Morgunblaðið - 22.06.2020, Síða 12
12 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. JÚNÍ 2020
Viðarhöfða 1, 110 Reykjavík | Sími 566 7878 | rein.is
Dekton þolir mikinn hita. Það má setja heita potta og pönnur
beint á steininn án þess að eiga það á hættu að skemma hann.
Dekton er algjörlega öruggt gagnvart blettum.
Blettaþolið SýruþoliðHögg- og
rispuþolið
22. júní 2020
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 137.48
Sterlingspund 170.27
Kanadadalur 101.14
Dönsk króna 20.655
Norsk króna 14.341
Sænsk króna 14.567
Svissn. franki 144.53
Japanskt jen 1.2859
SDR 189.33
Evra 154.0
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 180.0786
Hrávöruverð
Gull 1728.55 ($/únsa)
Ál 1586.5 ($/tonn) LME
Hráolía 41.72 ($/fatið) Brent
● Hagnaður varð af rekstri Verzl-
unarskóla Íslands ses. í fyrra og nam
hann 122,6 milljónum króna, sam-
anborið við tæpar 45 milljónir króna
2018.
Rekstrartekjur skólans voru fjórþætt-
ar í fyrra líkt og fyrri ár. Framlag rík-
issjóðs nam 1.480 milljónum og hækk-
aði um ríflega 60 milljónir milli ára. Þá
innheimti skólinn 202 milljónir í skóla-
gjöld af nemendum og lækkaði sú fjár-
hæð lítillega á milli ára eða um 13,5
milljónir króna. Leigutekjur námu 4,2
milljónum og stóðu u.þ.b. í stað en aðr-
ar tekjur námu 7,3 milljónum og jukust
um 5 milljónir milli ára.
Rekstrargjöld námu 1.535 milljónum
og munaði þar langmestu um laun og
launatengd gjöld. Námu þau 1.289 millj-
ónum og lækkuðu um 43 milljónir milli
ára.
Eignir sjálfseignarstofnunarinnar
námu 2,1 milljarði í árslok 2019. Munaði
þar mestu um fasteignina við Ofanleiti 1
sem metin er á ríflega milljarð króna.
Þá voru vélar, búnaður og innréttingar
metnar í bókum stofnunarinnar á 144,3
milljónir króna. Handbært fé nam 792,5
milljónum og handbært fé í sjóðum í
eigu stofnunarinnar nam 91,7 millj-
ónum. Skuldir hennar stóðu í 1,1 millj-
arði í árslok og munar þar mestu um
langtímalán í íslenskum krónum, 825,9
milljónir.
Í fyrra voru 930 dagskólanemendur
við Verzlunarskóla Íslands.
Afkoma Verzlunarskólans batnar til muna
STUTT
aðgang að þeim gögnum sem þeir
búa yfir, hafi samþykki þeirra sem
gögnin varða verið aflað. Þetta sé af-
leiðing af komandi innleiðingu til-
skipunar Evrópusambandsins
(PSD2) sem ætlað sé að auka ný-
sköpun og samkeppni í fjármálaþjón-
ustu. Með þeim skrefum sem Ís-
landsbanki tekur nú vilji hann vera
skrefi á undan þeim kröfum sem til-
skipun ESB felur í sér. Regluverkið
opnar möguleika fyrir fjártæknifyr-
irtæki af ýmsum toga til þess að láta
til sín taka á markaðnum. Er þessi
þróun í daglegu tali nefnd „opið
bankakerfi“ en í grunninn felst það í
því að bankar setja upp svokallað
API-viðmót (e. Application Pro-
gramming Interface) sem nefnt er
hinu óþjálfa nafni forritaskil á ís-
lensku. Það er viðmót sem bankarnir
bjóða ytri aðilum, á borð við Payday
og önnur fjártæknifyrirtæki, til að
tengja sig við.
Styrkur á fleiri en einn veg
Björn Hr. Björnsson er fram-
kvæmdastjóri Payday og einn stofn-
enda fyrirtækisins. Hann segir að-
komu Íslandsbanka styrkja
fyrirtækið á fleiri en einn veg. „Það
var ánægjulegt að bankinn skyldi
fjárfesta í því og það gefur okkur
tækifæri til þess að þróa vöruna hjá
okkur lengra. En það sem er ekki síst
mikilvægt er að bankinn kemur okk-
ur á framfæri við viðskiptavini sína
sem geta nýtt sér þessa þjónustu
með margvíslegum hætti.“ Hann
segir að áhrifa af samstarfinu gæti
nú þegar í þessa veru og að sífellt
fleiri bætist í hóp viðskiptavina.
