Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.2021, Page 16

Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.2021, Page 16
16 EYJAN Erla Dóra Magnúsdóttir erladora@dv.is 15. JANÚAR 2021 DV H jónaband á Íslandi er skilgreint sem hjú­skapur tveggja ein­ staklinga, óvígð sambúð sömuleiðis. Píratar vilja breyta þessu og stefna á að leggja fram þingsályktunar­ tillögu um breytingu á hjú­ skaparlögum til að afnema fjöldatakmarkanir í hjúskap og sambúð. Þessi hugmynd hefur vakið nokkra athygli og telja margir að þarna séu Pír­ atar að stefna að lögleiðingu fjölkvænis hér á landi. Björn Leví Gunnarsson segir að hugmyndin sé ekki að hrófla við klassískum hug­ myndum um hjónaband heldur afnema þær hugmyndir úr lögum svo ráð sé gert fyrir fjölbreyttara sambúðarformi landsmanna. Ekki einskorðað við tvo „Ég bjóst svo sem við því að þetta yrðið eitthvað mis­ skilið. Ég er að hugsa þetta meira sem aðskilnað laga­ legs hjúskapar og líkam­ legs hjúskapar. Hið opinbera veitir ákveðin réttindi og þess háttar til fólks með lagasetn­ ingu og gerir þá ákveðnar kröfur um skráningu á móti. Það þýðir ekkert endilega að þessar klassísku hugmyndir sem við höfum um hjónaband eigi við um það sem hið opin­ bera fjalli um í lögum,“ segir Björn. Vísar hann þar til þess að persónuhögum einstakl­ inga fylgi réttindi og skyldur. Hjón eru með gagnkvæman erfðarétt, hjón sem og ein­ staklingar í skráðri sambúð geta talið sameiginlega fram til skatts, einstæðir foreldrar njóta ákveðinna réttinda og svo framvegis. Hins vegar ættu þessi réttindi ekki að vera einskorðuð við tvo óskylda einstaklinga. Kemur ekki við Bendir Björn á að áður hafi hjónaband verið skilyrt við sambönd milli karls og konu en því hafi nú verið breytt þannig að það gildi um tvo einstaklinga óháð kyni. Þess­ ar hugmyndir hafi komið frá vissu gildismati og samfélags­ legum skilningi á hugmynd­ inni um hjónaband. „Þetta snýst meira um það að aðskilja þennan skilning. Fólk geti verið í klassískum hjónaböndum í sínu lífsskoð­ unar­ eða trúfélagi og það komi hinu opinbera bara ná­ kvæmlega ekkert við. Ef fólk vill fylgja klassískum hug­ myndum og gildum þá er það í fínu lagi.“ Systkini í skráðri sambúð Hins vegar geta þau réttindi sem eru einskorðuð við hjón, sambúðaraðila og jafnvel ein­ staklinga vel átt við um fjöl­ breyttari aðstæður. „Fjögur systkini geta keypt saman hús en geta ekki skráð sig í sambúð í húsinu sem þau eiga saman og fengið sameig­ inleg réttindi vegna þess, rétt­ indi á borð við tiltekin skatta­ réttindi, svo sem samnýtingu persónuafsláttar. Annað dæmi er að einstætt foreldri með börn, sem er að fá ákveðinn stuðning og rétt­ indi sem umsjónaraðili barna á sínu heimili, missir þessi réttindi þegar barnið verður átján ára, þrátt fyrir að að­ stæður á heimilinu hafi ekkert breyst. Barnið býr enn heima og er kannski í námi og alveg á framfæri foreldris eftir sem áður. Barnið er þá komið með sinn eigin persónuafslátt sem það er ekki að nýta í náminu og með þessum breytingum sem er verið að leggja til væri hægt að halda áfram að nýta þessi samheimilislegu rétt­ indi, eins og skattkort og þess háttar. Svo eru það skyldir aðilar sem mega ekki skrá sig með sameiginlega ábyrgð á fjárhag því þeir eru skyldir og það er greinilega eitthvað agalegt gagnvart hinu opinbera út af skyldleikanum því hið opin­ bera virðist skilgreina sam­ búðarform sem eitthvað kyn­ ferðislegt.“ Ef breytingarnar ná fram að ganga getur fólk enn gengið í klassískt tveggja manna hjónaband samkvæmt sínu gildismati. „En þeir eiga ekki að segja til um hvernig aðrir sem aðhyllast aðra hugmynda­ fræði eigi að haga sér. Ég er ekki að heimta að aðrir fari eftir minni trú, heldur styð ég aðra í að fara eftir sinni.“ Fleiri en tveir foreldrar Björn sér fyrir sér að þessar breytingar nái einnig til upp­ eldis barna. Þar geti margir komið að uppeldinu og ætti að vera frjálst að ættleiða börn, hafi þeir áhuga á því. „Bara alveg eins og það er núna. Segjum sem svo að við séum með einstætt foreldri og systkinahóp sem leigir saman, eða kaupir saman, og þau sjá sameiginlega um viðkomandi barn eða börn þó þau séu ekki blóðforeldrar. Í dag þekkist flókið fyrirkomulag, til dæmis í gegnum ættleiðingar á barn kannski tvo blóðforeldra og síðan tvo lagalega foreldra. Börn sem eiga marga að eru ef eitthvað er öruggari. Þau eru með fleiri að baki sér til að styðja þau í gengum lífið.“ Þetta gæti vissulega orðið flókið ef til forræðisdeilna kæmi en það eigi að vera fólki í sjálfsvald sett hvernig það hagar hlutunum. „Við treystum fólki almennt til að taka ákvarðanir um þær ábyrgðir sem það axlar.“ Eins þyrfti að breyta helm­ ingaskiptareglu í hjúskap, EKKI SPURNING UM FJÖLKVÆNI Píratar leggja til að kollvarpa lagaumhverfi landsins hvað varðar hjúskap. Hjónabönd og sambúð ættu ekki að hafa fjöldatakmarkanir og jafnvel systkini ættu að geta verið í skráðri sambúð. en það ætti ekki að reynast flókið í framkvæmd. Áfram viðurlög Samkvæmt hegningarlögum eru viðurlög við fjölkvæni, einkum ef annar aðili hjóna­ bands er grandlaus um að hinn sé þegar í hjúskap. „Ef einhver giftist aðila sem þegar er giftur þá varðar það þyngri refsingu ef gifti aðilinn greindi hinum ekki frá. Það er alveg eðlilegt að hafa slík bönn þar sem ekki allir eru samþykkir, látnir vita. Þetta snýst ekki um þetta klassíska form hjóna­ bands sem fólk kannski les úr þessu heldur bara réttindi og skyldur gagnvart lögum.“ Allt eða ekkert Eins geti verið að fólk vilji skrá sig í sambúð eða ganga í hjónaband en kæri sig ekki um lagalegar afleiðingar sem slíkt hefur í för með sér. „Þetta á ekki að vera svona „allt eða ekkert“ eins og það er núna heldur eru viss atriði í þeim réttindum eða skyldum sem fólk í hjónaböndum eða sambúð fær sem þau vilja kannski undanskilja úr því sambandi.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.