Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.2021, Page 28

Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.2021, Page 28
28 FÓKUS 15. JANÚAR 2021 DV FRJÁLSLEGUR BÓNDADAGUR NÚTÍMAFÓLKS Fyrsti dagur þorra er bónda- dagur sem í ár er föstudagurinn 22. janúar. Þá er hefð fyrir því að húsfreyjur geri vel við bónda sinn en hefðirnar hafa þróast frjálslega í gegnum árin. DV heyrði í nokkrum valinkunnum einstaklingum um þeirra plön fyrir bóndadaginn. ALLA STRÁKA LANGAR Í BLÓM „Bóndadagurinn kemur alltaf jafn mikið aftan að mér. Ég býst aldr­ ei við honum strax svona korteri eftir jól,“ segir Snærós Sindradóttir, dagskrárgerðarkona á RÚV. Bóndi hennar er Freyr Rögnvaldsson, blaðamaður á Stundinni. „Maðurinn minn elskar þorramat og þjóðlegan bjór svo ég hef oft reddað mér dag­ inn fyrir bóndadag í einhverju pan­ ikki á síðustu krónum mánaðarins. Eitt árið gaf ég honum samansafn af einhverjum súrhvalsbjórum og öðru misgirnilegu. Annað árið gleymdi ég bóndadegi þar til í hádeginu en lét þá senda til hans í vinnuna stærðar­ innar blómvönd sem ég veit að hitti algjörlega í mark, bæði hjá honum og strákunum á skrifstofunni sem urðu grænir af öfund yfir rómans­ inum. Alla stráka langar í blóm. Það er mín reynsla. Freyr toppaði sig hins vegar sjálfur svo rækilega bæði á konudag og Valentínusardag í fyrra að ég hef ákveðið að láta þennan dag hætta að koma svona í bakið á mér. Þess vegna reddaði ég báðum dögum á ofurútsölu á netinu 1. janúar og get svo bara hallað mér aftur og beðið eftir að tækifærið renni upp til að færa honum góða og verðskuldaða gjöf. Við höfum aldrei haldið upp á Valentínusardag fyrr en hann dúkk­ aði upp með gjafir í fyrra en mér finnst það eiginlega bara frábært. Það er um að gera að gera sem mest úr þeim dögum sem strjúka ástinni á einhvern hátt.“ KJÁNALEGUR DAGUR FYRIR TVO HOMMA „Fyrstu árin var þetta kjánalegur dagur fyrir tvo homma sem myndu frekar halda upp á bændadaginn en bóndadaginn og iðulega var brugðist við deginum með þögn eða hunsun. Eftir því sem sambandið þroskaðist þá fórum við að nálgast daginn ýmist með húmor, rómantík eða samblandi af hvoru tveggja,“ segir Guðlaugur Kristmundsson, framkvæmdastjóri þingflokks Við­ reisnar. Hann hefur undanfarin tólf ár verið í sambandi með innanhúss­ hönnuðinum og flugþjóninum Andr­ ési James Andréssyni. „Uppáhaldsminningin um bónda­ daginn er þó þegar ég mætti heim í sveit á þorrablót í Árnesi og bauð Andrési með í fyrsta skipti. Hann small strax inn í samfélagið og ég hitti hann lítið sem ekkert allt blótið því hann var þar að kynnast fólki allt kvöldið. Ég fékk svo að ári hvatningu frá sveitungum mínum til þess að mæta með Andrés aftur á blótið og að halda vel í þennan mann, það væri sko vel hægt að spjalla, dansa eða næra andann með honum. Við höfum svo reynt að standa við það og þorrablótin eru núna ýmist sótt í Árnesi eða í Garðabæ þar sem við búum núna,“ segir Guðlaugur, sem er aldrei kallaður annað en Gulli. MIKIL RÓMANTÍK ALLA AÐRA DAGA ÁRSINS „Ég man í fyrsta lagi aldrei eftir bóndadeginum hvað þá konudeginum og við Bragi erum afskaplega léleg í að halda hvers kyns rútínu á hlutunum. Ég á fullt í fangi með að muna alla bláu og gulu dagana sem snúa að krökkunum,“ segir Helga Arnardóttir, fjölmiðlakona og rithöfundur, sem er í sambúð með Braga Þór Hinrikssyni kvikmyndagerðarmanni. „Einu sinni bjuggum við til geggjaðar fiskibollur eftir einhverri uppskrift og lofuðum hvort öðru að hafa alltaf fiskibollur á mánudögum og það var að sjálfsögðu ekki staðið við það mánudaginn næsta. Sama gildir um konu­ og bóndadaginn. Ég held að hvorugt okkar hafi gert eitt­ hvað sérstaklega rómantískt á þessum dögum. Það kemur fram einhver uppreisnarseggur í mér, að einhver dagur segi mér að ég þurfi að vera rómantísk. Hins vegar er rómantíkin mjög mikil í okkar sambandi alla aðra daga ársins. Bragi er mjög rómantískur almennt séð og þegar hann sér að ég er orðin mjög þreytt og þrotuð ungbarna­ mamma þá er hann fljótur að bjóða mér eitthvert út að borða og passa að við gerum eitthvað fyrir okkur bæði. Stundum leigjum við okkur sumarbústað yfir helgi og hvílum okkur saman. Okkur finnst yndislegt að komast í göngutúr, bíó eða í gufu. Mér finnst ótrúlega gaman að elda fyrir hann, hvað sem er, hvort sem það er tófú­ og grænmetiskássa eða kjöt, hann verður alltaf jafn þakk­ látur. Við erum mikið áhugafólk um kvikmyndir og það eru alveg gæðastundir að poppa og velja einhverja mynd til að horfa á. Stundum tökum við fyrir ákveðna leikstjóra og hámum í okkur nokkrar myndir. En þegar maður er búinn að strauja allt á Netflix þá tök­ um við ákvörðun um að slökkva á sjónvarpinu og spjalla með tebolla. Það er ótrúlega mikilvægt að horfast í augu í smástund þegar allir eru sofnaðir og fara yfir daginn saman.“ NETFLIX PARTY HVORT Í SÍNU LANDINU Leikarinn og skemmtikrafturinn Vilhelm Neto trúlofaðist Katrine Gregersen Vedel fyrir tæpu ári. Kat­ erine er að læra grafíska hönnun í KEA­háskólanum í Kaupmannahöfn og verða þau því hvort í sínu landinu á bóndadaginn. „Ástin mín verður þá nýfarin í nám til Danmerkur og þar sem ég get ekki komið með verð ég ansi rafrænn og verður planið að horfa á eitthvað saman í Netflix Party og við pöntum sitt hvora pitsuna,“ segir Vilhelm. „Annars mun þessi bóndi sjá um að tríta sig sjálfan þann dag, hver veit svo nema að mamma sé með ein­ hvern lítinn pakka, hún elskar að halda upp á hátíðlega daga.“ Vilhelm segir að Katerine muni lík­ legast búa á Nørrebro sem sé nátt­ úrulega uppáhaldsstaðurinn hans í Köben. „Þannig að þið sjáið mig á krá í Nørrebro við fyrsta tækifæri,“ segir hann. MYND/AÐSEND MYND/AÐSEND MYND/AÐSEND MYND/AÐSEND Gulli og Andrés hafa náð að nálgast bónda daginn með húmor og rómantík.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.