Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.2021, Síða 35

Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.2021, Síða 35
Edda Andrésdóttir Steingeit 28. desember 1952 n Ábyrg n Öguð n Góður stjórnandi n Skynsöm n Besservisser n Býst við hinu versta Stefán Ólafsson Vatnsberi 29. janúar 1951 n Frumlegur n Sjálfstæður n Mannvinur n Drífandi n Flýr tilfinningar n Sveimhugi A ð þessu sinni verður rýnt í spilin fyrir söngkonuna Nönnu Bryndísi Hilmars-dóttur. Nanna hefur vakið mesta athygli með hljómsveit sinni Of Monsters and Men. Síðasta lagið þeirra sem kom út árið 2020 heitir Visitor, ótrúlega vel heppnað og ekki leiðinlegt að dansa við. Nanna Bryndís er fædd í byrjun maímánaðar sem gerir hana að Nauti. Nautin eru miklar til- finningaverur en þó jarðbundin. Þau eru þekkt fyrir metnað sinn og drifkraft, ákveðni og þrjósku en það getur komið manni langt í lífinu. Nautin hafa gaman af efnislegum hlutum en eru alls ekki að eyða í óþarfa. Þau eru nautna- seggir og kunna að meta góðan mat og falleg heimili. Þau þrífast best á rútínu, skipulagi og öryggi. Mikil náttúrubörn sem elska að vera berfætt í grasinu. Sexa í bikurum Fortíðin | Bernskuminningar | Sakleysi | Gleði Hér kemur upp einhver nostalgísk orka sem þú sækist mikið í. Mér finnst eins og þú sért að tengjast ein- hverjum upp á nýtt sem þú hefur verið í sambandi við áður. En tíminn í sundur hefur gefið ykkur tíma til þess að rækta ykkur hvort í sínu lagi þannig að þið eigið enn betur saman núna. Ég finn líka fyrir innra barninu í þér, þú vilt leika þér og ekki taka lífið of alvarlega. Ég sé mikinn dans í kringum þig. Það er eins og þú gefir þér meiri tíma til þess að rækta þetta innra barn og þínar þarfir almennt. Mögulega hefur þú ekki alltaf sett sjálfa þig í forgang en ert tilbúin til þess núna. Heimurinn Afrek | Sameining | Framkvæmd | Ferðalög Heimurinn er auðvitað mikið lukkuspil og kemur upp hjá fólki þegar það finnur fyrir einhvers konar heild, þegar allt gengur bara upp. Verkefni sem virðist vera í erfiðri fæðingu mun koma heim og saman en krefst þó aukinnar þolinmæði. Þrátt fyrir að þú sjáir það ekki núna lofar þetta spil góðri útkomu og mikilli uppskeru. Langþráður draumur verður að veruleika og þótt það virðist varla mögulegt þá sé ég líka einhver ferðalög þegar líða fer á árið. Skilaboð frá spákonunni Dulrænir og skemmtilegir tímar fram undan ef þú ert tilbúin til þess að hlusta og hleypa því inn... STJÖRNUSPÁLESIÐ Í TAROT Nanna Bryndís SVONA EIGA ÞAU SAMAN Vikan 15.01. – 21.01. Berfætt í grasinu… Fjölmiðlakona og félagsfræðingur MYND/VILHELM stjörnurnarSPÁÐ Í F rá og með 18. janúar verður fréttatími Stöðvar 2 í læstri dagskrá og aðeins að-gengilegur áskrifendum. Fjölmiðlakonan Edda Andrésdóttir er öllum landsmönnum kunn og þulur í fréttatímanum. Hún er gift Stefáni Ólafssyni félagsfræðingi og lék DV for- vitni á að vita hvernig þau eiga saman ef litið er til stjörnumerkjanna. Edda er Steingeit og Stefán er Vatnsberi. Þegar þessi tvö merki koma saman þá draga þau fram það jákvæða hvort í fari annars. Steingeitin er varkár og afar skynsöm á meðan Vatnsberinn er mikil hugsjónamanneskja. Á yfirborðinu virðast þau vera algjörar and- stæður en þeirra samband er sterkt. Þau eru bæði með sterkar skoðanir á öllu en tekst að ræða málin með ótrúlegri yfirvegun. Steingeitin þrífst á skipulagi og Vatnsberinn skilur oft ekki þessa áráttu, en kann að meta öryggið sem fylgir henni. Lykillinn er málamiðlun. Þau þurfa að vera reiðubúin að leggja spilin á borðið og koma til móts hvort við annað. n MYND/SAMSETT Hvað segja stjörnurnar um þig þessa vikuna? Hrútur 21.03. – 19.04. Nú verða þér allir vegir færir, eða