Morgunblaðið - 20.06.2020, Síða 39

Morgunblaðið - 20.06.2020, Síða 39
DÆGRADVÖL 39 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. JÚNÍ 2020 „HEFURÐU FENGI FLENSUSPRAUTU ÁÐUR?” „HÉR ER EIN SEM ÞÚ MUNT ELSKA. TVÆR VIKUR Í ÁRABÁT ÁN VATNS EÐA VISTA.” Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að slá hvort öðru gullhamra. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann VETUR … OJ! BÍDDU … ÞAÐ ÞÝÐIR JÓLIN! ÉG TEK ÞETTA AFTUR! HVAÐ ER AÐ, GRIMM- ÚLFUR GRIMMI? ÉG HEF EKKI FUNDIÐ HJÁ MÉR LÖNGUN TIL SLAGSMÁLA UNDANFARIÐ! KANNSKI ERTU BARA AÐ LINAST OG VERÐA LATUR EÐA KANNSKI SKORTI MIG BARA HVATNINGU! ÞÚ ERT SVO FALLEG ÞÚ ERT SVO MYNDARLEGUR átt margar góðar stundir saman í faðmi fagurra fjalla.“ Fjölskylda Eiginkona Guðmundar er Mar- grét Helga Steindórsdóttir, f. 12.11. 1950, ræstingastjóri á HSU. For- eldrar hennar: Hulda Axelsdóttir, f. 14.10. 1928 og Steindór Sigurjóns- son, f. 11.6. 1923, d. 4.11. 2003, bændur á Nautabúi á Neðribyggð í Skagafirði og býr Hulda þar enn. Synir Margrétar og Guðmundar: 1) Lárus, f. 11.9. 1972, viðskipta- fræðingur í Reykjavík. Eiginkona hans er Guðrún Rut Sigmarsdóttir, f. 17.1. 1974, börn þeirra eru Elías Óttar, Júlía Karen og Gyða Dögg; 2) Steindór, f. 27.6. 1975, iðnrekstrar- fræðingur og löggiltur fasteignasali, búsettur í Flóahreppi. Eiginkona hans er Ólöf Ósk Magnúsdóttir, börn þeirra eru Margrét Helga, sambýlismaður Ari Jóhannsson, Guðmunda Bríet, Kári Þór og Magnús Ögri; 3) Óttar Sigurjón, f 27.11. 1979, lést af slysförum 2.11. 1996; 4) Vignir Andri, f. 22.4. 1981, kennari í Reykjavík, sambýliskona hans er Kristrún Ósk Karlsdóttir, f 3.4. 1981, börn þeirra eru Óttar Flóki og Regína. Dóttir Kristrúnar er Ísabella Friðriksdóttir. Systkini Guðmundar sammæðra: Sigríður Elín Guðmundsdóttir, f. 27.6. 1938, búsett í Vestmanna- eyjum; Valgerður Hanna Guð- mundsdóttir, f. 2.10. 1941, d. 4.3. 2002, og Þorvarður Guðmundsson, f. 22.10. 1943, d. 4.3. 2007. Albróðir er Valdimar Heimir Lárusson, f. 15.2. 1955, búsettur á Selfossi. Foreldrar Guðmundar voru Lárus Gíslason, f. 20.9. 1904, d. 15.6. 1963, matsveinn og bóndi á Stekk- um, og Anna Kristín Valdimars- dóttir, f. 11.4. 1917, d. 13.10. 2005, bóndi og húsfreyja á Stekkum. Guðmundur Lárusson Vilborg Jónsdóttir húsfreyja á Laug Jón Guðmann Sigurðsson bóndi á Laug í Haukadal, Árn. Elín Jónsdóttir húsfreyja í Gaularáshjáleigu og Eyrarbakka Valdimar Þorvarðarson smiður og bóndi í Gaularáshjáleigu í A-Landeyjum og á Eyrarbakka Anna Kristín Valdimarsdóttir húsfreyja og bóndi á Stekkum Margrét Magnúsdóttir húsfreyja á Berjanesi og í Gaularáshjáleigu Þorvarður Sigurðsson bóndi á Berjanesi í V-Landeyjum og í Gaularáshjáleigu Kolfinna Þorkelsdóttir húsfreyja og bóndi í Kolsholti Vigfús Guðmundsson bóndi í Kolsholti í Villingaholtshr., Árn. Sigríður Vigfúsdóttir húsfreyja í Björk Gísli Lafransson bóndi og vegavinnum. í Björk í Sandvíkurhr. Sigríður Hallgrímsdóttir húsfreyja í Norðurkoti 2 Lafrans Bjarnason Bóndi í Norðurkoti 2 í Laugardælasókn, Árn. Úr frændgarði Guðmundar Lárussonar Lárus Gíslason kokkur og bóndi á Stekkum í Sandvíkurhr., Árn. Gátan er sem endranær eftirGuðmund Arnfinnsson: Helgigrip nú greini frá. Gjarnan úrskurð nefna má. Þetta er nafn, sem nefndin ber. Niðurstaða í máli er. Eysteinn Pétursson svarar: Helgidóminn dýrka menn. Dómur minn skal heyrast senn. Dómnefnd seggir djarfir skipa. Dómarar úrskurði niður hripa. Gamall vinur sendi þessa úrlausn: Helga dóma heiðrum vér. Héraðsdómur rangur. Kjaradómur dauður er. Dómur norna er strangur. Þorgerður Hafstað sendir þetta frá Sviss: Helgidóminn séra signir. Sanngjarn er dómsúrskurður. Yfir dómnefnd ráðum rignir. Rangur dómur vekur furður. Helgi R. Einarsson leysir gátuna þannig: Öll við þekkjum eðli manns, því almanna er rómurinn að allt fari til andskotans, ef enginn væri dómurinn. Þessi er lausn Guðrúnar B.: Hár af Flóka helgur dómur. Í Hafnarfirði dómur féll í héraðsdómi. Datt inn rómur með dóminn sleggju: sifjaspell. Sjálfur skýrir Guðmundur gát- una þannig: Helga dóma dýrka menn. Dómsúrskurð hér nefna ber. Dóma nefnum nefndir enn. Niðurstaða dómur er. Þá er limra: Dómhildur digra í Hvammi, sem daglega tróð í sig nammi og fitnaði’ af því, en fór megrun í, nú sér eftir sérhverju grammi. Síðan er ný gáta eftir Guðmund: Vaknaður af drauma dúr dreif ég mig á fætur skjótt, eftir góðan göngutúr gátuna ég samdi fljótt: Mér í koll hún kemur nú. Kennd við mýri bænum á. Mjög í ljósið sækir sú. Svo er hún loka fyrir skrá. Gömul vísa í lokin: Sigla fleyi, sofa í meyjarfaðmi ýtar segja yndið mest og að teygja vakran hest. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Misjafnir eru manna dómar „HEFURÐU FENGIÐ FLENSUSPRAUTU ÁÐUR?”

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.