Morgunblaðið - 22.06.2020, Qupperneq 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. JÚNÍ 2020
Lækjargata 34a / 220 Hafnarfjörður
- Við erum hér til að aðstoða þig! -
• Sérsmíðaðir skór
• Skóbreytingar
• Göngugreiningar
• Innleggjasmíði
• Skóviðgerðir
Erum með samning við
sjúkratryggingar Íslands
Tímapantanir í síma 533 1314
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Þinglokasamningar í uppnámi
Miðflokkur sakaður um að taka þingið „í gíslingu“ Minnihluti segir nauðsynlegt að ríkisstjórn slái af
kröfum Ekki samstaða innan stjórnar um öll frumvörp Ólíklegt að útlendingafrumvarp verði afgreitt
Alexander Kristjánsson
alexander@mbl.is
Þinglokasamningar eru í uppnámi
og ólíklegt að takist að ljúka þingi á
tilsettum tíma, nú á fimmtudag.
Þetta er mat flestra þingflokksfor-
manna sem Morgunblaðið hefur
rætt við. Þingflokksformenn stjórn-
arflokka segja Miðflokksmenn halda
þinginu í gíslingu með málþófi um
samgönguáætlun en umræður stóðu
yfir um málið fram á nótt á föstudag
og allan laugardag. Samkvæmt
heimildum Morgunblaðsins er þó
ekki full samstaða um öll stjórnar-
frumvörp innan ríkisstjórnarflokk-
anna og óvíst hvort takist að af-
greiða frumvarp um breytingar á
sendiherraskipan og hlutdeildarlán
fyrir sumarlok. Þá þykir fyrirséð að
frumvarp um breytingar á útlend-
ingalögum nái ekki fram að ganga,
en frumvarpið myndi flýta brottvís-
un umsækjenda um alþjóðlega
vernd sem þegar hafa fengið vernd í
öðru Evrópuríki.
Minnihlutinn ráði ekki ferðinni
Birgir Ármannsson, þingflokks-
formaður Sjálfstæðisflokks, segir
óeðlilegt að umræður um eitt dag-
skrármál, samgönguáætlun, standi
yfir í heila viku. Hann segir Mið-
flokkinn standa einan að málþófi en
að aðrir stjórnarandstöðuflokkar
haldi sig til hlés í skjóli Miðflokksins
og geri kröfur um að ríkisstjórnin
taki mál af dagskrá í ljósi stöðunnar
sem upp er komin. „Auðvitað er
ljóst að þetta verða færri mál en við
reiknuðum með fyrir einhverjum
vikum síðan, en það er hins vegar
ekki þannig að stjórnarandstaðan
hafi ótakmarkað neitunarvald. Eng-
in ríkisstjórn getur sætt sig við að
minnihlutinn ráði ferðinni,“ segir
Birgir. Hann segir aðspurður að
frumvarp um breytingar á útlend-
ingalögum sé meðal þeirra frum-
varpa sem ekki sé útlit fyrir að fái
afgreiðslu nú á þinginu. Að mati
Birgis er óumflýjanlegt að fleiri
þingfundum verði bætt við til að
ljúka því sem þurfa þykir fyrir sum-
arfrí.
Gunnar Bragi Sveinsson, þing-
flokksformaður Miðflokksins, tekur
í annan streng. Hann segir raun-
hæft að þingi ljúki nú á fimmtudag
enda sé þegar búið að skrifa undir
það og samþykkja. „Þetta snýst um
hvaða mál meirihlutinn er tilbúinn
að leggja áherslu á. Mörg þeirra
geta leikandi beðið,“ segir Gunnar
Bragi. Honum þykir þinghald þegar
komið of nærri forsetakosningum,
sem fram fara á laugardag, og ekki
upp á það bjóðandi að þingið starfi
fram yfir kosningar.
Vilja stoppa ýmis frumvörp
Oddný G. Harðardóttir, þing-
flokksformaður Samfylkingar, segir
alltaf hafa legið fyrir að ekki gengi
eftir að ljúka þingi á tilskildum tíma.
„En auðvitað þrengist enn um þegar
umræður ganga hægt.“ Að sögn
Oddnýjar eru breytingar á sam-
keppnislögum, útlendingalögum og
sendiherraskipan meðal þeirra mála
sem Samfylkingin vill alls ekki að
fari í gegn.
Halldóra Mogensen, þingflokks-
formaður Pírata, nefnir sömu mál,
um sendiherraskipan og breytingar
á samkeppnislögum, og segir ljóst
að þessi mál þurfi mikla umræðu í
þinginu. Spurð út í væntanleg þing-
lok segir hún það í höndum ríkis-
stjórnarinnar að leggja fram tillögur
og slá af kröfum um þingmálafjölda.
Stjórnin hafi þegar „saltað“ eigin
mál á borð við frumvarp um styrk til
fjölmiðla.
