Morgunblaðið - 22.06.2020, Page 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. JÚNÍ 2020
Ísfrost, sími 577 6666, Funahöfða 7, 110 Reykjavík
Ýmsar stærðir kælikerfa
í allar stærðir sendi- og
flutningabíla, fyrir kældar
og frystar vörur. Vottuð
kerfi fyrir lyfjaflutninga.
Við ráðleggjum þér með
stærð og gerð búnaðarins
eftir því sem hentar
aðstæðum hverju sinni.
ÖFLUG KÆLIKERFI FRÁ THERMO KING
FÆRANLEG KÆLITÆKI
Í SENDIBÍLA
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Mér finnst ég læra eitthvað nýtt á
hverjum degi. Það er upplífgandi að
kynnast nýju fólki, nýjum aðstæðum,
og finna að maður njóti sín í þeim.
Þetta er það skemmtilegasta sem ég
tekið að mér,“ segir María Hrund
Marinósdóttir, sem nýlega stofnaði
umboðsskrifstofuna Móðurskipið.
Þótt Móðurskipið hafi nýlega verið
sett á flot eru þegar yfir þrjátíu
þekktir einstaklingar úr leiklist-
arheiminum í bland við handritshöf-
unda, uppistandara, veislustjóra og
ljósmyndara komnir undir væng
þess.
María hefur starfað við markaðs-
mál undanfarna tvo áratugi, síðustu
þrjú ár hjá Borgarleikhúsinu og tíu
ár þar á undan hjá VÍS. Auk þess var
hún formaður Ímark um nokkurra
ára skeið. Hún segir að það hafi verið
draumur sinn um hríð að fara að
starfa sjálfstætt. Upphaflega hug-
myndin var að einbeita sér að mark-
aðsráðgjöf og huga að umboðs-
mennsku samhliða því. Fljótt hafi þó
spurnin eftir umboðsmanni fyrir
skapandi greinar sýnt sig og það
verkefni vatt upp á sig.
„Þessi draumur hefur verið lengi í
maganum, ég alltaf átt þann draum
að starfa sem umboðsmaður. Svo fór
allt af stað og hef ég verið að þróa
þetta undanfarna mánuði. Ég var í
miklum tengslum við þennan heim
leikara og þar fann ég hvað það er
mikil þörf fyrir manneskju sem sér
um að kynna og semja fyrir leikara,
að búa til stökkpall fyrir þá bæði hér
Verk að vinna í kjaramálum
Það er óneitanlega ekki sjálfgefið
að hverfa úr vel launuðu umhverfi
stórra fyrirtækja og fara að vinna
með listamönnum. Því er gjarnan
haldið fram að ekki sé mikið upp úr
því að hafa að starfa í listgreinum
hér á landi, ekki síst af listamönn-
unum sjálfum.
„Það er algerlega rétt að svo virð-
ist sem listamenn í flestum list-
greinum fái oft á tíðum ekki sann-
gjarna þóknun fyrir sitt framlag. Ég
lít á það sem mitt hlutverk að leik-
arar og aðrir listamenn fái það sem
þeir eiga skilið fyrir sína vinnu. Það
er stór áskorun og margt óunnið
þar,“ segir María og bætir aðspurð
við að vinna hennar geti einmitt falist
í að aðstoða við umsóknir um lista-
mannalaun og ýmsa styrki sem lista-
menn reiða sig á.
„En talandi um styrkjaumhverfið
þá er frábært að sjá að í þessu
ástandi undanfarna mánuði hefur
margt verið í boði fyrir listamenn.
Það er greinilegur vilji til að efla
menninguna í landinu og þótt það
hafi komið högg á fjárhaginn hjá
mörgum þá er gott að finna að allt er
að fara af stað aftur. Bæði í sjón-
varps- og kvikmyndaframleiðslu en
líka í skemmtunum. Það er að gerast
töluvert fyrr en ég bjóst við. Það er
allt að springa út sem er dásamlegt.“
Slegist um pláss á Móðurskipinu
Markaðsstjóri til tuttugu ára stofnar umboðsskrifstofu fyrir listamenn Yfir 30 skjólstæðingar
Morgunblaðið/Eggert
Nýr vettvangur María Hrund Marinósdóttir hefur starfað sem markaðsstjóri í 20 ár. Nú sinnir hún listamönnum.
heima og erlendis. Ef maður er mjög
góður í einhverju þá er alltaf erfitt að
selja eigin hæfileika. Það á ekki síst
við leikara og listamenn. Ég get hins
vegar auðveldlega gert það,“ segir
María Hrund og bætir við að stór
hluti af vinnunni felist í að byggja
upp samband við hvern og einn um-
bjóðenda til að kynnast viðkomandi
og geta sett púður í að sinna hverjum
og einum á þann hátt sem viðkom-
andi þarfnast.
Athygli vekur að margir af kunn-
ustu og vinsælustu leikurum þjóð-
arinnar hafa munstrað sig á Móð-
urskipið, til að mynda Ingvar E.
Sigurðsson, Sigrún Edda Björns-
dóttir, Sólveig Guðmundsdóttir,
Elma Lísa Gunnarsdóttir og Þor-
steinn Bachmann. Auk þeirra eru
mörg þekkt nöfn af yngri kynslóð-
inni.
Úrvalslið listamanna
„Já, ég er með úrvalslið með mér í
þessu stóra verkefni. Þetta byrjaði
þannig að Kristín Þóra Haralds-
dóttir bað mig að vinna fyrir sig. Það
var aldrei markmið í sjálfu sér að
vera með fullt hús af leikurum og
listamönnum en svo blómstraði þetta
bara í höndunum á mér.
Ég hef ekki áhuga á að vinna fyrir
of stóran hóp því ég vil geta einbeitt
mér að hverjum og einum. Nú þarf
ég að að meta hvar línan liggur þar.
Ég vil stíga varlega til jarðar til að
meta aðstæður og eins hvort ég eigi
að vinna fyrir fólk í fleiri listgreinum.
Ég vil alla vega vera orðin afbragðs-
góð í því sem ég er að gera áður en
ég fer að stækka um of.“