Morgunblaðið - 22.06.2020, Síða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. JÚNÍ 2020
Smiðshöfða 9, 110 Rvk. logoflex@logoflex.is 577 7701 www.logoflex.is
Auglýsingamerkingar
Risaprentun, límfilmur, álmyndir, límmiðar, bílamerkingar
LogoFlex sérhæfir sig í framleiðslu skilta, prentunum og
smíði úr plasti ásamt efnissölu á plexigleri og álprófílum
Þjófkenndur í rúmenskum fjölmiðlum
Hafa ítrekað birt mynd af manninum í tengslum við þjófagengi Kom til Íslands til þess að vinna
Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
Einn þeirra sex Rúmena sem yfirvöld
lýstu eftir í tengslum við aðgerðir til
að hefta útbreiðslu kórónuveirunnar
hér á landi hefur ranglega verið
bendlaður við þjófagengi í fjölmiðlum
í Rúmeníu. Misskilningurinn á rætur
sínar að rekja til þess að íslensk yf-
irvöld lýstu eftir manninum sem og
öðrum Rúmenum sem komu til Ís-
lands með flugi frá London. Þrír
mannanna voru fljótlega handteknir
fyrir búðarhnupl og sagðir í þjófa-
gengi. Maðurinn, Pioaru Alexandru
Ionut, kom hins vegar hingað til lands
til að að starfa hjá íslensku verktaka-
fyrirtæki og þekkti hann ekki aðra
Rúmena sem voru um borð í flugvél-
inni. Myndin þar sem lýst er eftir
honum hefur ítrekað verið notuð í
fjölmiðlum í Rúmeníu þar sem rætt er
um þjófagengi á Íslandi.
Íhugar málsókn
Að sögn verktakans hafði Pioaru
dvalið í viku í sóttkví í aðstöðu sem
hann hafði útvegað Pioaru þegar hér-
lend yfirvöld lýstu eftir honum.
Pioaru segir að myndbirtingin hafi
komið honum í opna skjöldu og gaf
hann sig samstundis fram við yfirvöld
hérlendis að eigin sögn og tekur verk-
takinn undir frásögn mannsins. Var
hann færður í sóttkví á Fosshótel
Lind þar sem hann dvaldi aðra viku.
Eftir myndbirtinguna ályktuðu
rúmenskir fjölmiðlar sem svo að
Pioaru væri hluti af gengi manna sem
grunað er um að hafa komið hingað til
lands í þeim eina tilgangi að stela
verðmætum. „Ég fékk fljótlega sím-
hringingar frá vinum og fjölskyldu.
Mamma lagði til að ég myndi tala við
lögfræðing strax. Fólkið í kringum
mig veit að ég er löghlýðinn og því er
mjög leitt að lenda í því að vera sýnd-
ur í þessu ljósi,“ segir Pioaru.
Hann segist ekki hafa þekkt aðra
rúmenska farþega í flugvélinni en
hann kom til landsins fyrir tilstilli
tengdaföður síns sem starfar hjá
verktakafyrirtækinu. Hafði hann út-
vegað tengdasyninum vinnu. „Ég hef
ekki rætt við fjölmiðla í Rúmeníu en
þeir birta alltaf mynd af mér,“ segir
Pioaru.
Tóku skýringu trúanlega
Pioaru segir að íslenska lögreglan
hafi tekið skýringar um veru hans á
Íslandi trúanlega. „Lögreglan talaði
við yfirmanninn minn og svo var þetta
ekki rætt meira og ég kláraði bara
dvölina á hótelinu.“
Morgunblaðið/Sigurður Unnar
Þjófkenndur Pioaru Alexandru Inonut sem yfirvöld lýstu eftir segir farir
sínar ekki sléttar eftir að mynd birtist af honum í fjölmiðlum á Íslandi.
