Morgunblaðið - 20.06.2020, Side 44
44 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. JÚNÍ 2020
Bjarni Thor Kristinsson óperu-
söngvari er bæjarlistamaður Garða-
bæjar árið 2020 og Hallfríður Ólafs-
dóttir hlaut heiðursviðurkenningu
fyrir sín góðu störf. Tilkynnt var um
valið við athöfn í Sveinatungu á
Garðatorgi 16. júní.
Heiðursviðurkenningu fyrir mikil-
vægt framlag til menningar og lista
fékk Hallfríður en hún er flautuleik-
ari og höfundur bókanna vinsælu um
Maxímús Músíkús.
Bjarni hóf söngnám 18 ára og fór
til Vínarborgar í framhaldsnám árið
1994. Vorið 1997 var hann ráðinn
sem aðalbassasöngvari þjóðaróper-
unnar í Vín. Eftir nokkurra ára fast-
ráðningu þar fór Bjarni víða um
heim og hefur sungið ýmis hlutverk í
óperum sem lausráðinn söngvari.
Bjarni Thor hefur verið tíður gestur
í ríkisóperunni í Berlín en auk þess
komið fram í mörgum af bestu óp-
eruhúsum heims, s.s. í Chicago,
Róm, Veróna, París, Palermo og
Lissabon. Hann hlaut Grímuverð-
launin fyrir hlutverk Osmin í óper-
unni Brottnámið úr kvennabúrinu
hjá Íslensku óperunni árið 2006 og
hefur að mestu sungið erlendis
undanfarin ár, nú síðast í Parma á
Ítalíu þar sem hann var við æfingar
þegar kórónuveirufaraldurinn fór af
stað, að því er fram kemur í tilkynn-
ingu en fram undan voru verkefni í
Þýskalandi og í Japan.
Hallfríður er einn fremsti flautu-
leikari þjóðarinnar og hefur unnið
mikilvægt brautryðjendastarf með
útgáfu á bókunum um Maxímús
Músíkús sem þýddar hafa verið á
mörg tungumál og margar þekktar
sinfóníuhljómsveitir hafa flutt Maxí-
músar-dagskrá.
Bjarni Thor tók lagið við athöfn-
ina og Hallfríður minnti á mikilvægi
tónlistarskólanna á Íslandi sem gera
flestum börnum kleift að læra á
hljóðfæri.
Bjarni bæjarlista-
maður Garðabæjar
Djúpur Bjarni Thor, bæjarlistamaður Garðabæjar 2020, er bassasöngvari
og djúpur eftir því. Hér sést hann taka lagið við athöfnina 16. júní.
Hallfríður hlaut viðurkenningu
Heiðruð Hallfríður Ólafsdóttir.
Jón Ingi Sigurmundsson opnar
málverkasýningu í samkomuhús-
inu Stað á Eyrarbakka í dag kl. 14.
„Landslagsmyndir eru í meirihluta
en fólki, fuglum og blómum bregð-
ur fyrir,“ segir um sýninguna sem
verður opin um helgar til 12. júlí en
lokað verður 25.-29. júní. Að öllum
líkindum verður opið virka daga
þegar upplýsingamiðstöðin er opin.
Jón Ingi hefur starfað við myndlist
og haldið fjölda einkasýninga, flest-
ar á Suðurlandi en einnig á Norð-
urlandi og í Danmörku, auk þess að
fást við kennslu og tónlistarstörf.
Landslag í meirihluta á sýningu Jóns
Á sýningu Eitt af verkum Jóns Inga.
Heimilisofbeldi hefur veriðmikið í umræðunni aðundanförnu og glæpa-sagan Í vondum félags-
skap eftir Vivecu Sten er gott inn-
legg í málaflokkinn. Höfundur tekur
málið fyrir frá ýmsum sjónar-
hornum og þó um skáldsögu sé að
ræða er frásögnin trúverðug og víti
til varnaðar.
