Morgunblaðið - 20.06.2020, Page 1
„Alveg vonlaust“
Skínandi skart
Móðir unglingsstúlku á einhverfu-
rófi sem glímir við djúpstætt þung-
lyndi og kvíða hefur barist fyrir því
að dóttir sín fái meðferð í 19 mánuði
en orðið lítt ágengt. Kerfið kemur
sér markvisst undan því að veita
hjálp, segir hún. Félags- og barna-
málaráðherra segir alltofmörg
börn falla á milli í kerfinu. 12
21. JÚNÍ 2020SUNNUDAGUR
Útilegu-sumarið2020
Elísa Mjöll ereigandi og hönn-uður Mjallarskartgripa. 18
Snjódrífur sigra jökulinn
Hópur ellefu kvenna gekk yfir Vatnajökul og safnaði fé til
styrktar Krafti og Lífi. Heiða Birgisdóttir var ein þeirra. 8
Nauðsynlegter að nota réttabúnaðinn íútileguna. 22
L A U G A R D A G U R 2 0. J Ú N Í 2 0 2 0
Stofnað 1913 144. tölublað 108. árgangur
TÓNLEIKAR
UNDIR BER-
UM HIMNI
MARG-
SLUNGIÐ
NÓBELSSKÁLD
NÝ PLATA DYLANS 43MUGISON Á FERÐ 16
„Á hverju ári myndast framtíð-
arskuld á ríkissjóð upp á 3 til 4
milljarða , það eru örorkubætur
fyrir lífstíð sem þessi börn þurfa í
framtíðinni,“ segir móðir 15 ára
stúlku á einhverfurófi sem glímir
við kvíða og þunglyndi. Á hún þar
við hóp barna í svipaðri stöðu og
stúlkan sem bætast við kerfið á
hverju ári en fá ekki meðferð.
„Landspítalinn telur það ekki í sín-
um verkahring að hjálpa þeim,“
segir hún við sunnudagsblaðið.
Ásmundur Einar Daðason, fé-
lags- og barnamálaráðherra, segir
of marga falla á milli í kerfinu en
tíma taki að breyta því. Allir séu að
gera sitt besta en „vandinn er að
þetta er eins og stórt olíuskip sem
tímafrekt er að snúa“.
Milljarða framtíð-
arskuld árlega
Sumarsólstöður eru í kvöld klukkan 21:44 á landinu bláa og
þá er sólin í sinni nyrstu og hæstu stöðu á himninum. Eftir
þetta styttist dagurinn og sólin er skemur á himni, nánast út
árið eða fram að vetrarsólstöðum. Sólríkir dagarnir nú eru
ævintýrið eitt og mikil var náttúrufegurðin undir bláhimni
blíðsumars nætur þegar þessi mynd var tekin við speglandi
vatn í Brynjudal í Kjós nú í vikunni. Spáð er rigningu víðast
hvar á landinu í dag og fram í vikuna, þó með sólarglennum á
morgun, sunnudag.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Björt sumarnóttin
í Brynjudalnum
Alexander Kristjánsson
alexander@mbl.is
Mikið þarf til að samningar náist milli hjúkrunar-
fræðinga og ríkisins áður en boðað verkfall skell-
ur á að morgni mánudags. Þetta segir Guðbjörg
Pálsdóttir, formaður Félags íslenskra hjúkrunar-
fræðinga. Samninganefndir hittast á fundi í
Karphúsinu klukkan 9:30 í dag.
Undirbúningur fyrir verkfall er hafinn, en
verkfallsstjórn félagsins hefur starfað í á þriðju
viku. „Þetta er heilmikil skipulagning,“ segir
Guðbjörg. Ljóst er að mikið mun mæða á undan-
þágunefnd félagsins, en Alma Möller landlæknir
hefur sagt að komi til verkfalls þurfi kerfið að
reiða sig á undanþágustarfsfólk. „Undanþágu-
nefndin fer yfir hverja einustu beiðni. Það er öll-
um ljóst sem fara í verkfall að lífi og limum verð-
ur ekki ógnað,“ segir Guðbjörg.
Landlæknisembættið hefur eftirlitshlutverk
með heilbrigðisþjónustu í landinu, og hefur land-
læknir setið skipulagsfundi á Landspítala þar
sem starfsemi spítalans er búin undir verkfallið.
Að sögn Kjartans Hreins Njálssonar, aðstoð-
armanns landlæknis, er viðbúið að embættið
sæki um undanþágur fyrir hjúkrunarfræðinga
sem starfa hjá embættinu og hafa eftirlit með
starfsemi heilbrigðisstofnana. „Komi til verkfalls
þurfum við að geta staðið í ákveðnu eftirliti á
heilbrigðisstofnunum til að sjá hver staðan er.
Þess vegna þurfum við að hafa okkar starfsfólk í
vinnunni,“ segir Kjartan Hreinn.
Um sýnatöku á landamærastöðvum, svo sem
Keflavíkurflugvelli, sér hópur hjúkrunar-
fræðinga og annarra starfsmanna bæði hjá
heilsugæslustöðvum og einkaaðilum. Aðspurður
segir Kjartan ljóst að landamæraskimunin
muni finna fyrir verkfallinu þótt óljóst sé hve
mikil áhrifin verða. Hún muni þó ekki leggjast
af.
Páll Matthíasson, forstjóri Landspítalans, hef-
ur sömuleiðis þungar áhyggjur af verkfallinu.
„Ég hef margoft sagt að ekkert sé verra og
meira truflandi fyrir starfsemi sjúkrahúsa en
verkfall og stend við það,“ segir Páll í forstjóra-
pistli sínum sem birtist í gær.
Þungar áhyggjur af verkfalli
Kerfið þurfi að reiða sig á undanþágur Áhrif á landamæraskimun óljós
MUndanþágur fyrir neyðarþjónustu »2
Fetaðu nýjar slóðir
með Touareg
Tilboðsverð frá
10.990.000,-
hekla.is/volkswagensalur · Sími 590 5000 · Laugavegur 170 · HEKLA