Morgunblaðið - 20.06.2020, Qupperneq 42

Morgunblaðið - 20.06.2020, Qupperneq 42
42 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. JÚNÍ 2020 Reykjavíkurvegur 62 | Sími 527 0640 | 220 Hafnarfjörður | www.wh.is Lesið vandlega upplýsingarnar á umbúðumog fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingumum áhættuog aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið áwww.serlyfjaskra.is Ofnæmið burt! Zensitin 10mg töflur -10, 30 og 100 stk Brynjar Daðason og Guðmundur Arnalds koma fram í Mengi í dag, kynna nýtt samstarf og spila sveimandi og melódíska tónlist fyrir gesti. Brynjar Daðason er tónskáld og vinnur að tónsmíðum sem draga áhrif frá ýmiss konar nýklassískri og sveimtónlist með gítar í fyrirrúmi. Hann vinnur nú að sinni fyrstu hljómplötu. Raftónlistarmaðurinn Guð- mundur Ari Arnalds hefur mik- inn áhuga á hljóðvinnslu og að smíða mismunandi tölvukerfi í kringum tónlist sína, segir í til- kynningu en hann er einn af stofnendum plötuútgáfunnar Agalma og kemur reglulega fram með argentíska gítarleikaranum Diego Manatrizio undir nafninu Atiseq. Tónleikar þeirra félaga hefjast kl. 21 og verða um klukkustund að lengd. Brynjar og Guðmundur í Mengi Samstarf Brynjar og Guðmundur. Latínband kontrabassaleikarans Tómasar R. Einarssonar leikur á þriðju tónleikum sumarjazztónleikaraðar veitingahússins Jómfrúarinnar við Lækjagötu í dag kl. 15. Með Tómasi verða Óskar Guðjónsson sem leikur á saxófón, Kjartan Há- konarson á trompet, Samúel Jón Samúelsson á básúnu, Ómar Guðjónsson á gítar og Matthías Hemstock á trommur og slagverk. Á efnisskrá verður úr- val af latíntónlist hljómsveitarstjórans. Tónleikarnir fara fram utandyra, á Jómfrúartorginu og aðgangur er að vanda ókeypis. Latínband Tómasar á Jómfrúartorgi Bassaleikarinn Tómas R. Einarsson stýrir latínbandi sínu. Uppselt var á útgáfutónleika Guð- mundar Andra Thorssonar og félaga laugardaginn 6. júní og því verða þeir endurteknir í dag kl. 16 fyrir þá sem ekki komust. Tónleikana heldur Guð- mundur Andri í tilefni af útgáfu fyrstu breiðskífu sinnar Ótrygg er ögur- stundin sem kom út nýverið og hefur að geyma bæði lög og texta eftir Guð- mund Andra. Hann nýtur fulltingis fé- laga sinna við flutning á lögunum, bæði á plötunni og tónleikunum. Er tónlistinni lýst sem lágværri, hlýrri og angurværri vísnatónlist og sagði Guðmundur Andri í viðtali við Morgunblaðið á dögunum að hann væri lélegur gítarleikari, spilaði mjög hægt og því væru lögin öll frekar hæg og angurvær og frekar blíðleg. Um yrkis- efni sín sagðist Guðmundur Andri semja um ástina og hverfulleika alls, líkt og svo margir aðrir. Ástina, dauð- ann og hverfulleika alls. Aðrir tónleikar Guðmundar Andra Söngvaskáld Guðmundur Andri. Morgunblaðið/Einar Falur Sæunn Þorsteinsdóttir sellóleikari leikur allar sex sellósvítur Bachs í dag, á sumarsólstöðum, í jafnmörgum kirkjum á norðanverðum Vest- fjörðum, eina svítu í hverri kirkju. „Með því að slást með í för kynnast tónleikagestir sveitakirkjum, þorpum, heimamönnum, upp- lifa þrjá firði, dali og eilífðarbirtu þegar dag- urinn eins langur og hann verður,“ segir í til- kynningu og að tilefnið sé að 300 ár eru liðin frá því Bach skrifaði svíturnar. Fyrsta svítan verður leikin í kirkjunni á Þingeyri kl. 13, sú næsta að Mýrum handan Dýrafjarðar kl. 15 og kl. 17 leikur Sæunn í kirkjunni að Kirkjubóli í Valþjófsdal við Ön- undarfjörð. Kl. 19 leikur hún í Flateyrar- kirkju og kl. 21 í kirkjunni á Suðureyri. Síð- asta svítan mun hljóma kl. 23 utar í Súgandafirði, á Stað. Sæunn er með fremstu einleikurum Íslands og kemur reglulega fram víða um heim. Undanfarin misseri hefur hún leikið reglu- lega með Sinfóníhljómsveit