Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.2021, Qupperneq 15

Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.2021, Qupperneq 15
Í þyngsta og erfiðasta málinu sem ég man eftir óttaðist kona sannarlega um líf sitt. FRÉTTIR 15DV 15. JANÚAR 2021 þegar um ofbeldi er að ræða,“ segir Ásta og kemur með dæmi um mál af þessum toga sem velferðarsvið tókst á við. Beitt ofbeldi af föður og bróður „Oft höldum við að heiðurs­ tengt ofbeldi eigi sér aðeins stað hjá fólki sem er nýkomið til landsins frá öðrum menn­ ingarheimum en erlendar rannsóknir frá til dæmis Bretlandi sýna að það er ekki alltaf raunin. Ég get nefnt dæmi af konu sem leitaði sér aðstoðar á heil­ brigðisstofnun vegna sjálfs­ vígshugsana og þunglyndis. Hún sagðist hafa verið beitt ofbeldi af hálfu föður og bróður. Þetta var fjölskylda sem við myndum líta á sem Íslendinga. Hún og bróðir hennar voru fædd hér og uppalin en fjölskyldan hafði sterk tengsl við upprunalandið og færði menningu þess með sér hingað. Þessi unga kona hafði gengið í skóla á Íslandi alla tíð. Þegar hún opnaði sig kom í ljós að hún mátti ekki eiga íslenska vini, hún mátti ekki taka þátt í skólastarfi utan hefðbundins skólatíma, vinir hennar voru frændur og frænkur, og hún var skömmuð fyrir ákveðinn klæðaburð sem þótti of djarfur í augum fjöl­ skyldunnar. Hún var í vinnu en allur peningur var tekinn af henni. Eftir að hún opnaði sig og lögregla var kvödd til upp­ lifði hún sig í mikilli hættu og óttaðist hreinlega um líf sitt af hálfu föður og bróður.“ Stjórna peningum og klæðaburði Ásta segir þessi mál bæði við­ kvæm og vandmeðfarin, ekki síst þegar kemur að umfjöllun um þau. „Við viljum ekki að fólk sé að dæma þjóðfélags­ hópa en við þurfum að vera vakandi fyrir því hversu falið ofbeldið er en einnig því við höfum ekki haft orð til að lýsa því,“ segir hún. Ásta bendir á að niðurstöður rannsókna sýna að heiðurs­ tengt ofbeldi sé almennt hluti af kynbundnu ofbeldi en ger­ endur séu hins vegar ekki bara maki eins og þegar um kynbundið ofbeldi er að ræða heldur jafnvel margir með­ limir fjölskyldunnar. Þá séu það einnig mæður og tengda­ mæður sem taka þátt í ofbeld­ inu. „Margir tengja karlmenn og líkamlegt ofbeldi frekar við þetta heiðurstengda of­ beldi en þetta getur verið svo margslungið. Birtingar­ myndirnar geta falist í kröfu um hlýðni og virðingu. Ég tek fram að oft ríkir sátt innan fjölskyldna um að ákveðnar venjur séu í hávegum hafðar, en þegar þessi sátt er ekki til staðar eru við í vandræðum. Ofbeldið getur þá líka falist í því að fá ekki að stjórna eigin peningum, internetnotkun, fatavali og síma,“ segir hún. Þá sé erfitt að átta sig á um­ fangi ofbeldisins því fólk sem býr við þetta ofbeldi eða þetta félagslega taumhald á lífi sínu hringir ekki á lögregluna, og færir þannig skömm yfir fjölskylduna. „Þess vegna er fræðslan svo mikilvæg og að þau sem vinna með fjölskyld­ um og börnum séu þjálfuð til að þekkja einkennin, svo sem félagsráðgjafar, starfsfólk heilbrigðisþjónustu, skóla­ hjúkrunarfræðingar og fleiri. Oft koma þessar fjölskyldur úr samfélagi þar sem ekki ríkir sama einstaklingshyggja og hér. Þess vegna hringir fólk sjaldnast á lögregluna nema það sé hreinlega hrætt um líf sitt,“ segir hún og játar að þekkja dæmi um slíkt. Flúði með barnið „Í þyngsta og erfiðasta málinu sem ég man eftir óttaðist kona sannarlega um líf sitt. Hún hafði gift sig hingað til lands fyrir tilstuðlan fjölskyldu sinnar og fjölskyldu manns­ ins hennar. Hún bjó hér á hans heimili ásamt foreldrum hans og fóru öll saman til uppruna­ landsins í ferðalag eftir að þau höfðu eignast saman barn. Þegar hún kom til baka gaf hún sig á tal við landamæra­ eftirlitið og sagðist þurfa að­ stoð við að komast frá mann­ inum sínum. Hún hafði búið hér í nokkur ár, var háð mann­ inum fjárhagslega og átti ekki eigin bankareikning, talaði hvorki íslensku né ensku. Einu samskipti hennar voru við fjölskyldu mannsins og sam­ landa þeirra. Eftir að hún var flutt í Kvennaathvarfið var henni hótað lífláti og allir sem unnu að málinu voru hræddir um líf hennar. Þarna skipti öllu gott samstarf félagsþjónustu, lögreglu og Kvennaathvarfs. Þetta mál endaði þannig að hún flúði til útlanda með barnið.