Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.2021, Side 13

Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.2021, Side 13
Ásta segir mikilvægt að láta í sér heyra og það sem fyrst. MYND/VALLI Konur kvarta oft undan því, og með réttu, að erf- iðara sé fyrir þær en karla að ná at- hygli á fundum. að eiga heilbrigt líf, vinna minna og vera meira með fjölskyldunni. „Það ýtir líka undir að leikskólar eru með stuttan opnunartíma,“ segir Ásta og vísar í leikskóla barna sinna sem er lokað klukkan 16 en í Tókýó er hægt að vera með börn í leikskóla langt fram á kvöld. Þrettán mínútur á dag Ásta tók sem áður segir ný- verið við sem framkvæmda- stjóri Krónunnar á miklum umbrotatímum í íslensku atvinnulífi. „Ég þekkti til fyrirtækisins og forstjórans, Eggerts Þórs Kristófersson- ar, leist vel á hvort tveggja og ákvað að sækja um. Það skiptir máli að gera það sem hægt er til að styðja við betri matarvenjur og auðvelda fólki lífið. Líf nútímafólks gerir miklar kröfur og tíminn er dýrmætur. Í USA er talað um að „millenials“ verji um það bil 13 mínútum í matseld á dag að meðaltali. Við höfum ekki tíma til að elda allt allt- af frá grunni og því þarf að tryggja aðgengi að næringar- ríkum hálftilbúnum réttum og veita fólki val um að panta vörur eða versla sjálft.“ Gott aðgengi að vörum á réttu verði sé þó ekki allt heldur þurfi líka að tryggja rétta starfsfólkið. Í gegnum stjórnarsetu sína í HR hefur hún fylgst náið með mennta- málum og er hugsi yfir of mikilli einsleitni í menntaá- herslum hérlendis og skorti á að starfsreynsla sé metin að verðleikum. „Verslunarstjóri í matvöruverslun er oft með veltu sem samsvarar veltu meðalstórs fyrirtækis á Ís- landi en hans starf er ekki metið að verðleikum og jafn- vel talað niður sem starf. Þetta er svo mikill reginmis- skilningur. Þetta eru geysi- mikilvæg störf. Annað dæmi er að góður vinur minn í Danmörku fór að læra það að vera afgreiðslumaður í herra- fataverslun. Hann fór í stutt iðnnám og lærði um efni, stíliseringu, snið, útstillingar, afgreiðslu. Mér fannst þetta svo aðdáunarvert. Hann var einn besti sölumaður sem ég veit um og var stoltur í sínu starfi. Svona starfsmenntun er ekki til á Íslandi. Hér er þér bara hent á bak við kassa eða borð og látinn bjarga þér. Mér finnst svo mikil synd að við séum ekki að lyfta fleiri störfum upp að þessu leyti. Ég vil gjarnan beita mér fyrir því.“ Ásta bendir á að það vanti fjölbreytni í námsleiðum bæði í framhalds- og háskólum, of margir séu að mennta sig í því sama. „Það er líka þessi ofuráhersla á stjórnunarstörf þegar það eru sérfræðistörfin sem skapa svo mikil verð- mæti. Ef einhver sérfræð- ingur skarar fram úr er hann verðlaunaður með stjórnunar- stöðu og hættir í raun að gera það sem hann er bestur í.“ Að láta í sér heyra Aðspurð um hvað hafi hjálpað henni mest í að ná árangri í starfi svarar hún: „Það sem ég lærði í grunninn, heima, að mitt álit skiptir máli og mikilvægi þess að hafa eitt- hvað til málanna að leggja. Það er svo mikið til í því sem Sheryl Sandberg segir í bókinni Lean in – það skiptir svo miklu máli að „halla sér að borðinu“ og láta heyra í sér. Ef þú lætur ekki í þér heyra strax í byrjun fundar, þá ertu að koma of seint inn í umræðuna. Þú þarft að taka þátt fljótt, láta vita að þú hafir áhuga og sért að hlusta – og þurfa ekki alltaf að vera sam- mála. Konur kvarta oft undan því, og með réttu, að erfiðara sé fyrir þær en karla að ná athygli á fundum. Í því sam- hengi skipti sköpum að vera vel undirbúin. “ Ævintýri Ástu voru flestöll óplönuð og þar kemur hug- rekki sterkt inn. „Það þarf stundum að láta lífið leiða sig áfram og þora að grípa ólík- legustu tækifærin sem maður er ekkert endilega viss um að séu rétta skrefið eða muni færa manni akkúrat einhvern fullkominn stað, enda er full- komnunarárátta bölvun sem herjar á okkar kynslóðir,“ segir Ásta sem sjálf hefði lík- lega aldrei séð hamingjuna fyrir í gömlum skólabróður, íslenskri matvöruverslun og tveimur brosandi uppátækja- sömum börnum – og vonandi brúðkaupi í sumar. n FRÉTTIR 13DV 15. JANÚAR 2021

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.