Íslands. Tónleika- dagurinn er skipulagður af Sæunni og Greipi Gíslasyni með stuðningi frá Tónlistarsjóði og Ísafjarðarbæ í samstarfi við Vestfjarðapró- fastsdæmi. Morgunblaðið/Hari Á sumarsólstöðum Sæunn fagnar lengsta degi ársins með því að flytja sex sellósvítur Bachs í sex kirkjum á Vestfjörðum. Sex svítur Bachs í sex kirkjum Ragnheiður Birgisdóttir ragnheidurb@mbl.is Nýtt smásagnasafn eftir Böðvar Guðmundsson, sem ber titilinn Fyrir daga farsímans, er komið út. Þar bregður meðal annars fyrir furðulegum helgidómum á altari kirkju, hernaðarsögu Íslendinga, raunum leiðsögumanns þýskra ferðamanna og ástum í bragga- hverfi. Eins og titill verksins gefur til kynna eiga sögurnar það allar sameiginlegt að gerast fyrir daga farsímans. Böðvar hefur lengi ver- ið þekktur fyrir sögulegan skáld- skap. Sem dæmi má nefna bækur hans um vesturfara, Híbýli vind- anna (1995) og Lífsins tré (1996), sem hafa verið vinsæl lesning með- al Íslendinga. Hann hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin árið 1997 fyrir síðarnefnda verkið. Sögur sem ná til námsáranna Rithöfundurinn heldur sig við horfna tíma í hinu nýja smásagna- safni. „Ég breyti því ekki neitt úr þessu,“ segir hann kíminn. Böðvar segir margar af sög- unum ná aftur til námsára hans, þær séu frá þeim tíma þegar hann gekk í menntaskóla og háskóla. „Þetta eru að einhverju leyti minn- ingar frá þeim tíma.“ Í sögulegum skáldskap sínum dregur Böðvar upp mynd af liðinni tíð sem byggð er á traustum grunni rannsóknarvinnu höfundar. Hann segir margar af sögunum í safninu Fyrir daga farsímans byggjast á sannsögulegum atburð- um. „Þeir gerðust kannski ekki ná- kvæmlega svona, en áttu sér ein- hverja hliðstæðu.“ Inntur eftir því hvort þetta sagnasafn líkist hans fyrri verkum segir hann verkið helst vera í svip- uðum stíl og smásagnasafnið Sög- ur úr Síðunni, sem kom út árið 2007. Sögurnar í Fyrir daga farsímans eiga það sameiginlegt að greina frá reynsluheimi karlmanna. Böðv- ar bregður ekki út af vananum í þeim efnum heldur. Hann segir það sjálfsagt að halda sig sig við þann reynsluheim sem hann þekk- ir. „Það er svo mikið til af úrvals- góðum kvenrithöfundum og þær skrifa margar um konur, og ein- göngu konur. Þá er komið að því að skrifa svolítið um karlana, þeir eru líka til,“ segir hann og hlær. Ísland, Ítalía og Norðursjór Böðvar hefur verið búsettur í Danmörku í 34 ár, en hugurinn leitar heim til Íslands þegar hann smíðar sögum sínum sögusvið. Nokkrar sagnanna teygja þó anga sína út fyrir landsteinana, meðal annars til Ítalíu og á olíuborpall í Norðursjó. „Það er svolítill heimur til fyrir utan Ísland,“ segir Böðvar. Rithöfundurinn hefur verið að safna saman sögum í þetta smá- sagnasafn í svolítinn tíma, nokkrar sögurnar segir hann vera orðnar nokkurra ára. Hann hefur ekki gefið út smásagnasafn í nokkur ár, en gerir það núna og þá komast þær sögur að sem hann hefur sankað að sér á undanförnum ár- um. Böðvar er, eins og áður sagði, búsettur í Danmörku og hafði því sjálfur ekki fengið eintak af bók- inni í hendurnar, þar sem póst- sendingar milli landa hafa verið takmarkaðar í kófinu, þegar blaða- maður hafði samband við hann símleiðis. Hann býr á Norður- Sjálandi, rétt utan við Kaup- mannahöfn, og segist hann hafa haft það ágætt í kófinu í Dan- mörku. Sumarið er komið þar í landi og hitinn fór upp í 28 stig daginn sem blaðamaður náði tali af honum. Morgunblaðið/Golli Rithöfundur Böðvar gefur út smásagnasafnið Fyrir daga farsímans. Braggahverfi, hernað- arsaga og helgidómar  Böðvar Guðmundsson hefur gefið út nýtt sagnasafn  Smásögurnar gerast allar fyrir daga farsímans

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.