Morgunblaðið - 22.06.2020, Side 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. JÚNÍ 2020
Ársfundur
Frjálsa lífeyrissjóðsins
Dagskrá
1. Skýrsla stjórnar
2. Kynning ársreiknings
3. Kosning stjórnar og varamanna
4. Tryggingafræðileg athugun
5. Fjárfestingarstefna sjóðsins
6. Kjör endurskoðanda
7. Tillögur um breytingar á samþykktum sjóðsins
8. Laun stjórnarmanna
9. Önnur mál
- Kynning á fyrirkomulagi rafrænna kosninga
Tillögur um breytingar á samþykktum sjóðsins, upplýsingar um frambjóðendur
til stjórnar og aðrar upplýsingar um fundinn má nálgast á frjalsi.is.
Sjóðfélagar þurfa að framvísa skilríkjum með mynd við skráningu
inn á fundinn.
Stjórn sjóðsins hvetur sjóðfélaga til að mæta á fundinn.
Ársfundur Frjálsa lífeyrissjóðsins verður haldinn
þriðjudaginn 23. júní kl. 17.15 í Silfurbergi í Hörpu.
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Öflug jarðskjálftahrina sem verið hef-
ur á Norðurlandi virðist ekki í rénun
því stærsti skjálftinn reið yfir klukkan
rúmlega sjö í gærkvöldi. Fannst hann
víða á Norðurlandi en þó ekki eins
víða og heldur minni skjálfti sem kom
á laugardagskvöldið. Sjálfvirkt jarð-
skjálftakerfi Veðurstofunnar hafði í
gærkvöldi staðsett tæplega 2.000
jarðskjálfta.
„Hann var ekki að neinu gagni,“
sagði Ámundi Gunnarsson, slökkvi-
liðsstjóri á Siglufirði, skömmu eftir
stóra skjálftann í gærkvöldi sem Veð-
urstofan taldi að hefði verið af stærð-
inni 5,8. Ármann sagði að stöðugur
hristingur hefði verið lengi á eftir.
„Ég fann mikið fyrir þessu. Ég bý á
þriðju hæð í gömlu timburhúsi og þar
lék allt á reiðiskjálfi. Húsið hristist og
það glamraði í leirtaui og gler-
munum,“ sagði Arnar Sigurðsson,
skipstjóri á Húsavík, í gærkvöldi um
stóra skjálftann.
Kom högg á bátinn
Stærstu skjálftarnir á laugardag
voru af stærðinni 5,4 klukkan rúmlega
þrjú og 5,6 klukkan að verða hálfátta
um kvöldið. Íbúar virðast hafa fundið
meira fyrir þeim og þó sérstaklega
kvöldskjálftanum, sem og fólk víða um
land.
Arnar er skipstjóri á hvalaskoð-
unarbáti og var að sýna farþegum
fjóra hnúfubaka norðan við Hrísey
upp úr klukkan þrjú á laugardag.
„Það kom mikið högg á bátinn. Mér
fannst það skrítið af því að ég var á
hægustu ferð. Hélt að eitthvað hefði
bilað í vél eða báturinn fengið í skrúf-
una. Ég las á alla mæla og fór niður í
vél og allt var eðlilegt. Þegar ég kom
upp aftur frétti ég af skjálftanum úr
landi,“ sagði Arnar. Hann sagði að
einnig hefði getað komið til greina að
einn hvalanna hefði slengt sporði í
bátinn en hann hafi fylgst sérstaklega
vel með þeim og ekki merkt neina
breytingu.
Ámundi segist hafa setið inni í stofu
heima hjá sér og slakað á þegar
skjálftinn á laugardagskvöldið reið yf-
ir. „Mér fannst eins og keyrt væri á
húsið, það nötraði allt saman í ábyggi-
lega hálfa mínútu. Mér fannst hann
miklu stærri en skjálftinn núna sem
sagður er stærri,“ sagði hann. Ekki
er vitað um tjón á mannvirkjum eða
teljandi skemmdir á munum og ekki
hafa borist upplýsingar um slys á
fólki. Talsvert grjóthrun varð á laug-
ardag og varar Veðurstofan fólk við
því áfram.
Geta átt von á stærri skjálfta
Almannavarnir haf lýst yfir óvissu-
stigi á Norðurlandi og hvetur fólk til
að gera viðeigandi ráðstafanir vegna
jarðskjálfta. Veðurstofan biður fólk
að búa sig undir að hrinan geti staðið
áfram næstu daga. Þá geti slíkar
hrinur verið undanfari stærri skjálfta
þótt þær fjari yfirleitt út án þess.
Allt lék á reiðiskjálfi
í gömlu timburhúsi
Stærsti skjálftinn í gærkvöldi Fyrri skjálfti fannst víða
Skjáskot af vef Veðurstofunnar
Jarðskjálftar Grænu stjörnurnar sýna stærstu skjálftana út af Eyjafirði.
