Morgunblaðið - 22.06.2020, Blaðsíða 1
M Á N U D A G U R 2 2. J Ú N Í 2 0 2 0
Stofnað 1913 145. tölublað 108. árgangur
SKÓGRÆKTAR-
FÉLAG ÍSLANDS
90 ÁRA
MÓÐURSKIP-
IÐ LÆTUR
ÚR HÖFN
VANN ALLAR
VIÐUREIGNIR
SÍNAR
MARÍA HRUND 10 ÓLAFÍA ÞÓRUNN 26JÓNATAN GARÐARSSON 11
„Mér fannst stóllinn hreyfast undir
mér,“ sagði Bjarni Magnússon,
hreppstjóri í Grímsey, um skjálftann
á laugardagskvöldið. Hann var þá
staddur á sjávarréttakvöldi kven-
félagsins og sló þögn á mannskapinn
þótt Grímseyingar séu vanari jarð-
skjálftum en flestir landsmenn.
„Ég fann mikið fyrir þessu. Ég bý
á þriðju hæð í gömlu timburhúsi og
þar lék allt á reiðiskjálfi. Húsið
hristist og það glamraði í leirtaui og
glermunum,“ sagði Arnar Sigurðs-
son, skipstjóri á Húsavík, í gær-
kvöldi um stóran skjálfta sem átti
upptök sín norður af Eyjafirði og var
stærð hans mæld 5,8. Er þetta
stærsti skjálfinn í hrinunni sem
staðið hefur frá því á föstudag og
virðist því ekkert lát vera á henni.
Almannavarnir hafa lýst yfir
óvissuástandi á Norðurlandi eystra.
Veðurstofan biður fólk að búa sig
undir að hrinan geti staðið áfram
næstu daga og verið undanfari
stærri skjálfta. »6
Fannst stóllinn hreyfast
Veðrið lék við íbúa á höfuðborgarsvæðinu í gær
og margir nutu útiveru. Kátt var á hjalla í Elliða-
árdal þar sem leikhópurinn Lotta skemmti börn-
um sem fullorðnum. Leikhópurinn hefur verið
starfræktur frá árinu 2006 en frá árinu 2007 hef-
ur hann verið á ferð um landið og hefur Lotta
sérhæft sig í sýningum utandyra. Að þessu sinni
sýnir hópurinn söngleik sem byggður er á þjóð-
sögum um Bakkabræður.
Líf og fjör hjá Bakkabræðrum í Elliðaárdal
Morgunblaðið/Sigurður Unnar
Leikhópurinn Lotta á ferð um landið
Vilhjálmur Birgisson, formaður
Verkalýðsfélags Akraness, segir
forsendur lífskjarasamninga brostn-
ar með því að lög um afnám 40 ára
verðtryggðra jafngreiðslulána sem
áttu að vera tilbúin 1. janúar sl., hafi
ekki enn verið sett. Þá liggi fyrir að
það frumvarp sem fjármálaráðherra
hyggist leggja fram sé með svo mikl-
um undanþágum að nánast allir geti
haldið áfram að taka slík lán. „Að
mínu mati er þetta umtalsverður
forsendubrestur og svik miðað við
það sem um var talað,“ segir Vil-
hjálmur. »4
Forsendubrestur og
svik vegna samninga
Rúmenskur
karlmaður,
Pioaru Alex-
andru Ionut, sem
var einn þeirra
sem íslensk
stjórnvöld lýstu
eftir í viðleitni
sinni til að hefta
útbreiðslu kór-
ónuveirunnar,
hefur ranglega verið bendlaður við
þjófagengi í rúmenskum fjöl-
miðlum. Misskilninginn má rekja til
þess þegar yfirvöld hérlendis birtu
mynd af honum til þess að ná tali af
honum. Þrír Rúmenanna voru
handteknir fljótlega eftir komuna
til landsins fyrir búðarhnupl en
þekkti Pioaru ekki til mannanna
fyrir komu sína til Íslands. Myndin
þar sem lýst er eftir honum hefur
ítrekað verið notuð í fjölmiðlum í
Rúmeníu. Pioaru segir leitt að vera
bendlaður við slíkt en hann kom
hingað til lands til að vinna. »4
Ranglega sagður
þjófur í fjölmiðlum
Pioaru Ionut
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Gatnakerfið okkar er ekki byggt
fyrir þetta. Það ættu að vera sér-
stakir hjólastígar fyrir rafskútur og
hjól því það er ekkert grín ef keyrt
er á gangandi vegfaranda á 25 kíló-
metra hraða. Þetta er mikið
áhyggjuefni,“ segir Karlotta Hall-
dórsdóttir, verkefnastjóri forvarna
hjá Sjóvá.