Þingflokksformenn munu að öll-
um líkindum funda í dag um fram-
hald þingstarfa.
Morgunblaðið/Ómar
Alþingi Ekki er víst hvort tekst að ljúka þingi á fimmtudag, eins og til stóð.
Birgir
Ármannsson
Oddný G.
Harðardóttir
„Hópar eru að koma hingað í sam-
starfi við erlendar ferðaskrifstofur.
Þá liggur fyrir samningur fyrir fram
um verð fyrir ferðina og það er erfitt
að bæta þessu ofan á. Í mörgum til-
fellum bregða íslensku fyrirtækin þá
á það ráð að taka yfir gjaldið að fullu.
Aðrir fara þá leið að veita afslátt af
ferðum því sem nemur gjaldinu til að
koma til móts við viðskiptavini,“ seg-
ir Jóhannes Þór Skúlason, fram-
kvæmdastjóri Samtaka ferðaþjón-
ustunnar.
Íslensk ferðaþjónustufyrirtæki
eru í mörgum tilvikum að undir-
gangast skimunargjald viðskipta-
vina á leið til til landsins. Frá 1. júlí
kostar skimun við landamæri Ís-
lands 15.000, sem Jóhannes Þór seg-
ir hafa verið að fæla fólk frá. Til að
koma í veg fyrir að gjaldið valdi því
að viðskiptavinir hætti alfarið við að
koma, hafi fyrirtæki verið að greiða
það fyrir þau með ýmsum hætti.
Greint var frá því á Bylgjunni í gær
að ferðaþjónustufyrirtækið Arctic
Adventures er eitt þessara fyrir-
tækja.
Jóhannes segir þetta ástand kippa
stoðunum undan fullyrðingum um að
það sé hagfræðilega skynsamlegt að
ferðamenn borgi fyrir skimunina
sjálfir. „Hagfræðingar hafa haldið
því á lofti að það sé skynsamlegt að
ferðamenn borgi sjálfir en slík um-
mæli falla um sjálf sig þegar þau
komast í tæri við raunveruleikann í
greininni. Staðreyndin er sú að stór
hluti af þessum gjöldum eru greidd
af íslenskum fyrirtækjum,“ segir Jó-
hannes.
Jóhannes Þór segir pólitíska
ákvörðun að hafa gjaldið 15.000
krónur, en ekki til dæmis 5.000 krón-
ur. Gjaldið sé lýjandi, bæði fyrir þá
sem eru búnir að greiða fyrir ferðir
en einnig fyrir ferðaskrifstofur.
Fyrirtækin greiða skimunina
Íslensk ferðaþjónusta kemur til móts við viðskiptavini sína
Morgunblaðið/Íris
Skimun Farþegar sem koma til
landsins fara nú í gegnum skimun.
Hitinn í höfuðborginni fór yfir 20
stig klukkan 14 í gær og er það í
fyrsta sinn sem það hendir þetta
sumarið. „Það er mjög hlýtt loft yfir
landinu, hitinn var kominn yfir 18
gráður áður en sólin fór að skína.
Sólin er aukaleikari í þessu mætti
segja,“ sagði Birgir Örn Höskulds-
son, veðurfræðingur á Veðurstofu
Íslands, í samtali við mbl.is. Hlýtt
var á öllu landinu en heldur dregur
úr sumarhitanum í dag. Fólk naut
veðurblíðunnar, meðal annars í Ár-
bæjarsafni.
Í fyrsta skipti
yfir 20 gráður
Morgunblaðið/Sigurður Unnar
Í lest Leikið í Árbæjarsafni.
Sjómenn á rúmlega 20 strand-
veiðibátum róa frá og landa afla sín-
um í sumar á Norðurfirði á Strönd-
um. „Þetta er nokkuð sem okkur hér
munar verulega um. Útgerðin skilar
sveitarfélaginu tekjum með hafnar-
og vigtargjöldum og fleiru slíku og
allt þetta skapar meira líf hér á
svæðinu,“ segir Eva Sigurbjörns-
dóttir, oddviti Árneshrepps, í sam-
tali við Morgunblaðið.
Eftir hvern þann dag sem róið er
til fiskjar er heimilt að koma með
650 kíló af afla að landi, en til skipt-
anna á strandveiðum þessa árs eru
alls 10 þúsund tonn. Alls voru gefin
út leyfi til strandveiða til um 420
báta í ár, og eins og venjulega er stí-
fast sótt við vestanvert landið. Frá
Norðurfirði hafa menn gjarnan sótt
norður á bóginn út á reginhaf og
veitt vel. Aflinn fer svo á markað og
eru flutningabílar daglega í Norð-
urfirði til að sækja aflann.
Munar um
útgerðina
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Sjómenn á liðlega tuttugu strandveiðibátum landa afla sínum á Norðurfirði á Ströndum