Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.2021, Page 18

Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.2021, Page 18
18 EYJAN Á ÞINGPÖLLUM Björn Jón Bragason eyjan@eyjan.is Þ arna var farið yfir öll mörk,“ sagði Guðni Th. Jóhannesson forseti í samtali við Ríkisútvarpið í kjölfar árásarinnar á Banda- ríkjaþing í vikunni sem leið og bætti við: „Þessi tíðindi vekja auðvitað mikla undrun, væg- ast sagt. Manni finnst ótrúlegt að í landi hinnar miklu örygg- isgæslu, á hæð sem á að vera betur varin en flestir aðrir blettir á jarðarkringlunni, geti fólk ruðst inn án þess að lög- reglumenn og aðrir bregðist við, eins og maður skyldi ætla að þeir myndu gera.“ Alþingi er friðheilagt Atburðirnir í Washington í liðinni viku hafa vakið ótal spurningar og leitt marga til umhugsunar um mikilvægi þess að staðinn sé vörður um löggjafarsamkundur og aðrar grundvallarstofnanir. Í stjórnarskrám ríkja eru jafnan ákvæði um sérstaka vernd þjóðþinga en í 36. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Ís- lands segir að Alþingi sé frið- heilagt. Enginn má raska friði þess né frelsi og því er veitt sérstök refsivernd sem útfærð er í almennum hegningar- lögum en þar segir í 1. mgr. 100. gr.: „Hver, sem ræðst á Alþingi, svo að því eða sjálf- ræði þess er hætta búin, lætur boð út ganga, sem að því lýtur, eða hlýðir slíku boði, skal sæta fangelsi ekki skemur en 1 ár, og getur refsingin orðið ævilangt fangelsi, ef sakir eru mjög miklar.“ Árás á Alþingi er því í flokki allra alvarleg- ustu afbrota. Þess finnast ekki mörg dæmi að friðhelgi Alþingis hafi þótt raskað, en þó má rifja upp að meðan hátíðar- fundur Alþingis stóð yfir á Þingvöllum 28. júlí 1974 truflaði hópur manna fund- inn með mótmælaaðgerðum og þóttu þeir hafa brotið 36. og 74. gr. stjórnarskrár. Þeim voru þó dæmdar miskabætur þar sem þeir voru í haldi lög- reglu lengur en ástæða var til. Ráðist á þingverði og lögregluþjóna Seinast var ákært fyrir brot gegn 100. gr. hegningarlaga árið 2010 en um var að ræða refsimál sem höfðað var gegn níu einstaklingum sem höfðu ásamt hópi óþekktra manna ruðst inn í Alþingishúsið meðan á þingfundi stóð og beitt þingverði ofbeldi. Ákærðu voru í Héraðsdómi Reykjavíkur sýknaðir af broti gegn 1. mgr. 100. gr. Dómari taldi ekkert í gögnum málsins benda til þess að fyrir níu- menningunum hefði vakað að kúga Alþingi eða ráðast á þingið með þeim hætti að sjálfræði þess yrði hætta búin. Fjórir hinnu níu ákærðu voru aftur á móti sakfelldir fyrir brot á 106. gr. hegning- arlaga sem fjallar um árás á opinberan starfsmann. Andri Leó Lemarquis hlaut fjögurra mánaða skilorðsbundinn fang- elsisdóm fyrir að hafa meðal annars veist að þingverði, bitið lögregluþjón í höndina og annan í öxlina. Þór Sigurðs- son var dæmdur í 60 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa hindrað þingvörð með ofbeldi í að loka dyrum Al- þingis. Þá var þeim Sólveigu Önnu Jónsdóttur og Stein- unni Gunnlaugsdóttur gerð 100 þúsund króna sekt hvorri fyrir að hafa haldið þingverði og komið þannig í veg fyrir að hann gæti sinnt skyldum sínum. Steinunn var að auki dæmd fyrir að hafa óhlýðnast fyrirmælum lögreglu. Málinu var ekki áfrýjað. Í yfirlýsingu frá hinum dóm- felldu sagði að Alþingi væri „smánarblettur á íslensku samfélagi“ og að ritstjórar helstu dagblaða landsins væru „Göbbelsar íslensks ríkis og alþjóðakapítals“. Svo mörg voru þau orð. Grjótkast á Alþingishúsið Aðeins einu sinni hefur verið sakfellt fyrir brot á 100. gr. hegningarlaga. Það var með dómi Sakadóms Reykjavíkur 1950 en sá dómur var að mestu leyti staðfestur í Hæstarétti tveimur árum síðar. Atvik málsins voru þau að brotist höfðu út átök á Austurvelli 30. mars 1949 við afgreiðslu tillögu á Alþingi um inngöngu í Atlantshafsbandalagið. Árás var gerð á Alþingishúsið sem talin var ógn við starfsfrið þess og hefði sjálfræði þess verið ógnað. Alls voru 24 menn ákærðir fyrir að eiga þátt í árásinni og voru 20 þeirra sakfelldir. Sá sem þyngstan dóm hlaut var dæmdur til fangelsisvistar í 18 mánuði og þá voru fjórir sviptir kjörgengi og kosn- ingarétti. Í Hæstarétti voru hinir sömu menn sakfelldir en dómar sumra styttir. Meðal hinna dómfelldu var Jón Múli Árnason, faðir áður- nefndrar Sólveigar Önnu. Sannað þótti að mati Hæsta- réttar að hann hefði kastað steini í átt að varaliðsmönnum lögreglu meðan upphlaupið stóð sem hæst en sá steinn hefði þó ekki hæft neinn þeirra. Jón Múli hlaut sex mánaða fangelsisdóm. Engum refsidóma Hæsta- réttar var nokkru sinni fullnægt að undanskilinni sviptingu kosningaréttar og kjörgengis. Loks gáfu hand- hafar forsetavalds hinum dómfelldu upp sakir árið 1957. Lífshættulegt ástand Stefán Gunnar Sveinsson, sagnfræðingur og blaðamað- ur, ritaði bók um óeirðirnar á árunum 2008 og 2009 sem kenndar voru við búsáhöld. Hann nefnir í bók sinni að færa hefði mátt rök fyrir því að taka hefði þurft harðar á þeim hluta mótmælenda sem fór fram með ofbeldi fyrr en raunin varð. Í niðurstöðum rannsóknar Stefáns Gunnars segir að það hafi í reynd verið mikil mildi að enginn úr hópi lögregluþjóna eða mótmæl- enda hefði látið lífið í óeirð- unum – litlu hefði munað að svo færi. n Frá óeirðunum í janúar 2009. MYND/VILHELM SKOÐANAPISTILL 15. JANÚAR 2021 DV ÁRÁS Á ALÞINGI Það varðar allt að lífstíðarfangelsi að ráðast á Alþingi. Aðeins einu sinni hefur verið sakfellt á grundvelli 1. mgr. 100. gr. hegningarlaga. Í yfirlýsingu frá hinum dóm- felldu sagði að Alþingi væri „smánarblettur á íslensku samfélagi“ og að ritstjórar helstu dagblaða landsins væru „Göbbelsar íslensks ríkis og alþjóðakapítals“.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.