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Kórónuveirufaraldurinn hefur orðið
til þess að Niceland Seafood hefur
hraðað vöruþróun í frystum afurð-
um. Fyrstu pakkningarnar, þorskur
og ýsa í hálfs og eins kílóa pokum,
koma á markað-
inn í Bandaríkj-
unum í næsta
mánuði.
Niceland Sea-
food hefur sér-
hæft sig í sölu á
ferskum fiski til
Bandaríkjanna
og lagt áherslu á
rekjanleika af-
urðanna frá sjón-
um við Ísland til
neytenda jafnframt því sem lögð er
áhersla á heilnæmi afurðanna og
uppruna á Íslandi.
Halda í viðskiptavini
Fyrirtækið var komið með dreif-
ingu á nokkrum markaðssvæðum í
Bandaríkjunum þegar kórónuveiru-
faraldurinn teppti mjög flutnings-
leiðir. Heiða Kristín Helgadóttir
framkvæmdastjóri segir að hægt
hafi verið að flytja vörur til Boston
og því hafi dreifing þar í kring og
víðar á austurströndinni haldið
áfram. Ekki hafi verið hægt að
sinna markaðnum í Kaliforníu og
annars staðar á vesturströndinni.
„Við fórum á fullt í vöruþróun og
erum að setja á markað nýja afurð í
byrjun næsta mánaðar, frosinn
þorsk og ýsu í neytendapakkning-
um. Þetta gerum við til að halda í
samstarfsaðila á vesturströndinni.
Einnig hefur sala á frosnum afurð-
um aukist í þessu ástandi. Ég tel að
það geti verið tækifæri fyrir okkur
og sjávarútveginn almennt að selja
frosinn fisk sem hágæðavöru en það
fer líka eftir því hvernig varan er
kynnt á markaðnum,“ segir Heiða
Kristín.
Vörunum er í upphafi pakkað í
Bandaríkjunum en Heiða Kristín
segir að pökkunin verði færð heim
til Íslands við fyrsta tækifæri enda
skipti máli að hún sé sem næst
framleiðslunni.
Markaðssetningin byggist á sömu
lögmálum og í fersku afurðunum,
kaupandinn getur aflað sér upplýs-
inga um vöruna með því að skanna
inn qr-kóða á umbúðunum.
Frosinn fiskur í
neytendaumbúðum
Niceland flýtir
vöruþróun vegna
heimsfaraldursins
Pakkning Frosinn þorskur frá Nice-
land er seldur í þessum umbúðum.
Heiða Kristín
Helgadóttir
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Ferðasumarið er hafið á Borgarfirði
eystra. Mikið hefur verið að gera í
gistingu veitingum og sömuleiðis í
nýja kaffihúsinu í Hafnarhúsinu sem
eigendur Blábjarga reka. Auður Vala
Gunnarsdóttir í Blábjörgum segir að
þau þurfi að bæta við fólki til að geta
þjónað gestum vel.
„Það hefur verið mikið að gera í
júní og maí var ágætur líka. Vel er
bókað í júlí og stóran hluta ágústmán-
aðar,“ segir Auður.
Hún segir að allmargir erlendir
ferðamenn hafi komið við og þeim fari
fjölgandi. „Mér finnst ferða-
mannastraumurinn vera hafinn. Ís-
lendingar eru duglegir að koma, bæði
úr fjórðungnum og víðar að. Ég er
gríðarlega þakklát að fólk skuli ætla
að ferðast um landið og styðja ferða-
þjónustun á þann hátt,“ segir Auður.
Kaffihúsið í nýja Hafnarhúsinu var
opnað fyrir rúmri viku og það hefur
farið vel af stað. Auður Vala segir að
mikið hafi verið að gera um helgina.
Lundinn dregur að
Hún sagði engum upp í kórónu-
veirufaraldrinum og er að bæta við
fólki þessa dagana, segist þurfa sex
starfsmenn til viðbótar til að geta
veitt gestum góða þjónustu.
Í Hafnarhúsinu er aðstaða fyrir
sjómenn og ferðafólk á jarðhæð,
kaffihús á miðhæð og sýning-
araðstaða á efstu hæðinni. Ofan á
húsinu er síðan útsýnispallur. Jón
Þórðarson sveitarstjóri segir að hug-
myndin sé að koma upp margmiðl-
unarsýningu, náttúruglugga Borg-
arfjarðar, í húsinu og það verði gert
þegar hreppurinn hefur efni á því.
Lundinn er eitt helsta aðdráttarafl
ferðafólks í Borgarfirði og hefur að-
gengi að fuglinum verið bætt. Stiginn
upp á klettinn hefur verið mikið not-
aður undanfarin ár.
Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson
Borgarfjörður Lundinn fylgist með ferðafólki og sjómönnum að störfum.
Hafnarhúsið sést hinum megin við smábátahöfnina. Þar er nýtt kaffihús.
Mikið að gera í
ferðaþjónustunni