Vilhjálmur Birgisson, formaður
Verkalýðsfélags Akraness, segir að
forsendur lífskjarasamninga séu
brostnar með því að lög um afnám 40
ára verðtryggðra jafngreiðslulána
sem áttu að vera tilbúin 1. janúar sl.,
hafi ekki enn ver-
ið sett. Þá liggi
fyrir að það frum-
varp sem fjár-
málaráðherra
hyggist leggja
fram sé með svo
miklum undan-
þágum að nánast
allir geti haldið
áfram að taka slík
lán. „Að mínu
mati er þetta um-
talsverður forsendubrestur og svik
miðað við það sem um var talað,“
segir Vilhjálmur.
Boðað er til formannafundar Al-
þýðusambands Íslands í dag. Þar
verður meðal annars farið yfir stöðu
mála í yfirlýsingu sem stjórnvöld
gáfu í tengslum við lífskjarasamn-
inginn og hvaða áherslu skuli leggja
við mat á forsendum kjarasamninga
í september.
Auk verðtryggðu lánanna nefnir
Vilhjálmur frumvarp til laga um
hlutdeildarlán sem hann segir að bú-
ið sé þynna svo mikið út að varla
samræmist yfirlýsingu stjórnvalda.
Á hinn bóginn segir hann að for-
sendur lífskjarasamninga varðandi
kaupmátt og lækkun vaxta hafi fylli-
lega staðist. „Æði margt í þessum
samningum hefur staðið. Eitt af
stóru atriðunum var að stuðla að
verðstöðugleika og lækkun vaxta.
Við ætluðum að reyna að ná aukn-
ingu á ráðstöfunartekjum með fleiri
þáttum en launabreytingum. Það
tókst,“ segir Vilhjálmur.
Ragnar Þór Ingólfsson, formaður
VR, hefur sagt að miðað við stöðuna
séu lífskjarasamningarnir fallir og
vísaði til efnda stjórnvalda á yfirlýs-
ingu. „Það þarf að vega og meta
kostina,“ segir Vilhjálmur spurður
um mögulega uppsögn. Hann segir
að það skipti líka máli að fólkið fái
launahækkanir sem samningurinn
feli í sér. „Það eina sem ég bið um er
að menn standi við yfirlýsingar sem
þeir skrifa undir. Það er aldrei gott
ef traust og trúnaður til ríkisstjórnar
er ekki til staðar.“ helgi@mbl.is
Staðið verði
við yfirlýsingar
Vilhjálmur Birgisson telur forsendur
samninga brostnar Formenn funda
Vilhjálmur
Birgisson
Lík fannst í Berginu við smábáta-
höfnina í Grófinni í Keflavík,
Skammt frá Skessuhelli, um miðjan
dag í gær. Lögreglan er með málið
til rannsóknar.
Viðbúnaður var mikill á milli eitt
og þrjú á svæðinu, þar sem allt til-
tækt slökkvilið var kallað út, ásamt
sjúkrabílum, lögreglu og björg-
unarsveitum. Útkallið barst
slökkviliðinu um klukkan 13.15,
samkvæmt upplýsingum Bruna-
varna Suðurnesja, og voru við-
bragðsaðilar farnir af vettvangi um
klukkan þrjú.
Ólafur Helgi Kjartansson, lög-
reglustjóri á Suðurnesjum, staðfesti
líkfundinn við mbl.is í gær. Málið er
rannsakað sem mannslát en ekki
fást frekari upplýsingar um rann-
sóknina að svo stöddu.
Líkfundur
í Keflavík
Viðbúnaður hjá
viðbragðsaðilum við
smábátahöfnina
Yfir 300 manns komu saman á bjór- og götumat-
arhátíðinnni Street Food and Beer Festival í
Vestmannaeyjum á laugardag. Yfir tuttugu
brugghús kynntu framleiðslu sína og gestir
skemmtu sér hið besta. Forsvarsmenn The
Brothers Brewery skipulögðu hátíðina.
Þær Sigrún Logadóttir og Berglind Kristjáns-
dóttir voru klæddar í viðeigandi fatnað og
skemmtu sér vel á hátíðinni.
Ósvikin gleði á bjórhátíð í Eyjum
Morgunblaðið/Óskar Pétur Friðriksson