Ekkert réttlætir ofbeldi og alls
ekkert styður heimilisofbeldi. En
einhverra hluta vegna virðast konur
gjarnan rekast á vegg, jafnt heima
fyrir sem í kerf-
inu, þegar á þeim
er brotið með
þessum hætti,
hvort sem það er
líkamlega eða
andlega. Þær
geta litla eða
enga björg sér
veitt og í stað
þess að komast út úr vandanum eru
þær fastar, jafnvel kerfisins vegna,
og það sem verra er kenna þær sér
um hvernig komið er fyrir þeim.
Þetta er hlutskipti Mínu í sögunni.
Ung giftist hún manni sem reynist
vera djöfull í mannsmynd, hrotti af
verstu tegund. Andreis svífst einskis
og leitun er að öðru eins óféti nema í
hans innsta hring. Nóra Linde er
andstæðan, eins og margir þekkja,
saksóknari sem gengur jafnvel of
langt í því að vernda ofsótta konuna.
Ulrika Grönstedt er aftur á móti
harðsvíraður verjandi Andreis. Í
hennar augum virðist rangt vera
rétt, þegar hún á í hlut. Svo er það
lögreglumaðurinn Thomas Andreas-
son, sem bregst ekki á ögurstundu.
Sandhamn-sería Vivecu Sten um
glæpi í sænska skerjagarðinum hef-
ur til þessa haft yfir sér rómantískan
blæ með Nóru og Thomas í aðalhlut-
verkum. Fjölskyldulífið hefur verið
áberandi en nú blasir það öðruvísi
við en áður að hluta til. Harkan sex
og mikil spenna ráða ríkjum, en fjöl-
skyldumálin, eins og lesendur fyrri
bóka þekkja þau, eru að mestu til
hliðar. Þar eru vissulega vandamál
en ekkert á við það sem annars er í
forgrunni. Eyjaskeggjar í sænska
skerjagarðinum hafa ekki sama djöf-
ul að draga og flóttamenn frá fyrr-
verandi Júgóslavíu.
Sagan er viðbjóðsleg og lýsir vel
varnarleysi ofsóttra kvenna, viður-
styggilegum manneskjum og óheyri-
legu ofbeldi en jafnframt þeirri trú
að réttlæti, ást og fjölskylda sé þess
virði að berjast fyrir og standa vörð
um.
Morgunblaðið/Kristinn
Glæpasagnahöfundur Í bók sinni Í vondum félagsskap tekur Viveca Stein fyrir heimilisofbeldi frá ýmsum hliðum.
Hrottaskapur og heimilis-
ofbeldi tekið föstum tökum
Glæpasaga
Í vondum félagsskap bbbbn
Eftir Vivecu Sten.
Elín Guðmundsdóttir þýddi.
Ugla, 2020. Kilja. 504 bls.
STEINÞÓR
GUÐBJARTSSON
BÆKUR
Raddir vorsins vakna er yfirskrift
tónleika sem Helga Laufey Finn-
bogadóttir og Haukur Gröndal
halda í Hannesarholti á morgun kl.
12.15. Þau koma fram með nýtt dúó
sem flytur söngva frá Miðjarðar-
hafslöndunum, Argentínu og Bras-
ilíu en bæði eru þekkt fyrir að leika
hina ýmsu tónlistarstíla. Á tónleik-
unum verða flutt lög og verk sem
endurspegla þann bakgrunn, eins
og segir á vef Hannesarholts. Helga
Laufey leikur á flygil og Haukur á
altósaxófón og klarinett.
Verk eftir Piazzolla verða fyr-
irferðarmikil en einnig söngvar eft-
ir spænska tónhöfunda og lög frá
Brasilíu í svokölluðum „choro“-stíl.
Frekari upplýsingar má finna á
vef Hannesarholts, hannesarholt.is.
Dúó Haukur Gröndal og Helga Laufey Finnbogadóttir halda tónleika á morgun.
Raddir vorsins vakna í hádeginu