“ Ekki tengt trúarbrögðum Ásta ítrekar að þessar frá­ sagnir sýni hversu mikilvægt sé að fagfólk geti gripið strax inn í og þekki merkin. Hér hafi konur leitað á geðdeild og til landamæraeftirlits, en ekki hringt á lögreglu. Hún bendir einnig á annars konar ranghugmyndir tengdar þessu en samkvæmt þeim rannsóknum sem hún hefur kynnt sér eru ekki tengsl á milli heiðurstengds ofbeldis og trúarbragða. „Þetta hefur verið skoðað sérstaklega, til dæmis varðandi heiðurstengt ofbeldi og íslam og það er ekkert í þeim trúarbrögðum sem ýtir undir þessa tegund glæpa. Þvert á móti er í íslam litið á allt líf sem heilagt. Það er frekar að í fjölmiðlum hafi verið ýjað að tengslum við trúarbrögð og það er mjög hættulegt. Það eru mun frekar tengsl við menningu ákveðinna þjóða og samfélaga þar sem hið svo­ kallaða feðraveldi er við lýði, kynbundið ofbeldi og strang­ ar félagslegar hindranir þegar kemur að samskiptum kynjanna,“ segir hún. Þá segir Ásta mikilvægt að við á Íslandi séum meðvituð um að þessi tegund ofbeldis eigi sér stað. „Stjórnvöld þurfa að setja heiðurstengt ofbeldi inn í stefnumótun og lagasetningu. Við gerum mjög vel að þessu leyti þegar kemur að öðrum tegundum ofbeldis, svo sem heimilisofbeldi, en erum hér eftirbátar nágranna­ þjóða. Forvarnir og fræðsla eru lykillinn. Ég kalla eftir skýrri stefnumótum frá fé­ lagsmálaráðuneytinu í þessum málaflokki,“ segir Ásta. Fullgilding Istanbúl-samningsins DV sendi fyrirspurn til félags­ málaráðuneytisins og spurði hvort þar hefði farið fram ein­ hver stefnumörkun eða önnur vinna í tengslum við heiðurs­ tengt ofbeldi og þá hver hún væri. Í svari frá ráðuneytinu segir meðal annars: „Stefna og aðgerðir stjórnvalda gegn ofbeldi hafa verið gegn því samfélagsmeini sem ofbeldi er í heild sinni, frekar en að afmarka einstakar birtingar­ myndir þess, s.s. heiðurstengt ofbeldi.“ Þá er í svarinu bent á að Ísland hafi árið 2018 fullgilt Istanbúl­samninginn en það er samningur um forvarnir og baráttu gegn ofbeldi gagn­ vart konum og heimilisofbeldi. Hann kveður á um réttindi brotaþola og skyldur opinberra aðila til að vernda og aðstoða þær konur sem verða fyrir ofbeldi, fræða almenning, stjórnvöld og fagaðila, sinna forvörnum gegn ofbeldi og bjóða ofbeldismönnum úrræði og meðferð. Sérstakt ákvæði um heiðurstengt ofbeldi er að finna í Istanbúl­samningnum. Í svari félagsmálaráðu­ neytisins segir einnig: „Öflug og markviss vinna hefur átt sér stað gegn ofbeldi af öllu tagi í íslensku samfélagi og afleiðingum þess. Má þar sérstaklega nefna vinnu að­ gerðateymis gegn ofbeldi sem skipað var sl. vor, sem ein af viðbrögðum stjórnvalda við áhrifum Covid­19. ... Að­ gerðum hefur verið ætlað að ná til allra hópa samfélags­ ins, en jafnframt er sérstök áhersla lögð á viðkvæma hópa þar með talið fólk af erlendum uppruna.“ Í því sambandi hafi meðal annars verið veittir styrkir til verkefna sem miða að fólki af erlendum uppruna, svo sem vitundarvakning meðal kvenna af erlendum uppruna um ofbeldi, verkefni sem lýtur að því að valdefla konur frá Mið­Austurlöndum, rannsókn á reynslu kvenna af erlendum uppruna á kynbundnu ofbeldi, og miðlun upplýsinga um þjón­ ustu Aflsins og Bjarmahlíðar á Norðurlandi á mörgum tungu­ málum. n Ásta K. Benediktsd. félagsráðgjafi og deildarstjóri hjá velferðarsviði Rvkborgar

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.