. Við höfum jafnframt rætt við ríkislögreglustjóra og mennta- málaráðuneytið og skólameist- arafélagið hefur fjallað um þetta mál á sínum vettvangi. Auðvitað viljum við hafa þetta frelsi á Íslandi og allt opið, en við vitum að það eru einstakl- ingar í samfélaginu sem geta ekki farið eftir reglum eða eru á þannig stað í lífinu að þeir eru bara hættulegir,“ segir hann að lokum. Skiptar skoðanir um hugmyndir Ársæls Kristinn Þorsteinsson, for- maður Skólameistarafélagsins og skólameistari í Fjölbrauta- skólanum í Garðabæ, segir skólastjórnendur þar ekki hafa tekið sérstaka afstöðu til frekari aðgangsstýringar en tekur undir með Ársæli að frelsið hér á Íslandi sé dýr- mætt og ljóst að það þurfi að verja. „Það er nú verið að vinna að viðbragðs áætlun framhaldsskólanna, sem verður þá leiðbeiningarskjal fyrir framhaldsskóla í neyðar- tilfellum.“ Skýrslan er unnin í samráði við meðal annars almanna- varnadeild ríkislögreglustjóra að frumkvæði Skólameistara- félagsins. Kristinn segist ekki hafa séð lokaútgáfu skýrsl- unnar en að von sé á henni á næstunni. Segist Kristinn bú- ast við að litið verði til hennar í sambandi við næstu skref. Aðrir skólastjórnendur sem DV ræddi við, bæði í borginni og utan hennar, en vildu ekki koma fram undir nafni sögðust allir uggandi yfir atburðum vikunnar í Borgarholtsskóla og að vissu- lega væri tilefni til þess að skoða hvort hægt hefði verið að koma í veg fyrir þá. Að- gangsstýring og aukið eftir- lit hefði ekki endilega gert það. „Það er alveg ljóst að ör- yggismyndavélar komu ekki á neinn hátt í veg fyrir árásina í Borgó, þessum mönnum var alveg sama þó þeir næðust á mynd,“ sagði einn. Annar sagðist ekki endilega sjá lausn í aðgangsstýringu. „Í flestum framhaldsskólum, þá sérstak- lega utan höfuðborgarinnar, er byggingum hreinlega læst á kvöldin og þær eru galopnar á daginn. Ég á mjög erfitt með að sjá það breytast á næst- unni.“ Lilja Alfreðsdóttir mennta- málaráðherra sagði í gær, fimmtudag, við Fréttablaðið að öryggismál í framhaldsskólum yrðu skoðuð og rædd á fundi hennar með skólameisturum og rektorum framhaldsskóla. „Þar förum við yfir ofbeldið sem átti sér stað í gær og stöð- una,“ var haft eftir mennta- málaráðherra í blaðinu. Ekki náðist í fulltrúa Ríkis- eigna við vinnslu fréttarinnar en Ríkiseignir eiga og reka húsnæði íslenskra framhald- skóla. n Heimir Hannesson heimir@dv.is 15. JANÚAR 2021 DV Skólameistari Borgarholts- skóla vill taka upp rafræna aðgangs- stýringu að skólanum eftir blóðuga árás í skólanum í vikunni. MYNDIR/ ANTON BRINK

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.