800 virkir notendur að jafnaði
„Við höfum verið með í kringum
800 virka notendur en ég geri ráð
fyrir að þeim muni fjölga talsvert
núna. Við erum með nokkrar áskrift-
arleiðir og sú einfaldasta er frí. Hún
opnar leið fyrir þá sem eru með mjög
takmörkuð umsvif til að gefa út
reikninga en stærri áskriftarleiðirn-
ar eru mun fullkomnari og fela í sér
bókhald, reikningagerð og mjög öfl-
uga yfirsýn yfir reksturinn.“ Meðal
þess sem Payday hefur upp á að
bjóða er svokallað mælaborð sem
BAKSVIÐ
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Í liðinni viku barst hópi viðskiptavina
Íslandsbanka tilboð um að prófa sér
að kostnaðarlausu þjónustu fyrir-
tækisins Payday sem frá árinu 2017
hefur boðið upp á reikningagerð og
utanumhald á rekstri fyrir einyrkja
og smærri fyrirtæki. Þjónustan er
rafræn, fer öll fram í gegnum skýja-
þjónustu.
Jóhannes Þór Ágústarson, sem er
vörustjóri á viðskiptabankasviði Ís-
landsbanka, segir að orðsendingin til
viðskiptamanna bankans sé ein birt-
ingarmynd þess hvernig bankaþjón-
usta sé að taka breytingum og að sí-
fellt fleiri aðilar komi nú að því að
veita fólki fjármálaþjónustu.
Lengi fylgst með Payday
„Íslandsbanki leitar leiða til þess
að uppfylla þarfir viðskiptavina
sinna. Við höfum lengi fylgst með
vöruþróuninni hjá Payday og fyrr á
þessu ári komum við inn í eigenda-
hóp fyrirtækisins. Það hefur þróað
leiðir til þess að einfalda hlutina fyrir
einyrkja og minni fyrirtæki og gefa
þeim tækifæri til þess að fá betri yf-
irsýn yfir reksturinn hjá sér,“ segir
Jóhannes Þór og bendir á að lengi
hafi bankinn áttað sig á þörf fyrir
lausn af þessu tagi. „Rekstraraðilar
hafa í gegnum tíðina verið að koma
með útprentaða eða jafnvel hand-
skrifaða reikninga í því skyni að fá
bankann til að stofna kröfur á hendur
viðskiptavinum þeirra. Það hefur
vantað lausnir sem gera fólki mögu-
legt að gera þetta sjálft.“
Jóhannes Þór segir að önnur
ástæða fyrir þessu skrefi bankans
liggi í því að bönkum verði frá næstu
áramótum skylt að veita þriðja aðila
sýnir t.d. lykiltölur úr rekstri frá degi
til dags, uppsafnaðan hagnað, tekjur,
gjöld, útistandandi kröfur og margt
fleira.
Björn segir að samstarfið við Ís-
landsbanka feli sér tækifæri fyrir
báða aðila. Þannig geti bankinn einn-
ig haft áhrif á og ýtt við því að þróað-
ar verði þjónustuleiðir sem hann tel-
ur viðskiptavini sína skorta. „Við
getum gert margt sem banki getur
ekki gert og bankinn gerir auðvitað
margt sem við höfum ekki heimildir
til að gera. Með þessu samstarfi
keyrum við á styrkleikum hvors
fyrirtækis fyrir sig.“
Þjónustan þróast og víkkar út
Sem fyrr segir er þjónusta Payday
fyrst og síðast hugsuð út frá þörfum
einstaklingsreksturs og minni fyrir-
tækja hins vegar segir Björn að þjón-
ustan hafi víkkað út. „Við erum t.d.
með þetta fullbúna bókhaldskerfi.
Inn í kerfið eru núna komin launa-
kerfi og sjálfvirkar leiðir til þess að
vinna virðisaukaskattsskýrslur og
það getur líka annast sjálfvirk skil á
virðisaukaskatti,“ segir Björn. Hann
bendir í því sambandi á að hugmynd-
in að baki fyrirtækinu hafi einmitt
kviknað í slíku brasi.
„Ég var á sínum tíma að stofna
fyrirtæki. Það var ekki bara að
stofna það heldur sækja um vsk-
númer og svo þurfti að setja sig í
samband við fleiri en einn lífeyrissjóð
vegna launagreiðslna. Þetta var
mjög flókið og tók mikinn tíma. Mér
fannst mikilvægt að finna leiðir til
þess að einfalda þetta fyrir fólk svo
það gæti einbeitt sér að því að byggja
upp fyrirtækið, frekar en að einbeita
sér að allri þessari pappírsvinnu.“
Í átt að opnu bankaumhverfi
Viðmótið í skýinu Payday er ætlað að gera einyrkjum og minni fyrirtækjum auðvelt að halda yfirsýn, ekki síst við
reikningagerð og innheimtu. Á sérstöku mælaborði er hægt að fylgjast með stöðu rekstrarins frá degi til dags.
Íslandsbanki hefur fjárfest í fjártæknifyrirtækinu Payday Hvetur einyrkja og lítil fyrirtæki til að
nýta sér þjónustu þess Einfaldar reikningagerð, bókhald og samskipti við skattinn og lífeyrissjóði
Jóhannes Þór
Ágústarson
Björn Hr.
Björnsson
Allt um
sjávarútveg