Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.2021, Síða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.2021, Síða 30
Sæl, Kristín. Ég hef verið að lesa pistlana þína og fengið út úr þeim ábendingar sem við hjónin höfum getað nýtt okkur til að gera sambandið betra. Við eigum ekki við neinn sérstakan vanda að stríða en mér finnst mikilvægt að hlúa vel að okkur og muna eftir hjónabandinu í amstri dagsins. Þess vegna langar mig til þess að fá hjá þér hugmyndir að því hvernig við getum sett okkur markmið og verkefni fyrir árið sem stuðla að enn betra og heilbrigðara sambandi. Bestu kveðjur úr góðu hjónabandi. Hamingja og vinátta Já, góðan daginn og gleðilegt ár, kæra góða hjónaband! Ef allir væru svona forsjál- ir þá væru mörg sambönd í betri málum. Ég hef stundum sagt í gríni að einhleypt fólk og pör á sínum allra fyrstu stigum í sambandi ættu að standa í biðröð eftir hjón- bandsráðgjöf enda eru þá mestar líkur á því að hægt sé að fyrirbyggja vanda í fram- tíðinni. Og öllu gríni fylgir einhver alvara. Það getur reynst vel að skoða parsambönd út frá fjórum mikilvægum stoðum, það er vináttu, ástríðu, lífs- skoðunum og þekkingu. Allir þessir þættir stuðla að já- kvæðum áhrifum í parsam- bandi og í vinnu minni með pörum nota ég þá oft til þess að greina hvað er gott og hvar þarf að styðja betur við. Vinátta og þekking Ef þú spyrð hamingjusöm pör hvers vegna þau séu svona hamingjusöm þá er tíðasta svarið „vinátta“. Þessi breyta endurspeglar ótrúlega margt, það er að segja traust, virð- ingu, að njóta félagsskapar hvort annars, stuðning og allt það sem annars felst í góðum vinatengslum. Eruð þið hjónin vinir? Njótið þið þess að hanga saman? Leitið þið í stuðning hvort hjá öðru? Ef ekki, þá gætuð þið sett ykkur markmið um að stuðla að meiri vináttu á árinu 2021. Þekking er sá þáttur sem margir telja sig búa yfir (sér- staklega eftir langt samband) en það þarf ekki að boða gott. Ef við teljum okkur þekkja maka okkar þannig að við þurfum ekki að viða að okkur nýrri þekkingu um viðkom- andi, þá er hætta á ferð. Uppá- haldsmaturinn þinn er ekki sá sami og hann var fyrir 15 árum. Við erum stöðugt að breytast og því þarf stöðugt að vera á tánum og kynnast upp á nýtt. Ég mæli með appi sem heitir Card deck, það er sérhannað til þess að stuðla að meiri þekkingu milli maka og skapa dýpri samtöl um efni sem stundum gleymast. Setja sér ástríðumarkmið Ástríða er atriði sem margir nota sem mælistiku á ást. Ef þú finnur fiðrildi í mag- anum, spennu, losta og þrá, þá gera margir ráð fyrir því að það sé skýrt merki um að vera ástfangin. Aftur á móti gætir stundum nokkurs mis- skilnings þar vegna þess að við getum fundið fyrir ástríðu en skort vináttu og virðingu. Einnig er hægt að vera mjög ástfangin án þess að sam- bandið sé gríðarlega ástríðu- fullt. Hvort heldur sem er, þá skemmir held ég aldrei fyrir að auka nánd, spennu og þrá í parsambandi. Það gæti verið hjálplegt að setja sér einhver ástríðumarkmið, til dæmis að skrifa hvort öðru ástarbréf, knúsast á hverjum morgni, stunda kynlíf með öðrum hætti en oft áður (oftar, leng- ur, á öðrum stöðum o.s.frv.) eða sofa hvort í sínu herberg- inu einu sinni í viku (það er gott að sakna). Þegar talað er um lífsskoð- anir þá er átt við gildi og hugmyndir fólks um lífið. Ef lífsskoðanir fólks eru líkar þá eru minni líkur á að par deili um minnstu smáatriði og ákvarðanir. En ef annar aðil- inn er hægrisinnaður og hinn vinstrisinnaður, annar er kaþólikki og hinn trúleysingi, annar vegan og hinn kjöt æta, þá geta skapast vandamál út frá hinum minnstu áskor- unum. Við breytum ekki lífs- skoðunum annarra svo glatt, en við getum lært að bera virðingu fyrir þeim, vera sammála um að vera ósam- mála eða mætast á miðri leið. Getur verið að lífsskoðanir ykkar séu ólíkar að einhverju leyti? Er það eitthvað sem væri gott að skoða, kryfja og ræða við upphaf nýja ársins? Mögulega getur slík umræða fært ykkur nær hvort öðru og varpað skýrara ljósi á sýn ykkar sem einstaklinga í par- sambandinu. Tengsl lykilatriði Að lokum finnst mér alltaf gott að vitna í langtíma- rannsókn sem er enn í fram- kvæmd við Harvardháskóla um hamingju og heilbrigði karlmanna. Rannsóknin hófst fyrir rúmum 70 árum og var ætlað að skoða hvað það væri sem gerði 750 karlmenn hamingjusama og heilbrigða. Í dag eru 60 þeirra enn á lífi, þeir hafa sætt reglulegum, ítarlegum rannsóknum meiri- hluta ævi sinnar og niðurstöð- urnar eru skýrar. Sú breyta sem hafði mest áhrif á það hvort þessir 750 karlmenn voru líkamlega og andlega heilbrigðir heitir tengsl! Tengsl við maka, vini, systk- ini eða vinnufélaga, tengslin þurftu ekki að vera mörg en því sterkari, því betra. Loka- svar mitt til þín er því að með því að styrkja tengslin ykkar á milli, verja tíma saman, ræða saman og hlúa hvort að öðru, þá eruð þið að auka lík- urnar á því að þið bæði verðið hamingjusamari og heilbrigð- ari og sambandið verði sterk- ara og betra. Njótið þess. n Við hvetjum lesendur til að senda spurningar og vangaveltur sínar til Kristínar í tölvupósti á: hjonabandssaela@gmail.com. Spurningunum verður svo svarað hér í Fjölskylduhorninu, að sjálf- sögðu nafnlaust og í fullum trúnaði. 30 FÓKUS Fjölskylduhornið Kristín Tómasdóttir hjónabandsráðgjafi svarar spurningum lesenda um málefni er varða fjölskylduna, börnin og ástina í Fjölskylduhorni DV. Að þessu sinni svarar Kristín spurningu lesanda sem vill gera gott hjónaband enn betra. MYND/GETTY 15. JANÚAR 2021 DV HVERNIG GERUM VIÐ GOTT HJÓNABAND BETRA? Sérfræðingur svarar

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.