færari öllu heldur. Þú hefur ekki átt auðveldustu vikurnar upp á síðkastið en sérð nú fyrir endann á því. Þú hefur fengið það svigrúm sem þú þurftir til þess að núllstilla þig. Fjárfestu í sjálfum þér er mottó komandi daga! Naut 20.04. – 20.05. Lausn við ákveðnu vandamáli eða svar við spurningu sem þú hefur gengið með í kollinum síðustu misseri kemur til þín. Verður mikið „aha“ augnablik því lausnin eða svarið verður svo skýrt og aug- ljóst. Niðurstaða sem mun færa þér mikla gleði. Tvíburi 21.05. – 21.06. Should I stay or should I go now? er lag vikunnar hjá sæta tvíbbanum. Þú veist ekki alveg í hvorn fótinn þú átt að stíga. Hvernig væri bara að stíga lítinn dans í staðinn? Þú hefur mikla þörf fyrir breytingar. Krabbi 22.06. – 22.07. Þetta verður góð vika varðandi peninga fyrir Krabbann. Einhver ákvörðun eða tækifæri sem kemur upp mun skila vel af sér. Stöðu- hækkun eða aukin viðskipti eru í orkunni sem umlykur þig. Þú segir „já, takk“ og „loksins“, enda hefur þú beðið eftir þessu. Ljón 23.07. – 22.08. Ástamál eru þér ofarlega í huga. Ef þú ert einhleypt þá þarftu að stíga út fyrir þægindarammann og taka fyrsta skrefið. Ef þú ert hins vegar í sambandi þá er kannski komið að þér að leggja eitthvað Icy Spicy tilboð á borðið. Málin eru í þínum höndum. Meyja 23.08. – 22.09. Horfðu í spegilinn og segðu eftir- farandi: „Ég get, ég ætla, ég skal!“ Þú hefur haft einhverjar efasemdir upp á síðkastið en finnur kraftinn og fókusinn þinn á ný. Þú ert færari í að sjá framfarirnar í litlu skref- unum, sem síðan munu koma þér á leiðarenda. Vog 23.09. – 22.10. Á meðan þú lofar þér að fara rólega inn í árið þá sérðu fyrir þér stóra hluti á árinu. Þú ert tilbúin í breytingar og ný tækifæri. Þessa vikuna leggur þú grunnvinnu að þeim verkefnum sem munu koma til þín. Einn tölvupóstur er mögulega byrjunin á nýju ævintýri. Sporðdreki 23.10. – 21.11. Sporðdrekinn fær spennandi fréttir þessa vikuna frá kærum fjölskyldumeðlim. Þú nýtur þín í faðmi fjölskyldunnar og tekur því óvenju rólega miðað við hversu ör þú ert venjulega, elsku Sporðdreki. Savasana er mantran þín. Bogmaður 22.11. – 21.12. Þó að þú skiljir manna best hug- takið að eyða peningum til þess að búa til peninga þá þýðir það ekki að það taki ekki aðeins á taug- arnar. Ekkert sem eitt stykki gott Excel-skjal og rauðvínsglas getur ekki lagað. Gefðu þér góðan tíma til þess að skipuleggja vel næstu skref til þess að halda utan um planið. Steingeit 22.12. – 19.01. Neyðin kennir naktri konu að spinna og þú ert síður en svo allsber. Þínum plönum var hent út um gluggann en þannig byrja bestu ævintýrin. Þú ert til í þessar breyttu aðstæður og hefst handa við að búa til ný tækifæri. Vatnsberi 20.01. – 18.02. Þú ert óvenju eirðarlaus þessa vikuna og finnur þér alls konar skemmtilegt að gera. Þú gengur á nokkur fjöll, ferð í sjósund, bakar nokkrar kökur og heldur eitt lítið og gott matarboð. Skemmtileg og uppátækjasöm vika fram undan. Fiskur 19.02. – 20.03. Ekki örvænta þótt það verði ekki mikið úr vikunni. Þú eyðir megninu af tímanum í dagdrauma sem eru alls ekki sóun á tíma því það getur verið byrjunin á einhverju mögn- uðu! Það er „Manifest“ vika fram undan hjá flæðandi Fisknum. Páfinn Andleg viska | Trú | Hefðir Hér er vísað í innra ferðalag. Það er eins og þú hafir köllun til þess að kafa dýpra inn á við. Hugleiðsla verður meira að daglegri rútínu og þú finnur mikinn styrk þar. Innsæið þitt kemur líka sterkt inn og skilaboð koma til þín í draumum. Ráðlagt er að geyma dagbók við rúmið þitt því undirmeð- vitund þín mun taka þátt í þínu næsta sköpunarverki. FÓKUS 35DV 15. JANÚAR 2021

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.