Umferð rafskútna hefur aukist
mikið að undanförnu og tíðar fréttir
eru af slysum þeim tengdum. Her-
dís Storgaard, forstöðumaður Mið-
stöðvar slysavarna barna, segir að
rafskútuleigur þurfi að vera gagn-
rýnni þegar kemur að notkun
ungra barna. Hún furðar sig á því
af hverju krakkar undir 18 ára geti
leigt sér rafskútu með debetkorti
sínu. Viðbúið sé að alvarleg slys
geti orðið og erfitt geti verið að
greiða úr málum þar sem barn á í
hlut.
Ómar R. Valdimarsson lögmaður
segir að þótt leigutaki á rafskútu sé
ekki orðinn lögráða geti hann verið
bótaskyldur ef hann veldur tjóni.
Hægt sé að gera kröfu á hann og
foreldra hans ef heimilistrygging
borgar ekki tjónið.
Eyþór Máni Steinarsson, rekstr-
arstjóri rafskútuleigunnar Hopp,
segir að ýmis grá svæði séu um
ábyrgð í tjónamálum.
„Grá svæði“ í rafskútuslysum
MKallað eftir skýrari reglum »14
ríkissáttasemjari að náðst hafi
samkomulag um öll atriði kjara-
samnings ef frá er talið afmarkað
atriði er varðar laun. „Þessi tillaga
er óvenjuleg,“ segir Aðalsteinn,
„en ekki síst lögð fram vegna mik-
ilvægis stéttar hjúkrunarfræðinga
og þess að þetta var eina vel skil-
greinda ágreiningsmálið sem stóð
út af borðinu.“
Alexander Kristjánsson
alexander@mbl.is
Ríkissáttasemjari lagði á tólfta
tímanum í gær fram miðlunartil-
lögu í deilu Félags íslenskra hjúkr-
unarfræðinga og ríkisins. Verkfalli,
sem hefjast átti í dag, hefur því
verið afstýrt. Í samtali við Morg-
unblaðið segir Aðalsteinn Leifsson
Greidd verða atkvæði um miðl-
unartillöguna meðal félagsmanna
Félags íslenskra hjúkrunarfræð-
inga. Atkvæðagreiðslan verður raf-
ræn og hefst hún klukkan 12 á há-
degi á miðvikudag og stendur fram
á laugardag. Þangað til verður efni
hennar ekki birt öðrum en þeim
sem eiga hlut að máli, en Aðal-
steinn segir það gert af virðingu
við hjúkrunarfræðinga.
Verði tillagan samþykkt mun
ríkissáttasemjari skipa þriggja
manna gerðardóm til að úrskurða
um launaliðinn en kjarasamningur
að öðru leyti fara eftir samkomu-
lagi sem þegar hefur náðst.
Kjarasamningasamningar hjúkr-
unarfræðinga hafa verið lausir frá
því í mars í fyrra, en málinu var
vísað til ríkissáttasemjara í febrúar
í ár. Hjúkrunarfræðingar hafa þeg-
ar fellt kjarasamning einu sinni, en
það var í apríl er 53% hjúkrunar-
fræðinga felldu samning.
Hvorki náðist í Guðbjörgu Páls-
dóttur, formann Félags íslenskra
hjúkrunarfræðinga, né Gunnar
Helgason, sviðsstjóra kjara- og
réttindasviðs félagsins.
Verkfalli hjúkrunarfræðinga afstýrt
Miðlunartillaga ríkissáttasemjara um að vísa launalið í gerðardóm Samkomulag um önnur atriði