Morgunblaðið - 22.06.2020, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. JÚNÍ 2020
Klettagörðum 11 | 104 Reykjavík | Sími 568 2130 | verslun@et.is | Opið mánud.-föstud. kl. 8.00-18.00
Mikið úrval af
KÖSTURUM OG AUKALJÓSUM
fyrir allar gerðir bíla
Geir Ágústsson verkfræðingurskrifar um samgöngumál í
pistli á blog.is og segir þau frjósam-
an akur fyrir stjórnmálamenn því að
í þeim megi „stinga
upp á endalausum
leiðum sem snúast
aðallega um að
hægja á fjöl-
skyldubílnum og sóa
tíma fólks í umferð-
inni eða við biðskýli í
roki og rigningu.
Það má til dæmis stinga upp á þvíað setja þriggja stafa millj-
arðaupphæð í að byggja lestarteina
og setja á þá lestarvagna.
Menn eru nú þegar að vinna aðáætlunum um að setja risa-
stóra strætisvagna á umferðargötur
og ýta fjölskyldubílnum inn á færri
akreinar.“
Hann nefnir líka hugmyndirnarum sporvagninn, undir nafn-
inu léttlest, og það að láta stræt-
isvagna stöðva umferðina um leið og
þeir leggja við strætóskýlin, sem
hann furðar sig á. Þá bendir hann á
að mislæg gatnamót greiði fyrir um-
ferðinni en við þau sé andstaða, sem
er afar erfitt að skilja hvers vegna
er.
Loks segir hann: „Ég vil þvíleggja til að yfirvöld skoði al-
varlega kosti þess að ýta undir notk-
un hestvagna. Þeir menga ekki, geta
nýst á öllum tegundum vega,
tryggja að farþegar fái mikið af
fersku lofti og er tiltölulega ódýrt að
setja í fjöldaframleiðslu sem getur
notast við umhverfisvænt timbur.“
Ekki er ólíklegt að einhverjirfussi og sveii yfir þessari hug-
mynd, en hún er því miður ekki sú
vitlausasta sem varpað hefur verið
fram - jafnvel í fullri alvöru.
Geir Ágústsson
Hvers vegna ekki
hestvagna?
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Fyrir Alþingi liggja tillögur frá Vil-
hjálmi Bjarnasyni varaþingmanni
Sjálfstæðisflokksins um að reistir
verði minnisvarðar um þá Sigurð
Jónasson og Hans Jónatan, þræl
sem sótti frelsi sitt til Djúpavogs.
Sigurður gaf Íslendingum Bessa-
staði í þeim tilgangi að þar yrði bú-
staður ríkisstjóra og síðar forseta
lýðveldisins. Er lagt til að settur
verði upp skjöldur til að minnast
gjafar hans árið 1941. Á næsta ári
verða liðin 80 ár frá gjöf Sigurðar.
Hans Jónatan er sagður í greina-
gerð með frumvarpinu fæddur í
þrældóm og að hann hafi getið sér
gott orð í orustunni um Kaupmanna-
höfn árið 1801. Það hafi þó ekki dug-
að til að losna undan ánauð. Eigandi
hans höfðaði sögulegt mál til að stað-
festa eign sína á Hans Jónatan og
vann það mál.
Hans sætti sig ekki við niðurstöð-
una og strauk til Íslands árið 1802.
Hann settist að á Djúpavogi þar sem
hann gegndi verslunarstörfum og
gerðist bóndi. Er hann sagður fyrsti
blökkumaðurinn sem settist að hér á
landi. „Minnismerkið verði fyrst og
fremst ákall um það frelsi sem er
göfugast allra mannréttinda og má
aldrei gleymast þótt móti blási í erf-
iðum heimi,“ segir í greinargerð.
vidar@mbl.is
Vill minnast gjafar og frelsis
80 ár frá því Íslendingar fengu Bessa-
staði Fyrstur blökkumanna á Íslandi
Morgunblaðið/Ómar
Tímamót Að ári verða 80 ár frá því
þjóðin fékk Bessastaði að gjöf.
„Meistaradeildin hefur gengið vel
hjá mér og þetta var góður endir.
Mikilvægt var að ná stigum í báðum
greinum og áður var ég búinn að
landa tveimur sigrum. Maður þarf
að vera sterkur í öllum greinum til
að sigra,“ segir Jakob Svavar Sig-
urðsson, sem sigraði í meistaradeild
í hestaíþróttum, annað árið í röð.
Hann náði í stig í öllum sjö keppn-
isgreinum mótaraðarinnar og fékk
samtals 48,5 stig. Viðar Ingólfsson
varð í öðru sæti með 35 stig og Kon-
ráð Valur Sveinsson þriðji.
Hjarðatún, liðið sem Jakob Svav-
ar keppir fyrir, sigraði í liðakeppn-
inni. „Það var skemmtileg stemmn-
ing í liðinu í vetur og gaman að klára
þetta með þeim,“ segir Jakob.
Nauðsynlegt að ljúka mótinu
Keppnin í vetur var óvenjuleg,
eins og margt fleira í þjóðfélaginu.
Tvisvar þurfti að fresta lokamótinu
og það var að lokum haldið úti sem
ekki hefur gerst áður. „Það er
ánægjulegt að hægt var að klára
mótið og nauðsynlegt til að halda
stemmningunni. Ef það hefði ekki
tekist hefði verið erfitt að byrja
keppni á næsta ári,“ segir Jakob.
Á lokamótinu sem fram fór á Sel-
fossi í fyrrakvöld hófst söfnun fyrir
Eddu Rún Ragnarsdóttur knapa
sem slasaðist í vetur og fjölskyldu
hennar. Knaparnir voru með bönd
og í bolum merktum henni til að
minna á söfnunina. Ingibjörg Guð-
mundsdóttir, formaður stjórnar
meistaradeildarinnar, segir að söfn-
unin hafi farið vel af stað og getur
þess að hún standi út mánuðinn. „Nú
þurfum við hestamenn að standa við
bakið á Eddu Rún og fjölskyldunni,“
segir Jakob Svavar. helgi@mbl.is
Þarf að vera sterkur
í öllum greinum
Söfnun fyrir Eddu
Rún hestakonu fer
vel af stað
Sigurvegarar Bjarni Elvar Pjeturs-
son, Jakob Svavar og Helga Una
Björnsdóttir liðsstjóri.